Vikan


Vikan - 06.02.1992, Blaðsíða 33

Vikan - 06.02.1992, Blaðsíða 33
þetta á besta stað í blaðinu og vertu ekkert að skrifa mikið um Hemma. Hann hefur ekki gott af því strákurinn enda er hann bara aðstoðarmaður hér hjá okkur f Sjónvarpinu," segir kallinn, kemur sér makinda- lega fyrir í stólnum og nýtur þess að vera í viðtali. Snyrtir á sér neglurnar um leið og hann talar. „Já, ég bý einn, þakka þér fyrir. Mér finnst það best. Þá get ég eldað sjálfur minn upp- áhaldsmat og svona. Hafra- graut og lifrapylsu, svo ég tali nú ekki um signa ýsu og soðið hrossakjet sem er algjört hnossgæti. Já, svo mikið hnossgæti. Nei, ég hef ekki síma, elsku besti. Hvernig heldurðu að það væri? Ekki stundarfriður fyrir alls konar blaðamönnum, Ijósmyndurum, útvarpsfólki og svoleiðis fólki. Það er helst að ég skreppi út f sjoppu og hringi í Hemma, svona til að láta hann vita hvað á að vera í næsta þætti og svoleiðis.1' Dengsi lítur flóttalega í kringum sig og sýg- ur upp í nefið. „Jú, ég var skírður Daníel Hellerup og er alinn upp að hluta f Danmörku - nánar til- tekið á Hellerup-búgarðinum á Jótlandi. Svo hef ég aðallega verið í Hafnarfirði. Það er besti bær, það held ég nú. Ég er mjög, mjög lífsreyndur maður, skal ég segja þér, án þess að ég vilji fara svo naujið út í það. Það eru ótrúlegustu hlutir sem ég hef fundið upp. Þess vegna er ég svona eftirsóttur, jaaaá vinur minn, þú ert að tala við reyndan rnann." - Hvað er það helsta sem þú hefur unnið þértil frægðar? „Ja, ég hef nú til dæmis stofnað margar frægar hljóm- sveitir, leikstýrt mörgum fræg- um kvikmyndum og fundið upp alls konar tæknibrellur sem hafa orðið heimsfrægar. Svo hef ég fundið upp alls konar „sjó“ og ... jæja, þið eruð allt- af að skrifa þarna á Vikunni, er það ekki?" - Jú, jú, en hver þessara listgreina, sem þú hefur unnið við, er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ja, það er nú af mikilli glás að taka en ætli ég sé nú ekki bestur í dansinum. Ég er mjög mjög góður dansherra, einn sá spengilegasti, segja stelpurn- ar enda er ég léttur á fæti og æfi viðstöðulaust. Mér finnst rællinn til dæmis fjarskalega skemmtilegur, enski valsinn er fullhægur fyrir mig en það jafn- ast ekkert á við sprellfjörugan polka. Já, polkinn er svo fjörugur og skemmtilegur, hann er nefnilega svo svaka- lega skemmtilegur. Svo finnst mér gasalega gaman að dansa eftir uppáhaldslaginu mínu, Traustur vinur. Það er svo mikið gaman. Jæja, vinur minn, var það eitthvað fleira?" - Já, endilega. Ertu ekkert að skemmta svona f einka- samkvæmum og á árshátíð- um? „Blessaður vertu, það er legið í mér alla daga en ég er voða mikið hættur að nenna þessum þeytingi. Ég er alltaf að kenna Hemma nýjustu trikkin. Það tekur mikinn tíma, skal ég segja þér og hann sem aðstoðarmaður minn verður náttúrlega að standa sig í stykkinu. Það er nú annað hvort, ég þekki það af því ég hef farið svo víða, já, svo svakalega víða. Hvað seg- irðu? Mikið fyrir ferðalög? Jú, A „Þær eru óteljandi, hljóm- sveitirnar sem ég hef fundið upp og stofnað. Þessi hérna á að heita Danshljóm- sveit Dengsa eða Dengsi 09 dýravinirnir. Eg er ekki alveg búinn að ákveða það.“ Með Dengsa eru þeir Grétar Örvars- son, Friðrik Karlsson og Pétur Kristjáns- son. ◄ „Við erum eiginlega þrir sem ráðum öllu,“ segir Dengsi sem alitaf er á staðn- um ef teknar eru myndir. Egill Eðvarðsson, stjórnandi útsendingar, Hemmi Gunn og Dengsi. ◄ „Þetta eru svo yndisleg börn sem hann Pétur á,“ segir Dengsi. „Jaaaá, svo yndisleg. Ég spilaði svo mikið með afa þeirra, honum KK, í gamla daga. Það er nú það.“ Pétur Kristjánsson og börnin hans, íris og Kristján Karl, í félagsskap Dengsa. 3.TBL. 1992 VIKAN 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.