Vikan


Vikan - 16.04.1992, Page 56

Vikan - 16.04.1992, Page 56
56 VIKAN 8. TBL. 1992 þykir hvað öðru flottara, hið fyrra betra en hið síðara og þar fram eftir götunum. Hárfínar fyrirsæturnar, sitjandi eða standandi, þurfa síðan að bíða þess að dómararnir hafi lokið sér af, farið í hár saman og hárrétt dómgæsla viðhöfð. Sjálfsagt er þær sumar farið að langa að reyta hár sitt en stranglega bannað er að kemba glerfínar keppnishærurnar á sviðinu. Ekki vitum við hvort fyrirsætur þær sem þarna voru staddar eiga vanda til að reyta hár annarra. Þó hefur þetta fólk boðið fagfólki að kemba hærur sínar en gamalt máltæki segir eitthvað á þessa leið: Sá býður sitt hár er annars reytir. Eftir því sem best varð séð voru fyrir- sæturnar þó til mikillar fyrirmyndar og friðs að keppni lokinni og ekki hafa gengið fjallháar sögur af hártogunum í kjölfar hennar. Óhætt er að segja að höfðað hafi verið til flestra þátta láðs, lagar og lofts í þess- ari keppni en það var tímaritið Hár og fegurð sem stóð fyrir henni. Höfuðatrið- ið var að aliir gætu skemmt sér og fag- fólk lagt höfuðið í bleyti þannig að þeir fjölmörgu sem ekki létu undir höfuð leggjast að koma til keppninnar fengju notið þessarar höfðinglegu skemmt- unar. Og að hætti íþróttaandans fögn- uðu keppendurnir hver öðrum þegar úrslit voru kynnt og enginn þeirra hefur síðan hvorki sést berja höfði sínu né fyrirsætu sinnar við hinn fræga stein, enda ekki til neins, höfuð og herðar koma sárir seint til með að bera yfir aðra. LANGAR ÞIG LÖGLEGA TIL BANDARÍKJANNA? Með öruggum samtökum með mikla reynslu? Þá eru „Au Pair in America" réttu samtökin tyrir þig. Samtökin hafa sent 13.000 ungmenni á aldrinum 18-25 ára á síðustu sex árum. í BOÐI ER: Fríar ferðir ♦ Frítt fœði og húsnæði ♦ Fjögurra daga námskeið í New York, dvalið á fjögurra stjörnu hóteli á Manhattan þér að kostnaðarlausu ♦ Frítt námskeið í bandarískum skóla ♦ 6.000 ísl. kr. á viku í vasapening. ♦ 15.000-100.000 USD sjúkra- og slysatrygging í 13 mánuði ♦ Vegabréfsáritun J-1 í 13 mánuði G Klúbbur Au Pair með afsláttarkorti í versl- anir, ársáskrift að tímariti sam- takanna svo og skemmtileg gjöf til þín ♦ Sérþjálfaður ráðgjafi úti allt árið ♦ Brottför í hverjum mánuði ♦ ATH.: Engin um- sóknargjöld ♦ Kynntu þér mál- ið hjá fulltrúa samtakanna, Bergllndi Hallgrímsdóttur. Sími 91-611183. rfmsK

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.