Vikan


Vikan - 06.02.1992, Qupperneq 46

Vikan - 06.02.1992, Qupperneq 46
TÐCTI: HJALTIJÓN SVEINSSON / LJÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON SALARKIMINN SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR LESENDUM næsta tölublaöi Vikunnar hefst nýr þáttur, SÁLAR- KIMINN. Þar mun Sig- tryggur Jónsson sálfræðingur svara spurningum lesenda um hin ýmsu málefni sálfræöilegs eðlis. Sigtryggur hefur rekiö eigin sálfræðistofu síðan 1985 og hefur getið sér góðan orðstír. Þau mál sem hann leysir úr fyrir sjúklinga sína - og mun leitast við að leysa fyr- ir lesendur Vikunnar - eru meðal annars varðandi per- sónuleg vandamál, fjölskyldu- vandamál, á sviði kynlífs, áfengis- og vímuefnaneyslu og svo framvegis. Auk fyrr- greindra málaflokka hefur Sig- tryggur áhuga á að leiðbeina lesendum um sambúðina og hjónabandið. Sigtryggur er ekki óvanur því að koma til liðs við al- menning á opinberum vett- vangi. Margir muna til dæmis eftir því er hann sat fyrir svör- um í unglingaþætti á Rás 2 veturinn 1985-1986. í fram- haldi af því ritaði hann bókina Kæri sáli sem kom út skömmu síðar. Um skeið var Sigtryggur einnig með þætti á Bylgjunni og á tímabilinu 1989-1990 skrifaði hann vikulega pistla í Þjóðviljann, þar sem hann fjall- aði um fjölskylduna. Átt þú við sálarlegan vanda að stríða? Líður þér til dæmis illa vegna einhvers sem er að brjótast í þér? Áttu við erfið- leika að etja í hjónabandinu eða á heimilinu? Er kynlífið ekki sem skyldi... ? Ef svo er skaltu ekki hika við að skrifa til Sigtryggs. Þú þarft ekki að skrifa undir nafni frekar en þú vilt því að þau bréf sem birt verða og Sigtryggur svarar veröa öll nafnlaus. □ f tra mmdstKkkarinn akodak SJÁLFVIRKUR MYNDSTÆKKARI Hans Petersen ht. i Kringlunni í Reykjavík hefur nú tekið í notk- un sjálfvirkan „myndstækk- ara“ sem viðskiptavinir eiga sjálfir í fullu tré við. I tæki þessu er sögð sameinast Ijós- myndatækni og háþróuð raf- eindatækni á snilldarlegan hátt. Viðskiptavinurinn þarf ekki annað en setja bút með fram- kallaðri filmu í sérstaka rauf á tækinu. Myndstækkarinn les þá af filmuræmunni hvaða Viðskiptavinurinn fær stækkun- ina i hendur innan fimm mfn- útna. filmugerð á í hlut, hver lýsingin er og svo framvegis. Næst birtist myndin á sjónvarpsskjá og með stjórntökkum getur nú viðskiptavinurinn valið úr ýms- um kostum - til dæmis hvort hann vill hafa myndina lárétta eða lóðrétta í rammanum, hvort stækka skuli ákveðinn hluta myndarinnar og þar fram eftir götunum. Unnt er að velja myndstærðirnar 13x18 sm til 28x35 sm. Þegar viðskipta- vinurinn hefur gert upp hug sinn að fullu þarf hann ekki annað en að styðja á hnaþþ og fær þá stækkunina fullbúna innan fimm mínútna. □
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.