Vikan


Vikan - 16.05.1991, Qupperneq 58

Vikan - 16.05.1991, Qupperneq 58
STIÖRNUSPÁ HRÚTURINN 21. mars - 19. apríl Visst hópverkefni freistar þín þvi aö þú virðist geta haft á- hrif á þaö. Ferðalag er sennilega ekki á döfinni á næstunni þótt þú sért aö hugsa til hreyfings en þaö er allt í lagi aö áætla fram í tímann. Vertu varkár 25. maí. NAUTIÐ 20. apríl - 20. maí Lund þín léttist eftir þvi sem Iföur á mánuöinn og það skil- ar sér í auknum áhuga fólks á þér. Þú átt betra með það nú en oft áður að einbeita þér að mál- efnum þínum. Þú ert sem sagt í uppsveiflu sem endist fram í næsta mánuð. TVÍBURARNIR 21. maí - 21. júní Nú er að hefjast tímabil þar sem óljósar hugmyndir þínar fá skýrara form. Þú verður því hugmyndarík(ur) og jafnvel af- kastamikil(l) er líður á mánuðinn. Undir mánaöamótin verður góður tími til samningagerða. KRABBINN 22. júní - 22. júlí Þú ert f mjög góðu and- legu ástandi um þessar mundir og allt virðist ganga upp. Það er því ástæðulaust að láta aðra hafa áhrif á skoðanir þínar. Njóttu lífs- ins en vertu samt viðbúin(n) fjár- málaspennu f lok mánaöarins. LJÓNIÐ 23. júlí - 23. ágúst Um þessar mundir skiptir hreinskilnin miklu máli í samskipt- um þínum við fólk. Heppnin virð- ist vera með þér um og eftir hvíta- sunnuna og líkur eru á að í lok maí fáir þú tilboð sem þú verður strax að taka afstöðu til. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. Nýleg mistök stafa af reynsluleysi. Ræktu samband þitt við vini sem vilja þér vel. Hvíta- sunnuhelgin verður ánægjuleg og eitthvað óvænt kemur í Ijós. Það slaknar á athafnasemi þinni í maílok þegar þú byrjar nýtt tímabil sjálfskönnunar. VOGIN 24. sept. - 23. okt. Einbeittu þér að hæfileik- um þínum og notaðu þá. Haltu þig að fólki sem hefur sömu markmið og þú. Samskiptaerfið- leikar hverfa og þú hefur alla möguleika á að skemmta þér vel á næstunni. Gæfan brosir við þér í maílok. SPORÐDREKINN 24. okt. - 21. nóv. Nú er tími til aö hugsa djarflega. Samskipti við fólk í fjar- lægð verka hvetjandi en þó ögr- andi. Þér er alveg óhætt að opna þig svolítið um hvítasunnuna því að nýtt fólk vill kynnast þér ef þú gefur því tækifæri til þess. BOGMAÐURINN 22. nóv. - 21. des. Einbeittu þér að nýjum tækifærum. Ferðalög eru gagnleg um þessar mundir. Nýtt skeið hefst í lífi þínu 26. maí og stórir draumar færast nær raunveru- leikanum. Nú er tækifæri til að taka upp nýja siði sem gætu enst allt lífið. STEINGEITIN 22. des. - 19. janúar Fágaðu framkomu þína þvf að ævintýri er í vændum. Vin- áttusambönd styrkjast með sam- eiginlegum áhugamálum. Hvíta- sunnan verður kannski ekkert sérstök en undir mánaðamót áttu góða daga og hugsar gott til glóð- arinnar. VATNSBERINN 20. janúar - 18. febrúar Þú ert í svolítilli lægð kringum 16. maí svo að þú skalt halda þig út af fyrir þig þar til þú kemst á réttan ijöl. Um og eftir hvítasunnuna fara dagar þínir hraðbatnandi. Þiggðu heimboð og láttu Ijós þitt skína. FISKARNIR 19. febrúar - 20. mars Starf þitt snýst æ meira um sjálfstjáningu. Þú gerir hluti sem þig hefur aðeins dreymt um að gera áður. Gæfan verður þér hliðholl um hvítasunnuna og næstu daga þar á eftir. Ljáðu því sem þú gerir persónulegan stíl. BARFLUGUR Frh. af bls. 36 un í innréttingum flestra þeirra. Dökkur panell í metrahæð frá gólfi, veggir hvítir og flösku- grænir að öðru leyti. Þungur, klossaður bar eft- ir endilöngum vegg. Dökkur steinn á gólfum. Borð og stólar oft úr dökkbæsuöum viði og gamaldags, rósótt plussáklæði á stólum. Á veggjum er tilviljanakennt samansafn mynda í alls konar römmum. Lýsing er dempuð og Ijós- gjafar víða með úreltum, rósóttum plastskerm- um. Þaö er erfitt að segja hvort þessi innrétt- ing, sem virðist ríkjandi á þorra íslenskra kráa, á sér einhverja fyrirmynd. Það hvarflar að manni að fyrstu krárnar hafi kannski átt hana en síðan hafi hinar veriö innréttaðar eftir þess- ari „íslensku" fyrirmynd. Krá fyrir íslenskan meðal-Jón. Þó er eins og breyting hafi átt sér stað upp á síðkastið. Upp hafa sprottið krár sem greini- lega eru innréttaðar með það fyrir augum að skapa sérstakt andrúmsloft eða að höfða til ákveðins hóps fólks. Það er ekki ólíklegt að harðnandi samkeppni um kráargesti hafi haft áhrif á þessa þróun, svipað og gerist í tónlist- inni. Blús-barinn er einn þeirra staða þar sem reynt hefur verið með innréttingum að skapa annars konar stemmningu. Steingólf á móti svartmáluðum veggjum. Létt kaffihúsaborð með tilheyrandi stólum i dökkum lit hjálpa til við að brjóta upp hinn hefðbundna kráarstíl og skapa millistig milli kaffihúsa- og barstemmn- ingar. Einfaldur, yfirlætislaus bar í einu horn- inu, frekar lítill og á vegginn bak við barinn límd plaköt í öllum regnbogans litum, hvertyfir annað. Lýsingin er sterk en litið af henni. Á einu horni barsins liggur bunki af helstu tísku-, menningar- og listatímaritum, eins og til að gefa gestum ilm af alþjóðlegu andrúmslofti. Franskur andi hvílir yfir vötnunum, róleg dreymandi stemmning. Fólk situr jafnvel yfir kaffibolla, sýgur í sig nýjustu strauma heims- menningarinnar og lætur sig dreyma um að vera komið langt í burtu frá íslenskri vetrar- veðráttu sem gnauðar fyrir utan. N-1 bar ber með sér að þeir sem hafa inn- réttað staðinn hafa haft ákveðinn hóp fólks í huga. Strax við innganginn taka leðurjakka- klæddir dyraverðir á móti okkur. Á gólfin hafa verið límdir afgangar úr heimspressunni og lakkað yfir. Veggir eru allir klæddir burstuðu, ryðfríu stáli og hlébarðaskinn, yfirdekkt með glæru plasti, er á stólum og borðum, sem reyndar eru af skornum skammti. Allt er kalt og ópersónulegt. Sama má segja um útlit gest- anna. Þungarokk glymur í eyrum og einhvern veginn fær maður það á tilfinninguna að maður hafi dottið inn í Fellinimynd. Borgarvirkið er eitt dæmi þess að reynt hefur verið að skapa ákveðið andrúmsloft. Yfirdrifið útlit kráarinnar vekur upp þá hugsun hvers vegna maður kom ekki ríðandi á hesti. Þegar inn er komið reiknar maður jafnvel með aö kú- rekaklætt þjónustufólk með spora vísi til sætis. Hugmyndinni um „villta vesturs" stemmningu hefur verið svo vel fylgt eftir að stólarnir eru yfirdekktir með hrosshúð og flaksast faxið eftir sumum þeirra endilöngum. Hér er hægt, þegar næturgleði skemmtanalífsins er í algleymingi, að bregða sér á bak og ríða langt í burtu frá hversdagsbaslinu, yfir grænar sléttur og víð- áttumikil engi. 58 VIKAN 10. TBL. 1991
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.