Vikan


Vikan - 16.04.1992, Blaðsíða 84

Vikan - 16.04.1992, Blaðsíða 84
UNDA KAREN KETTLER Linda Karen Kettler er fædd í Vestmannaeyjum en fluttist fljótt til Reykjavíkur. Hún er nítján ára, fædd í krabbamerkinu, 18. júlí 1972. Linda Karen útskrifast nú í vor frá Kvennaskólanum. Skólafélag- arnir ætla í útskriftarferö til Mall- orca en þegar heim kemur fer Linda aö vinna við garðyrkjustörf eins og hún geröi í fyrrasumar. Henni finnst frískandi og gaman aö vinna úti og segist þar að auki vinna meö yndislegum stelpum. Hvaö svo tekur við hjá Lindu er alls óráðiö en hana langar aö fara til Englands og Frakklands á meöan hún hugsar sig um hvað áframhaldandi nám varðar. Nám í ensku eða frönsku í Há- skólanum kemur til greina en svo gæti allt eins farið að við ættum eftir að sjá Lindu Karen á sviði einhvers leikhúsanna því leiklist- arnám er henni líka ofarlega í huga. Það er því skiljanlegt að hún var valin formaður leikfélags Kvennaskólans í fyrra og lék sjálf með. Henni hafa verið falin fleiri störf í skólanum því hún varfram- kvæmdastjóri söngkeppni fram- haldsskólanna i sínum skóla. Hún hlustar líka mikið á tónlist og „pælir" mikið í henni, eins og hún segir. Óskastarfið er eitthvað það sem tengist leik- eða sönglist. Linda Karen leggur mikla áherslu á að stunda líkamsrækt því hún segir það orsaka miklu betri líðan, bæði andlega og lík- amlega. Hún hefur bæöi lagt stund á ballett, djassballett og er- óbikk. Linda hefur ferðast mikið með foreldrum sínum og um tíma bjó fjölskyldan í Austurríki en þaðan er faðir hennar. Hún hefur komið til Þýskalands, Grikklands, Ítalíu, Lúxemborgar, Frakklands og Spánar, auk Austurríkis, en langar að komast til Tíbet og Suð- ur-Ameríku. Um þessar mundir er hún að vinna að ritgerð um indí- ána og menningu þeirra, svo og inka og viðfangsefnið heillar hana. Draumaferðin er að hennar mati óhefluð ferð um Himalaja- fjöll. Þegar öllum ævintýrum er sleppt langar hana að vinna að því að eignast gott heimili og fjöl- skyldu. Foreldrar Lindu Karenar eru Ágústa Óskars Kettler og Ernst Kettler. Hún á tvö systkini og er i miðið. Linda Karen er 178 sm á hæð. Hún er dökkhærð og bláeygð. PÁLÍNA SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Fegurðardrottning Norðurlands er Pálína Sigrún Halldórsdóttir. Pálína er að verða tvítug, fædd 29. maí 1972 á Húsavík og er í tvíburamerkinu. Hún ólst upp á Tjörnesi en býr núna á Akureyri par sem hun stundar nám á félagsfræðibraut Menntaskólans. Pálína útskrifast í vor og ætlar þá að fara að vinna til að safna sér fyrir námi við Bændaskólann á Hólum. Þangað fer hún aðal- lega til að læra að temja hross og hirða um þau en hefur ekki hugs- að sér að verða bóndi. Pálínu langar því næst að vinna í stuttan tima á búgaröi í Þýskalandi eða Hollandi til að skoða sig um og fylgjast með hrossarækt í öðrum löndum. Það kemur því ekki á óvart að fyrst áhugamála telur Pálína hestamennsku en hún stundar líka blak og hefur gaman af að fara i bíó. Undanfarin sumur hefur Pálína unnið ýmis störf, svo sem í sjoppu, bókabúð og frystihúsi og á haustin vinnur hún í sláturhúsi, sem hún segir að megi alveg venjast. Hún hefur farið hringinn um landið, að undanskildum Vestfjörðunum. Hún hefur líka heimsótt Spán og Þýskaland. Til þess að geta framkvæmt allt sem hér hefur verið nefnt ætlar Pálína að bíða með barneignir en hefur alltaf hugsað sér að eignast tvö til þrjú börn. Eiginmanninn segist hún vonandi vera búin að finna. Heima á Tjörnesi á Pálína hest og fjölskyldan hund og kindur. Foreldrar hennar eru Mary Anna Guðmundsdóttir og Halldór Sigurðsson. Hún á þrjá yngri bræður. Pálfna Sigrún er 168 sm á hæð, Ijóshærð, með mógræn augu. 84 VIKAN 8. TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.