Vikan - 16.05.1991, Síða 16
Frh. af bls. 15
ekki áttaö þig á því. Þú ert komin af merkilegu
fólki; þetta hefur verið dugnaðarfólk. Heyrðu í
hvaða mánuði er maðurinn þinn fæddur. Nú já,
þá er hann með heilaga tölu, sjö eins og þú.
Já, já og peningatöluna tíu og þversumman
hjá honum gefur giftingartöluna átta og svo
tuttugu og þrjá í þversummu, já og svo aftur
peningatöluna ellefu. Þetta gefur honum það
sama og þér; langt hjónaband og góöa konu,
barnalán og lífshamingju, auð og auðnu.“
Hún lygnir aftur augunum og fer með síð-
ustu orðin eins og romsu sem hún hefur lært
utan af.
„Er annað foreldra þinna á lífi? Nú, ekki, en
fósturforeldri. Hefur hún verið eitthvað lasin?
Nú, ekki núna. Er henni batnað. Nú, jæja, er
það.“ - Engin veikindi hér aö hafa. - „Þetta er
góður bolli hjá þér, gæfuhringur í botni, skýr og
skikkanlegur bolli. Það er það, já.“
Með þeim orðum lauk spánni hjá þessari
eftirsóttu spákonu sem aliir þekkja sem á ann-
að borð hafa nokkuð lagt sig eftir þessari stétt
kvenna. Hún fylgdi til dyra, hress og hýrleg í
gula bómullartrimmgallanum og hugaði að
saltkjötinu og baunasúpunni á meðan hún
kvaddi. Já, íbúðin er sannarlega mjög lítil en
andrúmsloftið er ósköp vinsamlegt, jafnvel
svolítið glettið.
OG HVAÐ PASSAÐI AF ÞVÍ SEM
SAGT VAR?
• Eiginmaðurinn er dökkhærður, duglegur til
vinnu og sjálfstæður.
• Allt í góðu lagi með börnin.
• Jú, dóttirin segist ætla að verða læknir,
dýralæknir.
• Sonurinn vinnur mikið með tónlist.
• Heimilið er einbýlishús (en þetta með
garðinn...!)
• Það eru margir embættismenn í annarri
ættinni.
• Það er langlífi i ættunum.
ÞAÐ ER VERIÐ AÐ
BENDA ÞÉR Á____
Nú er komið að konunni sem les
aðeins í eina gerð af tarot eða
hefur í öllu falli sérstakt dálæti á
einni gerð þessara spila. Hún
geymir spilin sín í sérstöku her-
bergi, í djúpfjólubláum dúk sem hún vefur alltaf
um þau að lokinni notkun. Þennan sama dúk
breiðir hún á borðið áður en lögnin hefst. Hún
leggur ítrekað áherslu á að hún sjái aðeins
það sem spilin segi; það séu þau sem tali, ekki
hún og því sem þau segja geti hún ekki breytt.
Svo hefur hún máls eftir að hafa látið útsendar-
ann stokka spilin og snúa þeim öðru hverju á
meðan á stokkuninni stendur:
„Það úr fortíðinni sem þú átt að hafa í huga
er...
Mér finnst að þú hafir þurft að velja á milli
hins ósýnilega og hins veraldlega, þú hafir
þurft að taka ákvörðun um það. Mér finnst að
þú hafir átt marga möguleika í lífinu til að gera
hluti og það er verið að benda þér á að þú átt
þessa mögulega ennþá en valið er hið sama.
Þú hefur víðan sjóndeildarhring andlega og
veraldlega - á báða kanta, sem er ekki
algengt.
Þú hefur fengið dálftið slæma útreið fjár-
hagslega í sambandi við vinnu eða áhugamál
og það áttu að hafa í huga í nánustu framtíð.
Síðan er það svo sú reynsla og áhrif sem þú
verður fyrir f nútíðinni og kemur til með að
skipta þig máli. Þú hefur vald yfir eigin lífi og þú
þarft að nýta þér þína sjálfstjórn töluvert mikið
á næstunni og mér finnst eins og einhver
ferðalög spili þar inn í.
Hefurðu ekkert verið að rífast við einhverja
konu? Þú þekkir hana og hún spilar eitthvað
inn á viðskiptasvið hjá þér. Hún er komin
býsna nálægt þér núna. Það eru einhverjar
spekúlasjónir hjá þér og mér finnst eins og hún
sé að reyna að hafa áhrif á þær þér til ills. En
mér finnst eins og henni takist það ekki því
fljótlega á eftir þeim spilum sem eru í kringum
þessa konu kemur til breyting til batnaðar á
efnahag þínum. Næsta haust byrjarðu á ein-
hverju nýju en fyrst þarftu að brjóta hana af
þér, þessa manneskju.
Síðan eru þau andlegu áhrif sem eru í kring-
um þig og koma að utan. Það er ofboðslega
mikið ójafnvægi í kringum þig núna. Það eru
fjárhagserfiðleikar, fólk sem nær ekki almenni-
lega áttum og þér er bent á að hámarkinu í
þessu er ekki alveg náð. En það nálgast. Þetta
spilar inn á þig og þrýstir á þig en þetta ert ekki
þú persónulega.
Þú ert vöruð við því að þú gætir misst af ein-
hverju góðu af því að þú haldir of fast í eitthvað
gamalt. En inni í þessu öllu ertu að fara inn í
breytingar og þær eru óþægilegar en leiða til
góðs.
Síðan er það sem er væntanlegt og þar á
meðal hið óvænta. Það er óviturlegt að byrja á
framkvæmdum nú í nánustu framtíð. Láttu
frekar smátíma líða áður en þú ferð að fram-
kvæma einhverja alvarlega hluti. Og varaðu
þig á utanaðkomandi afskiptum og varaðu þig
á því að það er einhver sem vill misnota
greiðasemi þína.
Ertu dálítið mikið blönk núna? Þú breytir því
með eigin styrk. Peningarnir koma og safnast
hægt en breyting til batnaðar næst. Þú hittir til-
tölulega fljótlega einhvern sem þig hefur lengi
langaö til að hitta. Þetta er eitthvað úrfortíðinni
og þetta vekur þér mikla ánægju. Þetta er kona
mjög yndisleg og vill vernda þá sem henni
finnst tilheyra sér. Hún mun launa þér eitthvað
sem þú hefur gert fyrir hana.
Það sem er væntanlegt en þú getur forðast
ef þú vilt:
Þar er aftur komið inn á þessa sjálfstjórn. Nú
ætlar þú að fara að ráða yfir einhverjum. Það
er hérna ung manneskja. Hún er ofboðslega
dugleg og dálítið stjórnsöm. Það er eins og þú
gefir þessari manneskju allan þinn styrk, hlýju
og allt sem þú átt. Móöurlegar tilfinningar; ætl-
ar eitthvað að veita þessari manneskju aðstoð.
Þú ræður sjálf en mér finnst eins og þig langi
óskaplega til að skipta þér af henni. Mér finnst
að þú ætlir að hvetja hana til að gripa tækifæri
sem þú heldur að verði henni til góðs.
Mér finnst eins og þú verðir fyrir óréttlæti,
einhverri tvöfeldni, baktali, öfund - einhverju
slíku. En þú hefur viljann og þekkinguna til að
takast á við hlutina og framkvæma þinn eigin
vilja. Þú færð einhvers konar viðurkenningu en
sennilega ekki fyrr en seinni partinn í sumar
eða í haust. Þessi viðurkenning hefur miklar
umbreytingar í för með sér og það verða ofsa-
lega miklar breytingar á aðstæðum, hegðun
þinni og athöfnum. Þetta hefur mikil áhrif á þig.“
I lokin gaf þessi spákona færi á að spyrja um
einn tiltekinn dag ef þess væri óskað og fyrir
valinu varð 12. ágúst, alveg út í loftið:
„Ofboðslega skemmtilegur dagur sem veitir
þér ánægju og það er einhver sigur sem fylgir
þessum degi.
Morguninn: Sambland af gleði og sorg. Þér
líður ofsalega vel en lendir í smárifrildi. Degin-
um tengist ferðalag.
Eftirmiðdagur: Þú hittir gamlan vin og þér
finnst þú vera mikið á réttri leið.
Kvöldið: Þú færð einhvers konar fréttir um
kvöldið - sem eru góðar fréttir. Og þessar frétt-
ir geta hugsanlega boðað einhvers konar
breytingar á vinnu eða bústað um skamman
tíma. Þessi dagur kemur til með að skipta ein-
hverju máli, það er alveg Ijóst. Hann hefur tvö
spil sem benda til ferðalags. Hvort þú ert á
ferðalagi þennan dag eða ert að ráðgera
ferðalag get ég ekkert sagt um.“
OG HVAÐ PASSAÐI HÉR AF ÞVÍ
SEM VAR SAGT?
• Jú, blessuö blankheitin koma hér enn og
aftur en að öðru leyti er ekki gott að segja.
Hinu er þó ekki að leyna að þessi spákona
kemur inn á marga sömu hluti og hinar, til
dæmis þetta með öfund eða tvöfeldni, unga
manneskju til að leiðbeina eða annast (þriðja
barnið?), endurgjald vegna einhvers góðs sem
var gert, ferðalag, bættan fjárhag og viður-
kenningu. En tíminn mun væntanlega leiða
þeta allt í Ijós!