Vikan - 06.02.1992, Blaðsíða 53
Slegið á létta strengi í leikhléi. Skúli fylgist
sposkur með tilburðum Steinunnar Ólinu og
Hjartar Howser.
STÓRBORGAREITRUN
Lilja fær eiginlega stórborgareitrun, er viö það
aö fá nóg og vill halda heim á leiö en örlögin
taka í taumana, faöir hennar birtist henni á
dansleik, maöur sem hún aldrei áöur hafði séð
enda haldið mömmu sína og pabba í sveitinni
raunverulega foreldra sína. Aö þessu komst
hún raunar áöur en á mölina var haldið, móöir
hennar haföi skilið hana eftir hjá systur sinni og
manni hennar áöur en hún fór til Ameríku.
Skemmst er frá því að segja aö Sonní er
ekki allur þar sem hann er séöur, flagð undir
fögru skinni, og hinn tilætlaði kærasti, Addi,
sem leikinn er af Felix Bergssyni, reynisf
áflogahundur hinn mesti, drykkjusvoli og vand-
ræöabarn þó hann sé í raun hinn vænsti
náungi. Hann var fórnarlamb aöstæðna og tók
þaö nærri sér enda kemur í Ijós þegar hann
kemur til Reykjavíkur að hann er góði gæinn.
Reyndar fór aö lokum ekki svo sem reikna
mátti meö en rétt er að leyfa leikhúsgestum á
Akureyri að reyna hversu höfundurinn, Valgeir
Skagfjörð, hefur mundað pennan og eiginlega
brotið upp endi sem vænta mátti allan tímann
þó finna megi fyrirboða þess í síðasta erindi
upphafssöngsins en þar segir:
„Nú upprís að nýju vort kornunga íslenska
merki, og ekki nein amerísk stjarna er stöguð í
það, því þjóðin hún hefur nú sýnt það og sann-
að í verki, hve sælt er að elska hvert strá og
hvert blóm og hvert blað.“
Tiltölulega rólegt hjá Ingrid og Þórdísi en Skúli
gerir sig til alls líklegan. Betur fór þó fyrir Stein-
unni Ólínu en myndin gefur til kynna.
SKEMMTILEGUR BOXARI
Leikurinn er góður og skemmtilegur og gaman
var að fylgjast með innlifun leikhúsgesta sem
til dæmis mátti sjá á því að þegar Lilja segir
Sonní Carlsson að verða að manni kveður
kona stundarhátt við í miðjum sal: „Já!“ - og
þar fram eftir götunum. Þá sýndi Jón St. Kristj-
ánsson skemmtilega takta í hlutverki Villa box-
ara, sýndi ótrúleg svipbrigði. Frumskilyrði í
söngleik er þó að leikarar hafi þær raddir og
leikhæfileika til að bera sem halda áhorfand-
anum föngnum, hann fari ekki að líta til ann-
arra átta, fylgist með Ijóði og lagi. Þetta tekst í
Tjútti og trega, einvalalið.
Helst til langt mál væri að telja upp hvern og
einn sem lagði hönd á þennan dugmikla og
fjörlega gamanplóg en sérstaklega er
skemmtilegt að fylgjast með Greifanum fyrr-
verandi, Felix Bergssyni, og
Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur
en þau ásamt Skúla Gautasyni
fara með þrjú af helstu hlutverk-
unum og ferst það vel úr hendi
sem hálsi. Við skulum nú skyggn-
ast að tjaldabaki og hitta þau þrjú,
höfundinn Valgeir Skagfjörð,
Þráin Karlsson og hundinn hans.
ÞRJÚ EFTIR
Til að byrja með rifjar Valgeir upp
hvernig Tjútt og tregi er til komið.
Fyrst lagði hann fyrir söguþráð og
sjö lög sem meginhugmynd að
Tjútti og trega en nú standa þrjú
laganna eftir auk þeirra sem til
komu eftir að hann byrjaði að
semja söngleikinn fyrir alvöru. En
þrátt fyrir að lögunum hafi í upp-
hafi fækkað segir hann fólk hafa
frá byrjun haft trú á að söngleikur-
inn gæti orðið að veruleika. Uppi-
staða þeirra hugmynda sem hann
gerir sér um stemmningu þessa
tíma kemur frá gömlum Ijósmynd-
um og viðtalsbókum ásamt kvik-
myndum en hann var sjálfur ekki í
heiminn borinn fyrr en árið eftir að
söngleikurinn á að gerast. „Úr
heimildunum vinnur undirmeðvit-
undin síðan," bætir hann við.
1. tbl. 1992 4. árg. Vorft kr. 450
jESL r
f‘JL w
FULLNÆGING
BRJÓSTIN
OG KYNLÍFIÐ
B&B HEIMSÆKIR
RÓMEÓ OG JÚLÍU
BREYTILEG
KYNLÍFSHEGDUN
HVERNIG MÓTAST
KYNLÍFSSKOÐANIR?
GETULEYSI
KVENNA
ÞROADRI
iéö^mök
SETTUR í. . .
Tónlistin er auðvitað í anda tímans og Valgeir
segist búa vel að því að grammófónninn hafi
óspart verið notaður á æskuheimili hans og
fjölskyldan verið tónelsk með afbrigðum. Þá
hefur hann sjálfur iðkað tónlistina mikið. „Ung-
ur var ég settur í barnamúsíkskóla til Stefáns
Edelstein og í framhaldi af því var ég settur í
píanónám... “ Augnablik! Hér verður ekki við
unað án frekari útskýringa. Settur, settur,
hvað? Fékk hann engu ráðið? „Nei, nei, barnið
átti náttúrlega að verða stórkostlegt," segir
hann og glottir við tönn.
Valgeir hefur nú nálgast kaffikönnuna sem
var utan seilingar og sett hana á borðið. Felix
heldur því fram að Valgeir sé stressaður að
eðlisfari og sá síðarnefndi jánkar því með
semingi, alveg rólegur eins og er, bara svolítið
kvefaður. Enda hefnist Felix fyrir að halda
þessu fram um leikstjóra sinn þegar hann
hyggst notfæra sér góðgjörðir Valgeirs. Felix
mundar kaffikönnuna yfir bollanum en tappinn
Á SÖLU
STADU
/ /
ASKRIFTARSIMI
3.TBL.1992 VIKAN 53