Vikan - 28.01.1993, Side 22
viö tókum íbúðina á leigu þeg-
ar í staö og ákváðum aö flytja
þangað hið fyrsta.
Á dögum Arthurs Conan Doyle
var Baker Street til en ekki
húsnúmerið sem hann lét þá
félaga notast við. Þegar fram
liðu stundir lengdist gatan og
húsum fjölgaöi þar eins og
annars staðar í London og upp
úr 1930 var númerum breytt
og þá hlaut hús Abbey Road
Building Society þetta númer.
Það var líka eins og viö mann-
inn mælt, bréf til Sherlocks
Holmes tóku að streyma þang-
að en þau höföu fram að þeim
tíma verið send til fjölskyldu
Doyles. Nú er banki til húsa í
221 b Baker Street, Abbey
National sem varð til úr sam-
runa nokkurra fyrirtækja, og
það er hjá þessum banka sem
Erica Harper vinnur sem
blaðafulltrúi og sem einkaritari
Holmes í hlutastarfi.
Einkaritarinn segir okkur að
bréf komi alls staðar að úr
heiminum, þó líklega flest frá
Japan en þar er Holmes óend-
anlega vinsæll. Hún sýnir okk-
ur nokkur bréf, meðal annars
frá rúmlega tvítugri stúlku í
Svíþjóð, sem hefur skrifað
Holmes reglulega í þrjú ár.
Hún segir honum frá tilfinning-
um sínum og því sem á dag-
ana drífur en hefur aldrei sent
heimilisfang sitt svo Erica get-
ur ekki sent henni svarbréf.
Sænska stúlkan sendi Holmes
meira að segja kort á Valent-
ínusardaginn og sagði honum
að hún elskaði hann, ekki þó
með hjartanu heldur heilanum
sem væri miklu færari um að
elska heldur en hjartað.
Bréfafjöldinn er mismikill
eftir árstíöum. Að meðaltali
koma fimmtíu til hundrað bréf
á viku en um jólaleytið fjölgar
þeim geysilega og skipta þá
hundruðum. Einnig koma fjöl-
mörg kort í byrjun janúar þeg-
ar fólk óskar Sherlock Holmes
til hamingju með afmælið.
í flestum bréfunum er talað um
hversu gaman fólk hafi af sög-
Aö sjalfsogðu er emka-
ritari Sherlock Holmes
meö aöstööu aö Baker
Street 221 b í London.
unum um Holmes. Sumir
skrifa þó til að leita ráða og
jafnvel til þess að biðja
leynilögreglumanninn um að
koma og hjálpa sér að finna
týnda hluti og jafnvel gæludýr
eða leysa aðrar þrautir. Eitt
bréf segir Erica að hafi komið
frá Mið-Englandi þar sem bréf-
ritari var nokkuð æstur og
krafði Homes um tíu gíneur
sem hann sagði hann skulda
langafa sínum. Japönsku
stúlkurnar, sem skrifa Holmes,
bjóða oft fram aðstoð sína og
segjast munu verða miklu dug-
legri við að hjálpa honum held-
ur en Watson, sem þær telja
heldur einfaldan. Reyndar
segir Erica að Watson hafi ver-
ið gerður heimskari í ýmsum
kvikmyndum en hann er í bók-
unum, sérstaklega gömlum,
svarthvítum myndum sem til
eru um ævintýri Holmes og
Watsons. Yngsti bréfritarinn,
tæplega eins árs stúlka, sem
reyndar fékk föður sinn til að
skrifa, var látin segja að hana
langaði svo óskaplega mikið í
afmæliskort frá Holmes á eins
árs afmælinu. Einkaritarinn
varð við þeirri ósk og sendi
kort fyrir hönd yfirmannsins!
Það eru ekki bara bréf sem
berast til 221 b Baker Street.
Þangað koma blaðamenn,
Ijósmyndarar og sjónvarpsfólk
í efnisöflun. Hópur sjónvarps-
manna frá Brasilíu kom í
heimsókn fyrir allnokkru. Eftir
aö þátturinn var sýndur í
brasilíska sjónvarpinu fjölgaði
bréfum þaðan til muna og það
sem meira er, Erica Harper
fékk sjálf bónorðsbréf. Hún
spurði brasilískan starfsmann
í Abbey National hvort bón-
orðið kæmi frá góðum stað í
Brasilíu en ákvað svo að
hugsa ekki meira um það í
22 VIKAN 2. TBL. 1993