Vikan


Vikan - 18.12.1941, Síða 11

Vikan - 18.12.1941, Síða 11
VIKAN, nr. 51—52, 1941 9 Lýður Guðmundsson og drottinn. Frh. afbis. 5. lega: Þó að maður sé fangi ... en þarna kemur Bensi. Benedikt vinnumaður þrammaði rakleitt inn í stofuna. Snjórinn hrundi af honum. Lýður Guðmundsson hnyklaði brúnirnar, en lét sér nægja að segja: Þú gerir þig heimakominn. Það er engu líkara en ég hafi sent þig í bónorðsför, Benedikt frjálsi. Það er svo mikill völlur á þér, að þú hlýtur að hafa fundið hval, Bensi bláþráður! Lýður kallaði hann stundum Benedikt frjálsa til aðgreiningar frá Jóni fanga og stundum bláþráð, af því að hann var lang- ur og renglulegur, og stundum öðrum viðurnefnum. Benedikt losaði í hægðum sínum klakann úr yfirskegginu og gaut um leið hornauga til skáps, sem var í stof- unni. Lýður barði bylmingshögg í borðið, til þess að láta í ljós óþolinmæði sína um- svifalaust og eins kröftuglega og hann gat. Það var líka auðséð á séra Birni, að hann fýsti í fréttir. Ójá, það var ekki mikið um rekavið, drafaði í Bensa bláþræði seint og um síðir og hann hélt áfram að berjast við klak- ann í skegginu. Hann er f jandi kaldur nið- ur við sjóinn, Lýður sýslumaður . . . Lýður varð mýkri á manninn, náði í flösku og glas úr skápnum, sló á þann stáð, þar sem magi er á öðrum mönnum — og áleit, að hann mætti til að láta eitthvað koma á móti: En ég bjargaði því litla, sem var þarj — Hvalur — nei . .. Hann hristi höfuðið. Lýður Guðmundsson rauk upp ösku- vondur: Ertu vitlaus, maður! Enginn hvalur, segirðu! . . . Ertu brjálaður, Bensi brjóttu- mig-ekki. Þú veður inn til náðarinnar og réttvísinnar, séra Björns og mín, snjóugur upp í klof og fasmikill, rétt eins og þú gætir sagt mér, að rekið hefði feikna verðmæti * á fjörur mínar! Enginn hvalur, segirðu! Hverju hefirðu bjargað ? Beinagrind af svartbak? Og svo drekkurðu brennivínið mitt, skepnan þín! Fjandinn hirði þig og steiki til kvöldverðar! En magur ertu. — Það verður bara beinasúpa! . . . Skamm- astu að minnsta kosti fram og burstaðu af þér snjóinn, nautshausinn þinn! Tað- skegglingur! Brennivíns-snápur! Þú vinn- ur hjá sýslumanninum og berð enga virð- ingu fyrir lögum og sannleika! Benedikt frjálsi gekk hnarreistur út úr stofunni. — Hann var ekki fyrr kom- inn fram í dimman ganginn, en hann kall- aði inn: Ég hélt að það tæki því ekki — ég hélt að það lægi á — ég hélt, að við ættum að fara þangað niður eftir strax, sýslumaður! Lýður þagði, allir þögðu — en Bensi gat ekki á sér setið. Þessu getur skolað út aftur, sýslumað- ur, skrækti röddin utan úr dimmunni: Og það liggur rétt við fjöru prestsins. Nú, en mér má svo sem á sama standa! Lýður sópaði Jóni fanga burtu, eins og flugu, rétti höndina út í ganginn, og dró Benedikt inn: Leystu frá skjóðunni, tjaldurinn þinn, fjörulallinn þinn! Tennurnar glömruðu í skoltinum á Bensa: Hann er svo skratti kaldur, sýslumað- ur . . . . . . En ef þú dirfist að senda mér vatns- tunnu, drottinn! . .. Það máttu vita, séra Björn — ef það er vatnstunna, þá ríf ég kirkjuna til grunna og jafna legsteinana við jörðu! Benedikt, Sankti Benedikt — sleða og reipi! Jón Grikklandskóngur — farðu út í skemmu og taktu þér nafar fyrir veldissprota og verið með í förinni, yðar hátign! Skrambinn sjálfur — ég gleymi prestinum hestsins — fyrirgefið, séra Björn — hestinum prestsins, Bene- Lýður rétti honum tóbakstuggu: Hana, tyggðu þetta, Benedikt heilla- karl! Jón fangi muldraði: 'Á ég ekki líka að fá bragð — svo að ekki verði gerður greinarmunur á réttlát- um og ranglátum! Lýður rétti honum hálft glas, án þess að virða hann viðlits — Benedikt heilla- karl sagði: Ég gerði það, sem ég gat, það er áreið- anlegt, en ég er enginn Ormur Stórólfs- son, enginn Grettir. Það var blýþungt, Lýður sýslumaður — það er ekki eins manns meðfæri. En sjórinn getur sogað það til sín á hverri stundu, eins auðveld- lega og þú hvolfir í þig úr glasi, sýslu- maður! Blýþungt? sagði Lýður. Já — og eins og tunna í laginu, bætti Benedikt við. Tunna — var það tunna? Hvernig tunna? Hvað var í henni? spurði Lýður, og greip húfu og vettlinga. Það voru að minnsta kosti gjarðir á henni, sagði Bensi og klóraði sér á bak við eyrað: Og tveir botnar . . . Og spons líka! Botnar, spons — hvað þarf -þá frekar vitna við! tautaði Lýður grafalvarlegur: En innihaldið, maður . . . Nú, hver ætti að vita það. Þung — það er þá ekki brauð- tunna. Mjöltunna? Sykurtunna? Kannske — kannske . . . Ég sting glasi í vasann! dikt! En ég gleymi þér ekki, Lýður, sagði séra Björn brosandi: Ég kem líka. Nú, þá verð ég líka auk minna góðu synda að rogast með mína slæmu sam- vizku, sagði Lýður. Þá það! . . . Getum við fjórir komið guðs- gjöfinni upp á sleðann, Bene- dikt? Getur sleðinn borið hana, Benedikt? Það kemur í ljós á sínum tíma, svaraði Benedikt. Snjórinn marraði undir fót- um mannanna og það var líkt og hann kveinkaði sér sem lif- andi vera, þegar meiðirnir ristu hann. Fannhvít f jöllin, með svörtum klettum hér og þar, bar við blá- an himinn, kaldan og stirnaðan, íshimin. Dimmur hafflöturinn teygði sig án litbirgða og dökkn- andi út að sjóndeildarhringnum, sló aðeins á gulgrænum lit, þar sem gáran braut við snjóskör- ina. Svona Rínarvínshiminn — það er eins og hann geri gys að manni, þegar maður getur ekki teygað hann í sig! rumdi kesknislega í Lýð Guðmundssyni. — Rödd- in hnyklaðist eins og hvítleitur reykur út úr skegginu: Loftið tekur í kverkárnar — en það er bragðlaust, klerkur! Aftur á móti þarf ekki nema líta á nefið á þér, svo að maður missi ævilangt löng- unina í rauðvín! rumdi séra Björn önug- lega, Aftur á móti? endurtók Lýður: Guð- fræðileg rök! Málfræðilegir leyndardómar! Þú veizt nú ekki ennþá, hvað er í tunn- unni, sagði sér Björn til þess að hitta aum- an blett á sýslumanni. Nei, nei, viðurkenndi Lýður: En gott hjarta vekur glaðar hugsanir — illt hjarta gremjufullar. Sagði ég hjarta? I þér eru það víst heldur nýrun. Þar er nokkur hluti sálarinnar — eða hví skyldu þau ann- ars eiga að rannsakast? Séra Björn gekk úr skugga um, að Benedikt frjálsi og Jón fangi væru svo langt á undan með hestinn, að þeir gætu ekki heyrt til hans, og sagði svo: Lýður, þú ert eins og pörupiltur, sem drottinn lætur ganga lausan öðrum til áminningar. Áminningar ? endurtók Lýður: Hm! ... Gagnstætt fyrirmynd, er það ekki? En þrátt fyrir það nokkurs konar prestur og

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.