Vikan


Vikan - 28.01.1993, Síða 8

Vikan - 28.01.1993, Síða 8
Hús- mæöra- skólinn á Varma- landi í Borgar- firöi. Hann var lagður niöur áriö 1986 og var þá húsakost- ur lagöur undir grunnskól- ann á staðnum. „Það er mikill áhugi á því núna að hver og einn hugsi vel um eigin heilsu. Auðvilað þarf fólk að læra næringar- fræði og hagfræði og það þarf að brýna fyrir því að gæta að því hvað það setur ofan í sig og hvernig það lifir yfirleitt. Það þarf ekki síður að hvetja fólk til þess að huga nánar að fjárhag sínum af raunsæi, að vita hvað það hefur á milli handa og hvernig það getur helst ráðstafað því þannig að það nýtist sem allra best. Allir þurfa að læra að nýta þá hluti sem þeir hafa á heim- ilinu og gera sér grein fyrir því hversu mikið þeir þurfa til að lifa af. Við þurfum að nýta bet- ur hollan og góðan mat. Mér hrýs hugur við öllum þeim ó- sköpum sem flutt eru inn af mat sem fólk gín við af því það þarf ekkí að hafa neitt fyr- ir því að elda hann. Fólk þarf að gera sér grein fyrir því hvernig við getum best nýtt grænmetið sem við kvörtum Þess vegna borgar sig ekki að skera grænmetið fyrr en rétt áður en við ætlum að borða það og sem minnst í einu. Hvað grænmetið varðar þá er sem betur fer að færast í vöxt að það sé ræktað án eit- urefna, lífræn ræktun er að færast í aukana smám sam- an. Ég vil hvetja fólk til að rækta sjálft grænmeti. Garðar eru víða nægilega stórir til þess að fólk geti komið sér upp svolitlum skika þar sem það ræktar sér til matar. Það er meira að segja hægt að rækta C-vítamínríkar jurtir í eldhúsglugganum, eins og steinselju. Það er lítill vandi að búa sér til lítinn matjurta- garð en auðvitað verður fólk fyrst að leita sér einhverrar fræðslu. Þess má geta að á Bændaskólanum á Hvanneyri og Garðyrkjuskólanum í Hveragerði eru heilmiklar rannsóknir í gangi um ræktun alls konar matjurta. Þar eru < Lelðbein- ingastöö heimil- anna á Hallveigar- stööum. F.v. Stein- unn K. Ingimund- ardóttir, Steinunn Óskars- dóttir og Stefanía M. Péturs- dóttir. yfir að sé svo dýrt. Best er að borða það hrátt og maður á að gæta þess að rífa það ekki niður og brytja það fyrr en um leið og það er borðað. C- vítamínið er það sem við erum aðallega að sækjast eft- ir í grænmeti og ávöxtum. Súrefni loftsins eyðir C- vítamíninu og eftir því sem við brytjum það smærra og fínna nær súrefnið meiri tökum á C- vítamíninu og gerir það óvirkt. líka haldin námskeið í því skyni að kenna fólki að koma sér upp matjurtagarði. Ég ráðlegg fólki fyrst og fremst að kaupa hollan mat til heimilisins. í því sambandi má nefna sláturgerðina sem þarf ekki að taka meira en eina helgi að haustinu. Þá er kom- inn hollur matur í frystikistuna til vetrarins, ódýr og þægileg- ur í matreiðslu. Þegar fólk kaupir inn ráðlegg ég því að kaupa ýmsan varning í stór- um pakkningum. Ef frystikista eða frystiskápur og góðar geymslur eru á heimilinu borgar sig að hafa þennan háttinn á. Því miður er sjaldn- ast gert ráð fyrir köldum mat- argeymslum eða búri í nútíma híbýlum en slíkt er mikill kost- ur. Ef frystikista er til staðar er auðvitað ódýrast að nýta hana en ekki láta hana ganga árið um kring næstum tóma. í þessu sambandi má nefna að það margborgar sig að kaupa sem mest af grænmeti á með- an það er ódýrast og best, um háuppskerutímann, og læra að ganga frá því í frost. Þá er það hreinsað og síðan er soð- ið upp á því eins og kallað er. Loks er það sett í hæfilega stórar umbúðir svo auðvelt sé að grípa til þess. Sama er að segja um kjötið. Nú er boðið upp á heilu og hálfu lambskrokkana á haustin sem hafa verið bútaðir í sundur. Hvað fiskinn varðar borgar sig að kaupa hann hraðfrystan til að geyma í frystikistunni. Hún nær ekki að frysta ferskan fisk nægilega snöggt til að hann nái að verða góður. Það er líka mikill sparnaður í því að baka brauð til heimil- isins og baka þá mikið í einu. Brauð eru dýr og unnt að spara heilmikið og þá ekki síst ef ofninn er vel nýttur í hvert skipti og bökuð í honum fjögur og upp i sex brauð í einu sem síðan eru fryst til vikunnar. Gallinn er hins vegar sá að fólk sem vinnur úti allan dag- inn hefur takmarkaðan tíma til að standa í bústörfum af þessu tagi en með skipulagi og góðum vilja er það hægt. EIN MATSKEIÐ AF ÍSLENSKU ÞVOTTAEFNI Það má spara með því að nýta þvottaefnið á réttan hátt. Ég ráðlegg öllum að nota ís- lensku þvottaefnin sem eru sérstaklega gerð fyrir okkar íslenska vatn. Við þurfum að læra að nota ekki allt of mikið af þvottaefni en slikt er mjög algengt. Margir kvarta undan því að þeir fái ofnæmi af völd- um þess og það skolist jafnvel ekki nægilega vel úr flíkunum. Ástæðan er oft sú að það hef- ur verið sett of mikið þvotta- efni í vélarnar. Það er í raun alveg nóg að setja sem svarar einni matskeið í hverja vél. Fólk fyllir jafnvel þvottaefnis- hólfið á vélinni sinni fyrir hvern þvott. Þetta er náttúr- lega eyðsla og sóun á verð- mætum. Það er heldur ekki alltaf nauðsynlegt að kaupa klúta í borðtuskur og til af- þurrkunar og þess háttar. Oft má klippa niður aflögð hand- klæði eða rúmföt til slíks og renna síðan á það faldi eða sikksakka fyrir endana." - Eru ekki fáir núorðið sem kunna að beita saumavél svo velsé? „Það er nú mesta furða, ég held að slíkt sé algengara meðal ungs fólks heldur en að taka slátur til dæmis. Handa- vinna er ennþá kennd þokka- lega í skólum og saumavél- arnar eru oftast auðveldar við- fangs. Fólki óar aftur á móti miklu frekar við að fara í stór- virki f matreiðslu. Stundum er hringt hingað í leiðbeininga- stöðina og við spurðar að því hvað fólk eigi til bragðs að taka sem kannski hefur keypt sér hálfan nautsskrokk og er í vandræðum með hann á eld- húsgólfinu: „Hvað á ég að gera?“ er þá spurt. í slíkum til- vikum borgar sig jafnvel að fá fagmenn til að brytja kjötið því að auk þess að kunna ekki til verka er það oft svo að fólk á ekki nægilega góð tól til að vinna að kjötinu og ég tala nú ekki um ef það ætlar að úr- beina líka. Það er hins vegar tilvalið að fá að taka beinin með heim eftir að gert hefur verið að kjötinu og sjóða úr þeim kraft sem síðan má setja í lítil ílát og frysta til betri tíma og nota í súpur og sósur." FÓR UM LANDIÐ OG HÉLT NÁMSKEIÐ Eftir að hafa verið kennari við húsmæðraskólann á Lauga- landi í Eyjafirði réð Steinunn sig sem farkennara hjá Kven- félagasambandi íslands. Þá ferðaðist hún um landið, heimsótti kvenfélög og hélt námskeið um hvaðeina sem varðaði húsmóðurstarfið. Ef til vill væri þjónusta af þessu tagi vel þegin á þessum síð- ustu og verstu tímum. „Við þetta starfaði ég í fimm ár og eftir þann tíma hafði ég farið í næstum alla hreppa landsins og kennt húsmæðr- um og ungum stúlkum. Ég var með stutt námskeið og var Frh. á bls. 66 8 VIKAN 2. TBL. 1993

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.