Vikan - 16.05.1991, Síða 24
##Hann kom fram við
mig eins og ég væri
þræll. Ofbeldið kom
fram í því að hann
henti öllu út um allt og
ég átti að tína til eftir
hann.##
Hcmn sagðist geta
fengið annan þræl"
- segir 32 ára kona frá Filippseyjum
Hún er frá Filippseyjum og hefur ver-
iö búsett hér á landi í tvö ár. Eigin-
manni sínum kynntist hún fyrst í
gegnum bréfaskriftir og í janúar
fyrir tveimur árum fór hann út til
hennar og um þaö bil mánuöi síðar giftu þau
sig.
„Hann virtist vera ágætismaður. Hann er
eldri en ég eöa 46 ára gamall en ég er 32 ára.
Hann sagðist geta boðið mér upp á gott líf með
sér, hann vildi fá konu sem gat haldið heimili
fyrir hann. En hann átti ekkert heimili, á þeim
tveimur árum sem við höfum búið saman höf-
um við búið á sjö stöðum, á tveimur stöðum í
Reykjavík og svo út um allt land. Hann hafði
flækst víða áður en við kynntumst og það virt-
ust allir þekkja hann alls staðar. Hann hafði
búið um tíma í Noregi með stúlku og á þar tvo
syni.
Þegar ég spurði hvers vegna hefði slitnað
upp úr því sambandi sagði hann að hún hefði
verið lesbísk. Síðar komst ég að því að það
var tóm della, hún er núna gift ágætismanni.
Enda er varla orð að marka það sem hann
segir. Ætli hann segi ekki í dag að ég sé les-
bía! Hann var einnig kvæntur íslenskri konu og
á með henni nokkur börn sem öll hafa snúið
baki við honum. Þau nota ekki einu sinni nafnið
hans því þá er erfitt fyrir þau að fá vinnu.
Hann er gjaldþrota og má ekkert eiga og því
hefur hann skrifað tvo bíla, sem hann hefur
keypt, á nafnið mitt og dóttur okkar. Hann er
drykkjumaöur en hefur alltaf lofað að fara að
breyta lífi sínu til betri vegar. Hann drakk dög-
um saman, þoldi ekki barnið, gekk illa um og
ég átti að ganga frá öllu. Hann kom fram við
mig eins og ég væri þræll. Ofbeldið kom fram
í því aö hann henti öllu út um allt og ég átti að
tína til eftir hann. Hann lét mig rétt fá peninga
til brýnustu lífsnauðsynja, allt hittfórtil áfengis-
kaupa.
Mér leið illa með honum, hann var alltaf í
svo vondu skapi, blótaði öllu og öllum. Ég vildi
ekki að dóttir okkar byggi við þetta. Ég hef farið
tvisvar frá honum áöur, í fyrsta skipti þegar við
bjuggum úti á landi. Þá fór ég til vinafólks og
var þar í tíu daga. Og hingað í Kvennaathvarf-
ið kom ég í júní fyrir tæpum tveimur árum og
var hér þá í einn mánuð en þá var hann farinn
að henda húsgögnum út um allt og hrinti mér.
Ég var þá ófrísk að barninu okkar. Hann hafði
hótað mér því að ég yrði send úr landi ef ég
væri með eitthvert múður. Svo varð ég ófrísk
aftur og er nú komin fjóra mánuði á leið. Ég
geng með tvíbura og vissi ekki hvort ég ætti að
hlæja eða gráta þegar ég komst að því.
Þetta var sannarlega erfitt líf hjá mér. Hann
greiddi aldrei neina reikninga, þegar þeir komu
tók hann þá og henti þeim í ruslið. Ég spurði
hvers vegna hann gerði það. -Átt þú einhverja
peninga til að greiða þetta? var svarið. Um
daginn hringdi ég í hann og spurði hvort hann
gæti sent mér prófskírteinið mitt en ég er með
próf í verslunarfræðum. Hann sagðist hafa
hent skírteininu.
Það vantar ekki að hann segist elska mig út
af lífinu, kallar mig ástina sína og lofar bót og
betrun. Hann hefur farið í meðferð á Vogi og
fleiri stöðum, til dæmis á Landspítalann, en
ekkert dugar. Þegar ég var að gefast upp nú
og sagði að ég væri farin frá honum sagði
hann það vera allt í lagi, hann gæti náð sér í
nóg af þrælum þaðan sem ég heföi komið.
Hann hefur farið á AA fundi en þeir hafa ver-
ið svo erfiðir að hann hefur stundum þurft að fá
sér neðan í því þegar hann hefur komið heim.
Hann hvatti mig til að fara á Al-Anon fund, ég
fór þangað en hætti því þegar hann hélt áfram
að drekka. Þá ákvað ég að hætta frekar að búa
með honum. Hann hefur setið í fangelsi nokkr-
um sinnum og segist hafa drepið mann. Ég bjó
síðast úti á landi en tók mér leigubil hingað í
Kvennaathvarfið.
Ég hef verið svo reið út í hann að ég hefði
getað drepið hann. En hann er ekki þess virði
að lenda í vandræðum út af honum svo ég
ætla að losa mig við hann og alla fjölskyldu
hans. Ég ætla að byrja að læra íslensku hjá
Rauða krossinum og fara þaðan aftur í nám og
fá mér svo vinnu og sjá um mig og börnin
mín.“ □
24 VIKAN 10.TBL 1991