Vikan - 31.05.1990, Page 54
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON
w
IMYNDUNARVÐKIN
IGRASAGARÐINUM
Áhugaleikhópurinn
Fantasí, sem er að setja ó
svið leikritið ímyndunar-
veikina eftir leikskáldið
Moliére, brá á leik fyrir
Vikuna á dögunum.
Leikararnir fóru í búning-
ana sem notaðir eru í
leikritinu en þeir eru tákn
síns tíma.
Leikhópurinn er skipaður átta manns
sem allir sinna öörum störfum fyrir
utan leiklistina. Hópurinn varstofnaður
formlega fyrir um einu ári en hefur
starfað mun lengur. Meðlimir hópsins
hafa lagt mjög mikla áherslu á að mennta sig
sem áhugaleikara. Þau hafa keypt sér nám-
skeið á ýmsum sviðum sem viðkoma leiklist-
inni og er sjaldgæft að áhugamannaleikhópar
fari út í slíkt. Afrakstur þessa undirbúnings
þeirra og hæfileikar hafa meðal annars orðið til
þess að þau hafa verið valin til að fara með eitt
af verkum sínum, Vagnadans, á mikla hátíð
leikhópa sem haldin verður í Svíþjóð í sumar.
Hópurinn hefur einnig fengið styrk frá mennta-
málaráðuneytinu en hann hefur því miður
hrokkið skammt. Hann er samt mikil viður-
kenning fyrir þetta unga listafólk.
Þegar þau voru að velja næsta leikrit til flutn-
ings á eftir Vagnadansi, sem var leikur án tal-
aðs máls og mjög óvenjulegur að allri upp-
byggingu, langaði þau til að flytja klassískt
verk og þá helst gamanleik. Fyrir valinu varð
ímyndunarveikin eftir Moliére. Eftir þá ákvörð-
un létu fyrstu tálmanirnar ekki á sér standa, en
þær voru í fyrsta lagi búningarnir og hins vegar
hárkollurnar. Klæðnaður fólks á þessum tíma
var mjög íburðarmikill og flókinn á vísu
nútímafólks. Konur voru klæddar mjög víðum
kjólum og korsiletti og karlmennirnir íburðar-
miklum jökkum, vestum, blússum, hálstaui og
fleiru. Fyrir utan allt þetta prjál voru svo hárkoll-