Vikan


Vikan - 28.01.1993, Page 28

Vikan - 28.01.1993, Page 28
A Jóhann Sigurðar- son leik- ari. Mynd- in er tekin á sviöi Þjóöleik- hússins þar sem hann fer meö hlut- verk Higgins í My Fair Lady. versta sem hent getur gagn- rýnanda að hann verði of hrokafullur og reyni að vera ill- kvittnislega fyndinn á kostnað sýningar. Það er mjög auðvelt að setja sig á stall og ég er þar ekkert endilega að tala um íslenska gagnrýnendur,“ segir Stefán. „Það vantar einna helst hér á landi að gagnrýnandinn hafi dálitla innsýn í leikhúsvinnu. Það hjálpar honum að finna út hvað tilheyrir handritinu og hvað sýningunni. Þó gagnrýn- in í fjölmiðlum sé aðallega fyrir almenning er hún líka mjög gagnleg skilaboð til aðstand- enda sýningarinnar um hvort hún hafi skilað sér til áhorf- enda og í hvaða formi. Við reynum að gera sem mest fyr- ir gagnrýnendur og ef þeir vilja koma á æfingar sé ég ekkert því til fyrirstöðu. Það er mjög gagnlegt fyrir þá sem ekki hafa innsýn í leikhússtarfið. Svo er það undir leikstjóra komið hvort hann kærir sig um það.“ Stefáni finnst ekkert skilyrði að gagnrýnendur sjái sýningu oftar en einu sinni en gerir þeir það er mikilvægt að þeir gleymi ekki frumupplifuninni. Eitt af því mikilvægasta sem leikhúsgagnrýnandi verður að athuga að mati Stefáns er að læra að gangast undir þá leið sem leikstjórinn hefur ákveðið að fara. Það eru fjölmargar leiðir til við að setja upp verk með aðstoð eins handrits og vissulega leyfist gagnrýnand- anum að hafa efasemdir um þá leið sem hefur verið valin en sýningin, sem hann sér, á að vera aðalatriðið en ekki í- mynduð draumasýning sem hann hefur búið sér til. Gagn- rýnin á að vera góð lýsing á sýningunni og aðaleinkennum hennar og reynt að endur- skapa hana án þess að allt sé gefið upp. „Það hafa ekki verið gerðar neinar tæmandi kannanir á þeim áhrifum sem leikhús- gagnrýni getur haft á aðsókn. Hins vegar eru til dæmi um að ef gagnrýnendur hafa verið samdóma um að salla niður einhverja sýningu hefur það yfirleitt áhrif, þó sýningin eigi það ekki skilið. Ef sýning er góð og hittir í mark, þó gagn- rýnendur finni henni flest til foráttu, lifir hún gjarnan af ef umtalið heldur henni lifandi. Almannarómur er sterkari en gagnrýnin. Ef sýningin fellur í góðan jarðveg og spyrst vel út er það langbesta auglýsingin en auðvitað hefur gagnrýnin áhrif. Ef hún er svo verulega illkvittin og slæm á einhvern hátt þá vekur sýningin athygli en aðsóknin eykst ekki,“ segir Stefán. Hann telur leikhúsgagnrýni hér á landi það til hnjóðs að fólk er ekki nógu lengi í faginu og fær þá sjaldan almennilega yfirsýn yfir leikhúslífið eða hvað ákveðin sýning þýðir fyrir þroskaferil ákveðins leikara eða leikstjóra. „Þetta starf er eins og öll önnur. Það þarf í það kunn- áttu og reynslu. Ef við erum að gera kröfu um að fólk hafi líka bakgrunn sem hjálpar því veit ég af reynslu að það er erfitt að fá það til að taka þetta starf að sér,“ segir Stefán. „Þeir sem tengjast leikhús- heiminum taka þetta mjög ó- gjarnan að sér því þá er fólk að skrifa um kollega sína og það finnst því óþægilegt. Þeir sem komnir eru út úr leikhús- heiminum, kannski gegn sinni ósk, sitja inni með einhvern biturleika og eru strax í and- stöðu við allt sem til stendur að fjalla um. Þetta er dálítið snúið.“ Stefáni finnst allt í lagi að aðstandendur sýninga skrifi í blöðin gegn leikdómum enda þekkir hann dæmi þess að dómar hafi ekki aðeins verið grimmilegir heldur beinlínis dónalegir, svo ástæða var til að gera athugasemdir við þá. Að öllu jöfnu finnst honum þó að leikhúsfólk ætti ekki að vera að svara gagnrýni því hún er aðeins álit einnar manneskju. „Ástæðan fyrir því að leikar- ar skrifa oftar gegn dómum en aðrir listamenn er sú að í leik- 28 VIKAN 2.TBL. 1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.