Vikan


Vikan - 28.01.1993, Page 7

Vikan - 28.01.1993, Page 7
sem þarna voru saman hver frá sínu héraði og landshluta. Ýmsar venjur og siðir voru mismunandi eftir því hvaðan nemendur komu og þetta lærðu stúlkurnar hver af annarri eða fengu að minnsta kosti nasaþefinn af því. Þessir skólar voru jafnframt staðsett- ir úti í sveit og jafnvel nokkuð einangraðir. Nemendum var haldið að verki, sérstaklega fyrr á árum. Við þessar að- stæður verður samband nem- enda innbyrðis og nemenda og kennara miklu nánara en ella. Þetta var eins og eitt heimili, ein fjölskylda. Lágmarksaldur nemenda var lengst af átján ár en síð- ustu árin var farið að taka inn yngri nemendur. Mér fannst kennslan breytast mikið við þetta því að mikill munur get- ur verið á þroska sextán og átján ára unglinga. Fyrst þeg- ar ég byrjaði að kenna höfðu kennarar aldrei frið fyrir fróð- leiksþorsta nemenda. Þegar stúlkurnar voru orðnar þetta yngri höfðu þær hvorki þrek né þroska til að nýta sér tím- ann í skólanum jafnvel og áður fyrr.“ BREYTTIR TÍMAR - Þó svo að skólarnir hafi ver- ið lagðir niður einn af öörum, nema á Hallormsstaö og í Reykjavík, þá var einu sinni sú tíð að ráðamenn iétu byggja þá út um allt land þar eð þörfin var talin svo brýn. „Stjórn menntamála hefur löngum verið býsna handa- hófskennd, það má sjá víða um landið. Ég skal nefna dæmi. Fyrir 1940 voru starf- andi húsmæðraskólar á Hall- ormsstað, Laugum, Lauga- landi, Blönduósi, Staðarfelli og ísafirði. Þeir voru litlir, til dæmis var Laugaskóli byggð- ur fyrir rétt um tuttugu nem- endur og Laugalandsskóli fyrir tuttugu og átta. Á bilinu 1940-1950 voru allir gömlu skólarnir stækkaðir svo að þeir gætu tekið við fjörutíu til fjörutíu og átta nemendum, auk þess sem bætt var við húsmæðraskólum í Fteykja- vík, á Akureyri, Laugarvatni og Varmalandi. Það hafði sitt að segja að í lögum var sagt fyrir um að aðeins tólf nem- endur mættu vera á hvern kennara í verklegri kennslu eins og matreiðslu, þvotti og ræstingu, saumum og vefn- aði. Þess vegna voru gömlu skólarnir stækkaðir svo þeir gætu tekið við fjörutíu og átta nemendum á ári. Hefðu ráða- menn menntamála skoðað hagskýrslur hefðu þeir séð að aðeins um 2000 stúlkubörn fæddust á hverju ári og þess vegna var þessi mikla fjölgun skólanna óraunhæf. Þetta sama hefur gerst á síðustu árum með framhaldsskóla enda standa skólahúsin hálf- „Ég minnist þess að eitt árið var lagður grunnur að fjórum hjónaböndum á milli stúlkna á Varmalandi og pilta á Hvanneyri. Einnig kom það tímabil að nemendur vísinda- deildar á Hvanneyri, búfræði- spennandi að gera smásprell þar sem fyrir eru allt að fimm- tíu ungar stúlkur á svipuðu reki og þeir. Um árabil var töluvert sam- band milli okkar og skólanna að Bifröst, Reykholti og elstu tóm viða um land. Það hlýtur eitthvað að vera vanhugsað í þessum efnum.“ LÍF I TUSKUNUM - Einhvern tíma var hús- mæðraskólinn á ísafirði kallað- ur „vetrarhjálpin" af gárungum í bænum - og það hafa fleiri hússtjómarskólar veriö. Örugg- lega hefur oft verið líf í tuskun- um þegar bændaskólapiltar úr nágrenninu knúðu dyra á heimavistinni á Varmalandi. kandidatarnir, heilluðu frá mér alla unga kennara. Samskipt- in milli skólanna voru þvf af ýmsum toga. Stundum stálust piltar inn á heimavistina við litla hrifningu mína og auðvit- að kom margt upp á löngum tíma. Þetta var ungt og hresst fólk og það er eðlilegt að það reyni öðru hverju að brjótast undan öllum böndum sem sett eru á það. Þetta er eðlileg lífsgleði. Það er ósköp skiljan- legt að ungum mönnum þyki bekkja grunnskólans í Borgar- nesi, auk bændaskólans. Þá var háð íþróttakeppni árlega, mælskukeppni og árshátíð haldin þar sem nemendur allra skólanna komu saman." Steinunn K. Ingi- mundar- dóttir á heimili sínu í Reykjavík. NÝTA BETUR HOLLAN MAT - Hvaða ráð viltu gefa ungu fólki sem hefur ekki allt of mikið á milli handanna en vill fá sem mest fyrir aurana til heimilisins? 2.TBL. 1993 VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.