Vikan - 27.07.1989, Qupperneq 33
MAM5KEIÐ
5KOP
an en hlutlausan hátt er á þessu námskeiði
unnið að því að frelsa ákvarðanatökur okk-
ar undan tilfinningaböndunum sem tengja
okkur við viðbrögð barnsins sem við vor-
um og sem hamla því að við getum mætt
hverri manneskju á ferskan hátt. Hér er
ekki ætlunin að vekja upp gamlan sársauka
til þess að velta sér upp úr honum. Hér er
heldur ekki um að ræða geðmeðferð. Það
má líkja ferlinu við bátsferð út á sjó
minninganna, þar sem við stingum okkur
ekki út í, heldur kíkjum yfir borðstokkinn.
Þegar ég tók þetta námskeið sjálf teiknaði
ég m.a. myndir af samskiptum mínum við
foreldra mína gegnum tíðina (0-7 ára, 7-
14 ára, 14-21 árs, 21-28 ára o.s.frv.).
Myndin samanstóð af hringjum í mismun-
andi litum, í mismunandi stærð og í mis-
munandi fjarlægð hver ffá öðrum. Einfalt
en áhrifamikið.
Lunderni
Fjórar gerðir lundernis eru athugaðar
og unnið að því að gera sér grein fyrir
aðallunderni okkar sjálfra. En engu síður
mikilvægt er að greina og viðurkenna
lundernisgerð annarra og finna þeim verk-
efhi við hæfl. Þetta námskeið er mjög
gagnlegt þeim sem vinna mikið í hópum,
svo sem stjórnum og nefndum, og einnig
þeim starfsmannastjórum og verkstjórum
sem falið er að velja fólk í ákveðin störf.
Fyrirtæki hafa einnig boðið starfsfólki sínu
þátttöku í slíku námskeiði þegar persónu-
legur ágreiningur og samstarfsörðugleikar
hafa hamlað starfseminni.
Hegdunarmynstur
Ólíkt því sem gerist með lundernið get-
um við breytt hegðunarmynstri okkar og
framkomu. Farið er í sex höfúðtegundir af
ffamkomu og öflin sem tengjast þeim.
Þátttakendur rekja starfsferil sinn og finna
hver þessara afla hafa verið sterkust gegn-
um tíðina. Einnig er gaman að upplifa það
að mæta þeim gegnum örstuttar leikflétt-
ur. Þeir sem komið hafa á þetta námskeið
hafa skilið betur áhrifin sem framkoman
hefur á samskipti þeirra við aðra. Einnig
hefúr það verið hjálplegt félagsráðgjöfum í
tengslum við samtalstækni.
Námskeiðin eru ýmist boðin almenn-
ingi, þannig að ótengdir aðilar koma
saman, eða þá að fyrirtæki á borð við Ford
og BBC í Englandi bjóða starfsfólki sínu
þátttöku á námskeiðunum. Það er hins
vegar gert að skilyrði ffá hendi okkar sem
rekum þau að enginn sé neyddur til þess
að taka þátt heldur verður hver einstakl-
ingur að taka um það ffjálsa ákvörðun.
Það er gott til þess að vita að fyrirtæki
vilji fjárfesta í starfsfólki sínu. Það er Iíka
gott til þess að vita að fólk sé farið að
bregðast við aukinni einstaklingshyggju
með því að efla skilning sinn á öðru fólki,
til þess að vega upp á móti henni. Fullorð-
insfræðsla finnst mér vera að gefa full-
orðnu fólki tækifæri til þess að þekkja sjálft
sig og veita því tæki til þess að takast á við
breytingar og innri kreppu. í samfélagi
nútímans er ekkert öruggt. Fólk getur bú-
ist við því að skipta um starf oftar en einu
sinni á starfsævinni, það getur reynst erfltt
fyrir það að fá vinnu eftir flmmtugt og þá
eru góð ráð dýr nema sveigjanleiki sé enn
fýrir hendi í manneskjunni til þess að
skapa og byrja upp á nýtt. Til þess að halda
sveigjanleikanum og vera skapandi og
bjartsýnn er gott að skilja hvað það er sem
hvert þroskatímabil ætlast til af manni og
vinna með því en ekki gegn.
Samfélagið hefúr einnig sín þroskastig
svo og mannkynið. Að skilja hlutverk sam-
tímans gerir manni kleift að velja og hafha
leiðum á meðvitaðan hátt. Að skilja
þroskaferil mannkynsins hjálpar einstakl-
ingum að vinna með þróuninni en ekki
gegn henni. □
Hreinræktud nöldurskjóða
Konunni fannst eiginmaðurinn eyða of
miklum tíma í hrossið sem hann var ný-
búinn að kaupa svo hún lét útbúa límmiða
sem á stóð: Farðu með hana eins og hún
væri hreinræktuð — og þá verður hún
aldrei nöldurskjóða. Miðann límdi hún á
stuðarann á jeppanúm hans. Félagarnir
stríddu honum mikið á þessu og eitt
kvöldið kom hann heim með fallega inn-
pakkaða öskju sem hann færði konu sinni
um leið og hann kyssti hana. Hún flýtti sér
að opna öskjuna — og í henni fann hún tvo
sykurmola.
- Ég geri ráð fyrir að það sé
handhægt, en það geta ekki
margir setið við það.
Þeir gleymdu
Karlmenn hafa það ekki eins gott og af
er látið. Þegar hann fieðist þá spyrja menn:
„Hvernig hefur móðirin það?“ Þegar hann
kvænist þá er sagt: „Mikið er brúðurin
falleg." Að lokum, þegar hann deyr, þá
spyr fólk: „Hvað ætli hann hafi látið mikið
eftir sig?“
T engdamömmubrandar i
Þegar dómari var spurður að því hver
væri refsingin fyrir tvíkvæni brosti hann
og svaraði: „Tvær tengdamæður."
-nto-jjuu
- Spurðu manninn minn.
Hann mun segja þér hvað ég
fer að gera eftir vinnu.
15. TBL 1989 VIKAN 33