Vikan - 16.05.1991, Side 44
HÖFUNDUR: JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL
Ég mun áfram halda skrifum sem eru almennar hugleiðingar um eift
og annað áhugavert, vegna uppsafnaðra bréfa frá lesendum með
óskum um fpannig umfjöllun um ákveðna þœtti mannlegrar reynslu;
reynsluþœtfi sem við erum flesf að kljásf við. Þetfa er vilji ykkar lesenda
og sjálfsagf að fara að honum. Að þessu sinni æfla ég að fjalla um
áhyggjur, séð frá innsæi mínu. Vonandi hafið þið bæði gagn og
gaman af. Persónuleg bréf halda að sjálfsögðu áfram að vera
mikilvœgust í umfjöllun minni eins og áður. Afhugið að umfjöllun mín
er alls ekki fagleg, einungis afleiðing hyggjuvits og innsœis auk
margþœttrar reynsluþekkingar minnar og hentar flestum heilbrigðum
vel, vona ég. En eins og ég hef bent á áður mun ég leggja
megináherslu á að svara bréfum sem tengjast einstaklingnum og þörf
hans fyrir ábendingar og kœrleiksríka leiðsögn. Ég skoða að auki og
íhuga manngerð viðkomandi og hugsanlega hæfileika. Eins velti ég
aðstœðum viðkomandi og hugsanlegum afleiðingum þeirra fyrir mér
líka. Munið bara að fara að reglum.
Það er vissulega vandi
aö velja þegar fjalla á
um jafnalgengan og
óþægilegan fylgikvilla mann-
legs eðlis og áhyggjur óneitan-
lega eru. Viö reynum eins og
áöur að vera eins smásmugu-
lega málefnaleg og auðið er,
miðað við augljóst umfang
áhyggna í samfélagi okkar
mannanna. Sá sársauki og
hallærisháttur sem áhyggjum
er samfara á sér fá takmörk og
þaðan af síður nokkur sýnileg
landamæri í mannssálinni.
Þegar við erum börn er eitt
og annað sem getur valdið
okkur áhyggjum. Við verðum á
þessum æskuárum stundum
öskureið út í mömmu eða
pabba og jafnvel bölvum þeim
í hljóði og meira að segja upp-
hátt á bak við hurð ef hægt er.
Afleiðing þessarar reiði er
ótrúlegur ótti við að ef þau
vissu um hugsanir okkar og
hugsanlegar hefndir myndu
þau örugglega hætta að elska
okkur og það verður yfirþyrm-
andi áhyggjuefni í langan tíma
á eftir. Við getum náttúrlega
engum sagt frá þessum tilfinn-
ingum, af einskærum ótta við
að ástandið berist mömmu
eða pabba til eyrna.
I uppvextinum er áfengis-
neysla foreldra eða annarra
sem okkur eru kærir mikið
áhyggjuefni og þungbært.
Barn, sem líður fyrir óhóflega
44 VIKAN 10. TBL. 1991