Vikan - 28.01.1993, Blaðsíða 42
Á HVAÐ ERTU
VIKU-könnun
leiöir í Ijós hvað
„kveikir í“ hvoru
kyninu fyrir sig
HÚN fellur fyrir blikinu í aug-
um hans.
HANN fellur fyrir lögulegum
leggjum.
Aðallega laðast þó bæði kynin
að góðum persónuleika.
Hvað veldur því að hún tekur
eftir einmitt honum meðal
hundrað annarra?
Tæplega eru það Armanifötin
eða vöðvarnir.
Það er miklu fremur augna-
ráðið og augun sem vekja at-
hygli hennar.
Vikan spurði hóp lesenda af
báðum kynjum fyrir hverju
þeir féllu fyrst hjá gagnstæða
kyninu. í Ijós kom að það er
hægt að slá því föstu að:
• Karlmenn falla fyrir þrýstn-
um barmi og lögulegum leggj-
um.
• Konur falla fyrir augum og
fallegum höndum.
Munurinn einskorðast þó ekki
við kyn vegna þess að karlar
á mismunandi aldri falla fyrir
mismunandi atriðum, rétt eins
og konur.
Tökum sem dæmi mann með
lítinn, laglegan rass sem nýtur
sín vel í hæfilega slitnum
gallabuxum. Sé kona undir
þrítugu spurð hvað kveiki í
henni er góður möguleiki að
hún hafi einmitt mestan á-
huga á að sjá baksvipinn á
honum.
Séu eldri vinkonur hennar
spurðar virðist líkamsbygging
ekki gegna nærri eins stóru
hlutverki, að minnsta kosti
ekki við fyrstu kynni.
Hvað karla varðar er þetta
þveröfugt.
Vöxtur stúlkunnar skiptir þá
vissulega svo að segja öllu
máli strax sem unga menn en
líkamsþráhyggjan nær þó há-
marki nokkurn veginn í takt
við fertugsfiðringinn.
Þriðji hver maður á aldrinum
þrjátíu ára til fimmtugs tekur
fyrst eftir fallegum brjóstum,
fallegum rassi eða fallegum
fótleggjum.
Það eru umtalsvert hærri tölur
en hjá bæði yngri og eldri
mönnum. Hjá yngri mönnum
skiptir fallegt andlit mestu
máli, einn af hverjum fimm
tekur fyrst eftir þvf.
Meðal eldri herra er það per-
sónuleikinn sem fyrst nær at-
hyglinni.
Persónuleikinn, já. Það er
hann sem flestir segjast taka
fyrst eftir hjá gagnstæða kyn-
inu - og það á við um bæði
kynin.
Persónuleikinn virðist þó
gegnumgangandi skipta kon-
ur meira máli en karla; önnur
hver kona milli þrítugs og
fimmtugs fellur fyrst fyrir per-
sónuleika manns.
Meðal yngri kvenna er ívið
sjaldgæfara að persónuleiki
geri útslagið. Hjá konum undir
þrítugu má aftur á móti merkja
meiri áhuga á vöðvum karla,
baki og bringu.
Og á augunum.
Næstum þriðja hver kona
undir þrítugu tekur fyrst eftir
augunum.
Karlar á aldrinum þrjátfu til
fimmtíu falla aftur á móti fyrst
fyrir fallegum munni en hins
vegar aldrei fyrir fallegum
höndum.
Klæðaburður virðist litlu máli
skipta, nema hugsanlega hjá
eldra fólki sem gæti fallið fyrir
vel klæddum einstaklingi. (