Vikan - 16.04.1992, Síða 6
HÖSKULDUR JÓNSSON, FORSTJORI ATVR I
HEIMURINN DREKKUR
UNGVIN
O
co
co
d;
O
2!
o
<
co
o
o
13
o
<
nz
O
▼ Höskuld-
ur við vín-
smökkun i
húsakynnum
ÁTVR aö
Stuðiahálsi,
en þar hetur
verið komiö
upp sérstakri
aðstöðu í
þessum til-
gangi.
Sum léttvín hata veriö
svo lengi á skrá hjá
ÁTVR aö þeir sem þar
starfa nú hafa enga hugmynd
um hvernig þau eru þangað
komin. Höskuldur Jónsson for-
stjóri segir þessi vín vafalaust
hafa þótt góð og gegn á sínum
tíma en sum þeirra prýöa enn
vínlista „Ríkisins" þó aö margt
hafi breyst á þeim sléttu sjötíu
árum sem liðin eru frá því aö
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hóf innflutning á léttum
vínum.
„Sem betur fer veröa alltaf
breytingar á vínlistanum okkar
en þær eru yfirleitt mjög hæg-
ar þannig að um mikinn hluta
vína, sem viö flytjum inn í dag,
verður ekki sagt annað en aö
þau séu þar á sögulegum for-
sendum," segir Höskuldur
þegar hann hefur boðið blaða-
manni upp á kaffi og með því,
það er að segja kökur. Vikan
hefur lengi fylgst með vín-
markaðnum og nú er komið að
léttvínunum. Helst er innflutn-
ingur þeirra hafður í huga,
bæði hvað varöar einstaklinga
sem og veitingamenn því að í
tímans rás verða alltaf ein-
hverjar breytingar á vinteg-
undum auk þess sem neyslu-
venjur og tíska hafa sitt að
segja i þessum efnum eins og
öörum. Og hér er breytinga að
vænta sem við komum að síð-
ar en snúum okkur fyrst að
þeim sjónarmiðum sem ráða
við val ÁTVR á þeim vínteg-
undum sem fluttar eru inn.
AUKAEFNI OG EITUR
„Við höfum reynt að fylgja
þeirri stefnu að helstu vínrækt-
arlönd og vínræktarhéruð,
sem við eigum viðskipti við,
séu vel þekkt og aö þau bjóði
upp á það sem fellur að ís-
lenskum markaði. Hér má
nefna til dæmis vín frá helstu
vínræktarhéruðum Frakk-
lands, Spánar og Ítalíu
en auk þess höfum við reynt
að bjóða vín frá Ungverja-
landi, Rúmeniu og Búlgaríu.
Einnig höfum við vín frá
Bandaríkjunum og þá Kali-
forníu einna helst. Vín frá
Chile höfum við boðið á sér-
lista en eftir þeim hefur verið
töluverð eftirsþurn og því get-
ur verið að vín frá þvi landi fái
inni á aðalsölulista okkar. Við
reynum einnig að velja vín eftir
berjategundum, blönduöum
eða einberjategundum.
Reynslan hefur þó sýnt að það
er ekki mikil eftirsþurn eftir vín-
um úr ákveðnum berjategund-
um.
Við fylgjumst með innkaup-
um hjá einkasölunum á
Norðurlöndum. Þær eru þekkt-
ar fyrir aö vanda val; strangt
eftirlit er meö neysluhæfi vína
og ekki flutt inn vín nema
kannaö sé magn og tegundir
aukaefna sem i þeim kunna
að leynast. Það er mjög gott
að eiga aðgang að upplýsing-
um frá þeim því það er dýrt að
fá vín rannsökuð.
Til dæmis hefur það gerst
tvívegis frá árinu 1986 að á al-
þjóðlegan markað hafa komið
vín með aðskotaefnum. Ann-
ars vegar var frostlögur í aust-
urrískum vínum og hins vegar
var um að ræða tréspíra í
ítölskum," segir Höskuldur og
bendir á dálk í verðskrá yfir
vín þar sem tiltekin eru auka-
efni í víninu.
SUMIR MEÐ OFNÆMI
„Einstaka sinnum getur komið
fyrir að neytendur þurfi á upp-
lýsingum um aukaefni að
halda vegna ofnæmis. Þaö er
til dæmis þekkt meðal bjór-
neytenda að sumir þeirra hafa
ofnæmi fyrir rotvarnarefnum
sem sett eru í bjór. Af þessum
sökum er okkur mjög illa við
að flytja inn vörur frá fram-
leiðendum sem við þekkjum
hvorki haus né sporð á,“ segir
Höskuldur og á hér til dæmis
við það þegar fólk kemur er-
lendis frá þar sem það hefur
fengið „eitthvert það besta
vín“ sem inn fyrir varir þess
hefur farið og óskar þess að
Áfengisverslunin panti það.
„Hvernig vín er munað getur
nú verið háð stemmningunni
sem ríkir á hverjum stað og
tíma þegar þess var neytt.
Þegar vínið kemur síðan hing-
að er alls ekki sama bragð af
því og fyrsta reynsla sýndi svo
dæmi sé tekið,“ bætir
Höskuldur við.
MILLJÓN LÍTRAR
Starfsmenn Áfengisverslunar-
innar prófa vín sem til greina
kemur að setja á aðalsölulist-
ann. „Ef okkurfinnst vínið vont
þá tökum við það ekki en ef
okkur líkar þaö kemur það til
greina. En það eru þúsundir
vína í veröldinni og mikill hluti
þeirra er góður þannig að eng-
inn vegur er að taka allt inn.“
Hefur Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins menn á sínum
snærum við smökkun og slíkt?
„Við höfum hér starfandi mat-
vælafræðing sem hefur lagt
vínsmökkun fyrir sig en síðan
reynum við að fá upplýsingar
um sölu hvers víns og eftir-
spurn þó að það þurfi ekki
endilega að þýða að um bestu
vínin sé að ræða,“ svarar
Höskuldur. í húsakynnum
ÁTVR á Stuðlahálsi hefur ver-
ið tekið í notkun sérstakt her-
bergi til vínsmökkunar með
þar til gerðum vöskum til að
hægt sé að spýta veigunum út
úr sér eftir að hafa velkt þeim
jaxlanna á milli. Aðstaðan sú
er fyrst og fremst hugsuð sem
kynningarstofa fyrir aöila sem
hafa sérstakan áhuga á vínum
svo og þá sem hafa af þeim at-
vinnu á einhvern hátt.
Eitt af því sem almenningi
jafnt sem fagfólki í veitinga-
rekstri býðst að notfæra sér