Vikan


Vikan - 06.02.1992, Blaðsíða 65

Vikan - 06.02.1992, Blaðsíða 65
Woman, Ironweed). Framleið- andi myndarinnar er Saul Za- ents sem hefur framleitt myndir eins og One Flew over the Cuckoos Nest, The Lordof the Rings, Amadeus, The Un- bearable Lightness of Being og The Mosquito Coast. Það var fyrst og fremst hug- mynd framleiðandans að gera At Work in the Fields of the Lord því það var hann sem uppgötvaði bókina sem mynd- in er byggð á. Það var árið 1965 sem hann las bókina og varð strax hrifinn af henni. Hann var ákveðinn í að gera myndina og keypti réttindin fyrir 1,4 milljónir dala. Myndin greinir frá tveimur amerískum málaliðum sem leiknir eru af Tom Berenger og Tom Waits. Þeir stökkva niður í fallhlífum og koma niður á Amasonsvæðið þar sem þeir rekast á ameríska trúboða sem eru að kenna þarlendum frumbyggjum (Niarmas-indí- ánum) guðsorð. Yfirvöld á svæðinu bjóðast síðan til að hjálpa málaliðunum tveimur að komast út úr frumskóginum en þeir höfðu stokkið út á vitlausum stað. En það eru ákveðnir skilmálar sem fylgja þessu. Málaliðarnir eiga að sjá um að hrekja frumbyggjana frá Amasonsvæðinu. Málaliðinn, sem Tom Berenger leikur, fellst ekki á þetta vegna þess að hann er hálfur indíáni sjálfur, er Kómansji í aðra ætt- ina. Hann finnurtil með suður- amerísku indíánunum og gengur til liðs við þá. Ásamt trúboðunum ætlar hann að vernda frumbyggjana gegn átroðningi hvíta yfirvaldsins á svæðinu. Kathy Bates aö biðjast fyrir I myndinni At Work in the Fields of the Lord. Einn af aðalleikurum mynd- arinnar, Aidan Quinn, hreifst svo mjög af bókinni sem myndin er byggð á að hann hugsaði sig ekki um tvisvar. Að auki fékk hann stuðning frá eiginkonunni sem hvatti hann til þess að leika í myndinni þar sem hún fjallaði um ameríska indíána, heimkynni þeirra og auðvitað um vandamál regn- skógasvæðisins. Daryl Hannah átti upphaf- lega ekki að leika í myndinni en þar sem Laura Dern (Rambling Rose, Wild at Heart) gat ekki tekið hlutverkið að sér var leitað til Daryl Hannah. Hún hafði aðeins fjóra daga til þess að gera upp hug sinn og hún sá ekki eftir ákvörðun sinni. Hector Babenco, leikstjórinn góðkunni sem gerði óskars- verðlaunamyndina Kiss of the Spider Woman, tók í höndina á framleiðanda myndarinnar, Saul Zaents, einu og hálfu ári áður en tökur hófust. Samn- ingurinn var innsiglaður með þessu handabandi. Myndin hefur boðskap fram að færa. Persóna Toms Ber- enger er í raun að leita að sjálfri sér. Hann leitar uppruna síns þar sem hann er kyn- blendingur. Hann finnur svarið hjá indíánum á Amasonsvæð- inu. Persóna Aidans Quinn, sem er trúboði, leitar að sann- leikanum í lífinu. Hann fær köllun eftir að hafa misst dóttur sína. Síðast en ekki síst eru málefni indíána tekin fyrir í myndinni þannig að myndin er innlegg f ýmis málefni. Að- standendur myndarinnar segja að hún geti jafnvel orðið mál- svari indíána í Suður-Ameríku. Þessi mynd er ótrúlega löng, alls 230 mínútur, en vel þess virði, segja aðstandend- ur hennar. Þess má geta að Grensásvegi10 - þjónar þér allan sólarhringinn FRÍAR HEIMSENDINGAR ALLAN SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR PÖNTUNARSÍMI: 679333 PIZZAHÚSIÐ ▲ Friðsemd, skilningur og trú f myndinni At Work in the Fields ot the Lord. tökuliðið var frá mörgum þjóð- löndum. Um það bil 26 Banda- ríkjamenn, 116 Brasilíumenn, nokkrir Bretar og Ástra- líumenn auk sex Mexíkana unnu að gerð myndarinnar. Auk þess léku 124 suður- amerískir indíánar. Laugarásbíó fær myndina til sýninga áður en langt um líður. 3. TBL.1992 VIKAN 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.