Vikan - 27.07.1989, Blaðsíða 44
... hwrÁiM Æ ] MHOr. J*í MgQw. ‘H isH*
*('nn
Prag,
borg rómantíkur
alda menning hrífur þá sem heimsækja
borgina. Sagt er að hvergi í heimi séu bón-
orð á miðri götu jafnalgeng, hvort sem
slíkt er rétt eður ei. Á daginn missir mið-
borgin þetta sérstaka andrúmsloft. Umferð
og skvaldur ræður þá ríkjum og mengun
er talsverð.
Prag á tíu alda sögu að baki og hefur því
mikið menningarsögulegt gildi. Tékkar
hafa líka gætt þess að halda við fornminj-
um, bókmenntum og listaverkum fyrri
tíma. Forsetahöllin er frá níundu öld, Prag-
kastalinn svonefhdi varð aðsetur forseta á
þessari öld, og þar má flnna fallega garða,
tjarnir og söfh. Kastalinn rís yfir miðborg-
inni og þangað sækja ferðamenn á sumrin.
Gamlar krár og vínkjallara má finna nánast
í hverri götu og húsgögnin eru off æva-
forn, Tékkar segjast líka selja besta bjór
heims. Gamli miðbærinn hefur mikið að-
dráttarafl með öllum sínum torgum og
skuggasundum. Þar eru flest hús frá 14.
öld og margar fallegar kirkjur og söfn svala
forvitnum augum. Gotneskur og barokk-
stíll er allsráðandi í byggingum þar. Fyrir
venjulegan ferðamann er Prag ekki borg
til að versla í, nema þá að kaupa kristal.
Miðað við vestrænt gildismat eru búðir fá-
tæklegar og ekki spennandi. En Prag er
borg fyrir þá sem vilja upplifa gamla tím-
ann í nútímanum.
Mannfjöldi er avallt mikill á Karlsbrúnni á daginn enda falleg listaverk við hvert fótmál. Á kvöldin blómstrar þar rómantik
og svartamarkaðsbrask með peninga.