Vikan


Vikan - 28.01.1993, Qupperneq 20

Vikan - 28.01.1993, Qupperneq 20
1— L_L_I ▲ Erica CD <c Harper stendur i_i_i hér viö o skjöld uo sem er utan á CkC 221 b CJD Baker Street. Skjöldur- L-l—1 inn var af- EiE hjúpaöur z 7. október co 1985 og geröi þaö on Jeremy 'CD Brett, sá =□ sem fariö CkC hefur meö hlutverk 'CD o Sherlocks un Holmes í CkC =CD CQ <C Æ CfcC l—i— L-l—l sjónvarps- þáttunum. Hann er hart nær hund- rað og fjörutíu ára gam- all, sestur í helgan stein úti við ströndina í Sussex. Þar drepur hann tímann með því að hugsa um býflugnabúið sitt. í hverri viku streyma til hans tugir, jafnvel hundruð bréfa en þau eru öll send á gamla heimilisfangið í London - 221 b Baker Street. Vinur hans og samstarfsmaður frá fyrri tíð ku búa í einhverju úthverfa Lund- únaborgar en ekki fer neinum sögum af samastað hans né hvað hann hefur fyrir stafni. Ekki veit ég hvort lesendur renna grun í um hverja við erum að tala, ef ekki þá er rétt að skýra frá því þegar í stað. Þetta er enginn annar en Sherlock Holmes, mesti leynilögreglumaður eða einkaspæjari bókmenntanna frá upphafi - að margra áliti - og vinur hans, Watson. Þótt undarlegt megi virðast eru þessir herramenn enn jafnlif- andi í hugum ótrúlega margra ungra sem gamalla um allan heim og þeir voru fyrir nær heilli öld, þegar sögurnar um þá birtust fyrst í Strand Mag- azine í London. Og það sem meira er, nú hefur Sherlock Holmes einka- ritara en slíkan munað gat hann ekki veitt sér fyrr á árum. Einkaritarinn er með skrifstofu í 221 b Baker Street í London, tekur þar á móti bréfum til Holmes og svarar þeim eftir bestu getu fyrir hönd yfir- manns síns. Einkaritarinn heit- ir Erica Harper og hana hittum við að máli fyrir skömmu er við vorum á ferð í London. „Ég held að þeir sem skrifa Holmes haldi að það séu enn- þá gasljós á götunum og Lundúnaþokan hafi ekkert breyst. Þeir halda líka að fólk fari um í hestvögnum en ekki bílum og neðanjarðarbrautum. Holmes fær bréf frá konum og körlum á öllum aldri, þótt aðal- lega komi bréf frá börnum. Oft er það í tengslum við ensku- nám þeirra í skólanum og helst eru það bandarísku börn- in sem reyna að beita brögð- um til þess að fá svar frá Sher- lock með því að segja: Ef þú ekki svarar þá fæ ég ekki eins IHVERRI VIKU OG HANN HEFUR MEIRA AÐ SEGJA EINKARITARA 20 VIKAN 2. TBL. 1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.