Vikan


Vikan - 16.04.1992, Blaðsíða 37

Vikan - 16.04.1992, Blaðsíða 37
JÓNA RÚNA KVARAN SKRIFAR VÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: Skyldur Flest höfum við sem bet- ur fer einhverjum skyld- um að gegna og gengur auðvitað misjafnlega að fram- fylgja þeim og leysa þær af hendi. Þegar við erum í skóla- kerfinu verðum við að sætta okkur við að okkur eru ætl- aðar ýmsar misskemmtilegar skyldur. Við sem venjum okkur á að láta skyldur ganga fyrír til dæmis skemmtunum erum sem betur fer vel stödd þegar til dæmis kemur að því að taka próf og skila verkefnum. Vissulega verðum við að sinna vinnu okkar vel hvort sem hún tengist skyldum heimilis eða vinnumarkaðar- ins. Trúmennska er mikilvæg í samskiptum okkar hvert við annað og afleitt ef við van- rækjum eða sláum slöku við það sem augljóslega teljast okkar skyldur, hvort sem er við okkur sjálf eða aðra. Við sem eigum börn og vilj- um veg þeirra sem mestan verðum að vera býsna árvökul í allri okkar aðhlynningu þeim til handa. Foreldri sem van- rækir sjálfsagðar skyldur við börnin sín, eins og þær til dæmis að hlú að þeim á já- kvæðan og kærleiksríkan máta, auk þess að veita þeim öryggi, jafnt tilfinningalegt og félagslegt, er með einhverjum hætti að bregðast börnunum. Þeir sem vanrækja jafnframt þá skyldu sína að veita börn- um sínum skjól friðar og jafn- vægis vanmeta gróflega skyldur sínar við þau. Það er beinlínis skylda okkar foreldr- anna að veita af trúmennsku börnum okkar uppfræðslu sem er grandvör og kristileg og líkleg til að auka líkur barn- anna okkar á heiðarlegu og hamingjuríku lífi í uppvextin- um. í tilfinningamálum okkar sem eldri erum er mikilvægt að átta sig á að jafnframt því að hafa skyldur við okkur sjálf, sem liggja meðal annars í því að efla og hlú að öllu því sem gerir okkur að heilsteyptum manneskjum, höfum við miklar og margþættar skyldur við þá manneskju sem við óskum að tengjast tilfinningalega. Öll vanræksla á hollustu gagnvart væntanlegum lífsförunaut er hnekkur sem veldur viðjum vandræða fyrr eða síðar. Eng- in ástæða er til að ástunda neins konar eftirgjöf hvað varðar til dæmis sjálfsagðar skyldur tengdar maka. Við verðum að axla ákveðna ábyrgð í öllum tilfinningasam- böndum og temja okkur að vera árvökul og samviskusöm í aðhlynningu þeirra tilfinninga sem við gefum líf. Annað er lít- ilmótlegt og ósanngjarnt. Við höfum skyldur gagnvart samfélaginu og verðum að efla af kostgæfni alla þá sam- mannlegu reynsluþætti sem falla undir samhygð og trú- mennsku. Ekkert þjóðfélag getur staðið af sér stríð efna- hagslegra, heilsufarslegra og náttúrlegra breytinga nema þegnar þess kunni af skyldu- rækni og eðlislægri sam- viskusemi að efla flest það sem reynst getur heppilegur styrkur fyrir heildina, ekkert síður en okkur sjálf. Trúmennska er aðall þess sem hana ástundar en van- ræksla fjötrandi og lítil prýði í fari fólks og veldur oftast vand- ræðum og hana nú. □ Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík sími: 39990 Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari, Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir, Þórunn A. Gylfadóttir, Halla R. Ólafsdóttir. 4 Ek 676330 HVERAFOLD 1-3 GRAFARVOGI HOFUÐLAUSNIR HÁRSNYRTISTOFA v Hársnyrtistofa Lóuhólwn 2-6 (Hólagarði) S. 72653 hArsnyrtistofan a QRAriDAVEQI 47 0 626162 Hársnyrting fyrir dömur og herra OPIÐ A LAUQARDÖOUM SÉRSTAKT VT.RD FYRIK CLLlLlPCYRlSPEQA Veitum 10% afslátt Við afhendingu þessa korts! Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreiðslumeistari lielena Hólm hárgreiðslumeistari Ásgerður Felixdóttir hárgreiðslunemi \mt13314 <unsi X mARA- & HÁRCjRE/ÐSCMSTDFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK 8. TBL.1992 VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.