Vikan - 28.12.1992, Side 76
CxC
o
<
'ctí
u_
▼ Finnur _
Árnason,
markaös-
stjóri Slát-
urfélags
Suöur-
lands,
meö nýju
réttina
1944 -
Mat fyrir
sjálfstæöa
ísland-
inga.
Mverjum hefði dottið í
hug að hægt væri að
slá upp fínni veislu og
það með skyndiréttum og
meira að segja að hafa hana
með austurlensku eða suð-
rænu ívafi, allt eftir smekk?
Með tilkomu skyndirétta Slát-
urfélags Suðurlands, sem
seldir eru undir vöruheitinu
1944 - Matur fyrir sjálfstæða
íslendinga, þarf enginn að
hafa áhyggjur af því lengur að
fá gesti óvænt í mat - og það
meira að segja gesti sem
gera á vel við. Það eina sem
til þarf er að í ísskápnum
leynist einhver hinna nýju
1944-skyndirétta.
Finnur Árnason, markaðs-
stjóri Sláturfélags Suðurlands,
segir okkur að fyrirtækið hafi í
upphafi sett sér ákveðin
markmið varðandi sölu rétt-
anna og þau hafi náðst þegar
á fyrstu tveimur til þremur vik-
unum og vinsældirnar dvíni
síst. Hann segir að fólk kunni
vel að meta nýju réttina sem
eru súrsætt svínakjöt, kjöt í
karríi, stroganoff og
bolognese. Fyrstu tveir réttirn-
ir eru eiginlega „austurlensk-
ir” og sá síðastnefndi suð-
rænn. Þetta er þó aðeins upp-
hafið að öðru meira því strax
eftir áramót má reikna með
nýjum réttum og þá af ís-
lenskari uppruna, til dæmis
kjötsúpu að íslenskum hætti.
Búast má við enn fleiri
hefðbundnum íslenskum rétt-
um þegar líða fer á árið.
TÍMINN SKIPTIR
MIKLU MÁLI
Það er nokkuð tryggt að fólk á
eftir að kunna að meta þann
tímasparnað sem kemur til
með að felast í kaupum
„skyndikjötsúpunnar”. Hún
þarf ekki nema fimm mínútur
til að hitna og eins til tveggja
tíma matreiðsla á kjötsúpu á
þar með áreiðanlega eftir að
heyra sögunni til á mörgum
heimilum. Neyslukönnun í
Bandaríkjunum sýnir að ef
fram heldur sem horfir verða
93 prósent allra matarinn-
kaupa heimilanna tilbúinn
matur árið 2000 eða matur
sem framreiða má á innan við
tíu mínútum. Ekki er ástæða
til að ætla að þróunin verði
mikið öðruvísi hér á landi
enda hefur komið í Ijós við at-
hugun að 28 prósent íslend-
inga borða skyndirétt vikulega
og 57 prósent borða
skyndirétt að minnsta kosti
einu sinni í mánuði.
KJÖTMAGNIÐ MEIRA
EN GERIST OG GENGUR
1944-réttina, sem eru seldir í
plastbökkum, má setja hvort
heldur sem er í örbylgjuofn,
venjulegan bökunarofn eða
hita í potti. Hver réttur er 400
grömm að þyngd og kjöthlut-
fallið er að minnsta kosti 40
prósent. Það er að minnsta
kosti helmingi meira en al-
mennt gerist í innfluttum rétt-
um, að sögn Finns. Þess
vegna má halda því fram með
réttu að hér sé kominn bakki
með mat fyrir einn til tvo þeg-
ar bætt hefur verið við hrís-
grjónum, kartöflum, pasta eða
brauði, eftir því sem þurfa
þykir.
FERSKLEIKI ÁN
AUKAEFNA
Skyndiréttirnir 1944 eru fram-
leiddir á Hvolsvelli þar sem
Sláturfélagið hefur bækistöðv-
ar. Það tók vöruþróunarhóp
SS átján mánuði að þróa þá
og framleiðslutæknina í kring-
um þá. Tekist hefur að halda
ferskleika réttanna um leið og
tryggt er 14 daga geymsluþol
án þess að notuð séu nokkur
aukaefni við framleiðsluna.
Við spurðum Finn hvaða
réttur væri efstur á vinsælda-
listanum þessa stundina.
Sagði hann súrsæta svína-
kjötið óumdeilanlegan sigur-
vegara þótt ótrúlega lítill mun-
ur væri á vinsældunum þegar
á heildina væri litið. Hann
sagðist vita til þess að fólk
væri svo ánægt með þessa
nýjung að það keypti réttina
jafnvel til þess að nota þegar
það ætti von á gestum sem
það vildi gera vel við. Þetta
væri gómsætur matur sem
auka mætti við með kartöflum
í einhverri mynd, pasta, salati
og brauði og á innan við tíu
mínútum væri kominn á borð-
ið sannkallaður veislumatur
sem allir yrðu ánægðir með. □