Vikan


Vikan - 06.02.1992, Page 20

Vikan - 06.02.1992, Page 20
loíregliÞ)4’ i,|o uilfcuo" úr Kóp^YfiSÍi LítilÍtsSSu ^jar9að drukknuný I tmt •• 0,‘' ' -fc.-vifkbru** ■ K:rÆlr;r,.bS‘ w,.UIIV«b.u®1" Ijrlr ■^íSarjar r bl»r*»* l11 Tildrog »>)»*** V°Jf R»ng« bllnum. »«™ r íklB ,06ur I »• u, h»l» ""*»l ,»r » '«g'num- háikunnt !,*m . •* il-^3 , «|l*i6ing*r' rumlcg* ttól I .íturwtvi blb,n knm » v*tt** * » ,u«ltu ilundu ■"“í'i :ar».”“ *• - lllg* Þ»b '"í,rn.n,v6vorulluU» S;"S71,íS'.;: v” S" lllshattu nokkru «l»r »b Fyrir þrettán árum bjargaði Jóhann S. Marteinsson, nú varðstjóri, ársgamalli stúlku úr bíl sem hvolfdi ofan í læk, með því að höggva með exi á ólar sem héldu barnabílstól. Þrjár köfunarferðlr þurfti til en björgunin tókst og Jóhann heldur enn sambandi við stúlkuna. meö sveitinni hvaö varöar útkallshraða og viðbrögö. Ein æfingin var til dæmis þannig sett á svið að þaö átti aö vera vaktmaður í spenni- stöð uppi við Leirdal sem er í umdæmi Kópa- vogslögreglunnar. Átti sá aö vera gísl vopn- aðra manna sem þustu að þeim lögreglu- mönnum sem sendir voru upp eftir, án vitundar um að þetta væri æfing. Þeir áttu fótum fjör að launa og í gegnum fjarskiptin mátti heyra setn- ingar eins og: „Það er skotið á okkur hérna...! “ og greinilegt að mönnum stóð ekki á sama. Sérsveitin var þá kölluð út og hún afgreiddi málið. Valdimar vildi ekki tjá sig um hvernig málið var útkljáð en segir mjög mikið öryggi felast í nálægð sérsveitarinnar. UPPRUNI GRÝLUNNAR Hér að framan minntumst við lítillega á að lög- reglumönnum í Kópavogi væri haldið úti við störf, eftirlit með umferð og eignum. Sá er þetta ritar spurði nokkra sem á vegi hans urðu hvað þeim dytti allra fyrst í hug þegar við þá var sagt: Kóþavogslöggan. Svörin voru á ýmsa lund en engum datt sófasett í hug. „Radar- mælingar!“ sagði einn. „Tékk við Nesti í Foss- vogi," sagði annar og athyglisvert var að allir nefndu einhvers konar eftirlit í þessum dúr, ölvunarathugun ökumanna og hraðamælingar meðal annars. Þetta kalla lögreglumennirnir sjálfir forvarnarstörf sem miða að þvi til dæmis að koma upp um saknæmt atferli áður en skaði hlýst af því. Lögreglan í Kópavogi er með allar klær úti, allan sólarhringinn ef því er að skipta, við for- varnarstörf. Ætli þar sé uppruni grýlunnar kominn? Valdimar vill ekki trúa því að þeir séu neitt meiri grýlur en aðrar löggur. „Ég hugsa að ástæðan sé sú að hér hafi menn verið enn virkari en annars staðar enda hafa menn verið mjög virkir hér í gegnum árin, sérstaklega í umferðinni. Við það verða borgararnir náttúr- lega helst varir." GEGNUM PYNGJU AÐ HJARTA „Þá var eina umferðaræðin til Hafnarfjarðar og Suðurnesja hér í gegn og þess vegna mikil umferð um Kópavog. Því var mikilvægt að halda uppi góðu eftirliti og það var ef til vill vegna mikillar viðveru lögreglunnar i umferð- inni sem þessi grýla kom upp," segir Valdimar og vill ekki meina að menn hafi verið teknir harðari tökum í Kópavogi en annars staðar. Þá hafi hann heyrt utan að sér ýmsar hugmyndir sem fólk gerir sér um þessar starfsaðferðir eins og til dæmis þær að lögreglan fái sjálf til eigin þarfa hluta af því sem innheimtist af fjár- sektum, jafnvel að háar fjárhæðir renni í ferða- sjóði! Hann segir ekkert hæft í slíkum gróu- sögum, lögreglan sé opinber stofnun og allar fjársektir renni beint í ríkissjóð. „Mér sýnist það vera sannleikur að leiðin að hjarta mannsins só í gegnum pyngju hans því að oft er svo að menn hafa margoft verið áminntir án þess að þeir láti sér segjast. Þegar farið er að kæra þá lagast málið. Áherslu- punkturinn er sá að við eigum að vernda borg- arann og viðhalda þvi ástandi sem samfélagið krefst, með því að framfylgja lögunum." Athugun á ástandi ökumanna er einn höf- uðþátta forvarnarstarfsins og þeir sem hafa haft ökuréttindi undanfarin fimm til tíu ár eða lengur muna ugglaust tæplega eftir því að hafa ekið í átt til Hafnarfjarðar eftir Kringlumýrar- braut um helgarnætur án þess að í bilinu milli akbrautanna væri lögreglubíll úr Kópavogi. „Já, við höfðum sérstaklega gott eftirlit þarna því þar höfðu orðið mörg alvarleg slys.“ Við þetta stranga eftirlit komu upp ýmsar aðstæður þar sem fram komu mismunandi viðhorf gagn- vart Kópavogslöggunni. Valdimar og félagi hans stöðvuðu eitt sinn tvo menn á bíl þarna og í Ijós kom að auk þess að vera báðir ölvaðir og á stolnum bíl höfðu þeir skipt á sætum við lækinn því sá sem ók um Reykjavík þorði ekki að keyra í gegnum Kópavog. Enda kom í Ijós að sá ótti var ekki ástæðulaus. Að öllum líkind- um slapp hann þó ekki við refsingu enda á margan hátt brotlegur við umferðar- og hegn- ingarlög. „Ég held að þessi saga skýri ýmis- legt,“ segir Valdimar sposkur á svip. NEYÐARHJÁLP Við höfum nú farið vitt og breitt um lögreglu- sviðið, kynnst lögreglumanninum svolítið inni við beinið og séð ýmsar hliðar á starfi hans. En lögreglustarfið grundvallast fyrst og fremst á jákvæðu samstarfi við borgarann. Því var hald- inn sérstakur dagur, lögregludagurinn, þar sem lögreglan opinberaði sig að miklu leyti, opnaði hús sín og sýndi tæki og tól í sinni eigu ásamt ýmsum hlutum sem gerðir hafa verið upptækir. Þetta tiltæki féll í góðan jarðveg hjá þeim sem sóttu löggurnar heim og varð til þess að margir litu lögregluna ekki eins óblíðum augum á eftir. Þá sinnir lögreglan neyðarhjálparstarfi í samvinnu við slökkvilið og sjúkraflutninga- menn í Reykjavík. Því er þannig háttað að til- kynnt er frá slökkvistöð ef sjúkrabíll eða slökkvilið er sent inn fyrir bæjarmörkin. Með þeim hætti hefur lögregla oft forskot og nær á vettvang á undan öðrum björgunarmönnum. Þau tilfelli eru nú orðin ærið mörg þar sem lög- reglumenn hafa blásið lífi í menn og hnoðað hjarta þeirra í gang eftir hjartastopp. Björgun- arstarfið er því eitt af forgangsverkefnum lög- reglunnar og eitt minnisverðasta atvik úr lög- reglustarfinu í huga Valdimars er af slíku tagi. MINNISSTÆÐASTA MÁLIÐ „Það var þegar við Jóhann S. Marteinsson varðstjóri drógum krakkana upp úr læknum fyrir tæpum þrettán árum. Þá fann maður ár- angurinn af þvi sem maður var að gera. Þann- ig var að við vorum mjög nærri vettvangi þegar jeppi fór á hvolf milli brúa og þá var hátt í sjó þannig að hann fór á kaf. Jóhann kafaði eftir barni sem var fast í bílnum og bjargaði því." Blaðamaður spurði Jóhann S. Marteinsson eftir því hvert væri hans minnisstæðasta atvik í starfi og án þess að hugsa sig um nefndi hann ofangreint atvik sem það minnisverðasta og einnig það gleðilegasta. Hann þurfti að kafa þrisvar til að ná barninu upp úr bílnum, skarst við það á hendi og kældist nokkuð en varð þó ekki varanlega meint af. Stúlkan Katrín, sem hann bjargaði þarna, var þá rétt um eins árs gömul en er nú fermd. Jóhann hefur alla tíð síðan þetta örlagaríka atvik átti sér stað verið í sambandi við stúlkuna og fjölskyldu hennar, hefur fengið jólakort hver jól og hann var einnig viðstaddur fermingu hennar á síðastliðnu ári ásamt Árna Brynjólfssyni sem tók þátt í björg- uninni með honum en hann beitti blástursað- ferðinni meðan Jóhann nuddaði bringu barns- ins til að koma hjartanu í gang. Meðan á sam- talinu stóð lifnaði yfir Jóhanni, yfir svip hans birti og líkt og stoltur faðir talaði hann um Katr- ínu litlu og þau áhrif sem björgun hennar hefur haft á líf hans. Þarna mátti finna gildi starfsins í sinni tærustu mynd - að geta orðið að liði á 20 VIKAN 3. TBL. 1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.