Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 68
HONNUN: JOHANNA HJALTADOTTIR
PEYSUR
ÚR VÉLÞVÆGU BANDI
FRÁ ÍSLENSKUM '
TEXTÍLIÐNAÐI HF.
— Endurtakið
[XI Aðallitur
I | Aukalitur
Skiptið um aukalit eftir
hverjar 3 umf með
aðallit í „krókamunstri".
Band: FLÓRA ffrá ÍSTIX HF.
STÆRÐ: 4 6 8 10 ára
Yfirvídd: 81 86 89 94 cm
Sídd: 42 47 51 54 cm
Ermalengd: 28 32 36 40 cm
EFNI: FLÓRA -100% nýull (vélþvæg ull)
Aðallitur: 100 100 150 150 g
3 aukalitir - hver litur: 50 100 100 100 g
PRJÓNAR:
Hringprjónar nr. 4 og 4 1/2, 60 cm langir.
Hringprjónn nr. 4 1/2, 40 cm langur.
Sokkaprjónar nr. 4 og 4 1/2.
PRJÓNFESTA: 18 lykkjur og 23 umferðir
slétt prjón = 10 x10 cm á prjóna nr. 4 1/2.
SKAMMSTAFANIR: L = lykkja(-ur), umf =
umferð(-ir), sl = slétt, br = brugðið, prj =
prjónið.
BOLUR: Fitjið upp með aðallit 120-128-140-
148 L á hringprjón nr. 4. Tengið saman í
hring og prj 2 L sl, 2 L br 4-4-5-5 cm, gjarnan
má prj 2 umf með skærasta aukalitnum um
mitt stroff. Prj 1 umf sl og aukið út 25-27-20-
22 L. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 1/2 og prj
munstur skv. teikningu. Prj þar til allur
bolurinn mælist 25-29-31-33 cm. Skiptið L til
helminga og merkið miðjuL undir höndum,
aukið út 2 L í miðjuL hvorum megin, prj
þessar 3 L br upp bolinn. Prj áfram munstur
þar til allur bolurinn mælist 37-42-46-49 cm.
Setjið 24-26-28-30 L fyrir miðju á framstykki á
prjón eða band. Fitjið upp 3 L á milli og prj
áfram í hring þar til allur bolurinn mælist 42-
47-51-54 cm. Felliðaf.
ERMAR: Fitjið upp með aðallit 32-32-36-36 L
á sokkaprjón nr. 4. Tengið saman í hring og
prj stroff eins og á bol 4-4-5-5 cm. Prj 1 umf
sl og aukið út 8-8-9-9 L. Skiptið yfir á prjóna
nr. 4 1/2 og prj munstur, aukið út undir hendi
2 L í 4. hverri umf 5 sinnum og í 5. hverri umf
7-9-10-12 sinnum. Þegar ermin mælist 28-
32-36-40 cm eru prj 3 umf með aðallit og fellt
af frá röngu.
FRÁGANGUR: Gangið vel frá öllum lausum
endum. Saumið í vél með beinu þéttu spori 2
sauma hvorum megin á litla haftið milli axla
og 2 sauma hvorum megin við miðL í hand-
vegum. Klippið varlega upp á milli sauma.
Saumið axlasauma og takið upp með aðallit
64-68-72-72 L í hálsmáli á prjóna nr. 4. Prj 1
umf sl, 1 umf br, 2 umf sl. Prj 2 umf þannig: 2
L aðallit, 2 L aukalit sitt á hvað út prjóninn. Prj
2 umf sl, 1 umf br. Prj 7 umf sl (innafbrot),
fellið af. Saumið ermar í frá réttu, látið garðinn
fara vel. Saumið niður hálslíninguna. Pressið
létt yfir flíkina, sleppið stroffum.
68 VIKAN 26. TBL. 1992