Vikan


Vikan - 28.01.1993, Blaðsíða 47

Vikan - 28.01.1993, Blaðsíða 47
allt átti að vera í lagi. En... að sjálfsögðu fundu þeir eitthvað. Eftir ítarlega leit fannst þeim rúðuþurrkurnar ekki vinna nógu HRATT! Glenn sagði að hann skyldi gera við þær á staðnum og spurði hvort við fengjum ekki að sleppa við sektina. Áður hafði Glenn nefnilega sagt okkur að hann ætlaði ekki að láta lögregluna komast upp með neitt múður. Lögreglumaðurinn reyndist álíka ákveðinn og Glenn því hann stóð fast á sínu, pening- ana vildi hann fá. Enn neitaði Glenn að borga en þá sagði hinn að við færum ekki fet fyrr en við borguðum. Glenn sagði að það gerði ekki mikið til því að við hefðum daginn fyrir okkur og þess vegna næstu daga líka ef svo bæri undir. Okkur var hreint ekkert far- ið að lítast á blikuna því það var farið að líða að hádegi og okkur bráðlá á að komast til Bangui. Glenn var samt hinn rólegasti, tók fram stólana, kom sér vel fyrir og nú mændu þeir hvor á annan - hvor öðrum þrjóskari. Glenn kallaði til okkar að við skyld- um fara að útbúa hádegismat en í því kom einn Ameríkan- inn í hópnum niður úr trukkn- um með miklurh hamagangi. Hann stormaði að Iögreglu- manninum með allt sitt myndavélahafurtask, kynnti sig fyrir honum sem blaða- mann hjá Times (sem var vægast sagt haugalygi) og sagðist vera að kynna sér starfsemi lögreglunnar í Mið- afríkulýðveldinu. Þá héldum við að öllu væri lokið og við yrðum að dúsa þarna það sem eftir væri en lögreglu- maðurinn gleypti við þessari vitleysu og bað okkur blessuð að drffa okkur af stað. Áður en við yfirgáfum Mið- afríkulýðveldið stoppuðum við hjá Cembefossum og fengum okkur þar ærlegt bað, það síðasta almennilega í langan tíma því framundan var tími kattarþvottar í Zaire. í ánni var brugðið á leik með slöngu úr varadekki og flotið á henni niður ána. Eftir baðið héldu allir upp í fararskjótann hreinir og sælir en við komumst ekki langt. Við komum að brú í hálfgerðri niðurníðslu þannig að upp- hófst bráðabirgðaviðgerð til að trukkurinn kæmist yfir. Við- gerðinni lauk fljótt og örugg- lega og þá gátum við haldið ferð okkar áfram. □ ► Við kom- um dag einn aö þessari brú sem var ekki upp á marga fiska. Pví þurftum viö aö standa í örlitlum vegafram- kvæmdum áöur en óhætt var aö halda yfir. ► Blóm- legt tré í bænum Socadib. ► Á vegum Miö- afríkulýð- veldisins. ► Áöí skugga trés. 2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.