Vikan


Vikan - 28.01.1993, Page 30

Vikan - 28.01.1993, Page 30
SALARKIMINN SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR LESENDUM Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam- skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og annaö þaö sem lýtur aö sálfræöi og sálfræöilegum vanda- málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni. Utanáskriftin er: Sigtryggur Jonsson sálfræöingur, Álftamýri 3,108 Reykjavík FORELDRAR MINIR Kæri sálfræðingur. Ég er rúmlega tvítugur og í sambúð. Vandamál mitt er að mér finnst foreldrar mínir og þó einkum móðir mín lítils- virða mig. Þetta hefur verið svona frá því að ég var krakki. Þau draga úr öllu sem ég vil gera og láta í veðri vaka að ég geti ekki gert neitt rétt. Lengi vel reyndi ég að þókn- ast þeim og gera það sem ég gat til að gera það sem ég hélt að myndi gera þau á- nægð og sýna þeim að ég gæti ýmislegt. Nú er ég hætt- ur því og hef nánast ekkert samband við þau. Ég hef rætt þetta við kærustuna mína og eldri bróður minn og þau við- urkenna að þau hafi bæði tek- ið eftir þessu. Ég geri ráð fyrir aö fleiri hafi tekið eftir því en enginn gerir neitt í málinu og enginn ræðir það við mig. Mér finnst þetta leiðinlegt og vil gjarnan breyta þessu en veit engin ráð til þess. Eg hélt að ég gæti bara gleymt þessu og haft eins lítiö samband við þau og hægt væri og þolað það. Af einhverj- um ástæðum sækir þetta samt á mig á hverjum degi og ég get varla hugsað um annað. Ég velti fyrir mér hvernig mér liði ef þau myndu veikjast al- varlega eða jafnvel deyja eða ef bara annað þeirra myndi deyja. Ég held að ég myndi ekki afbera það án þess að hafa lagað sambandið fyrst. Ég gerði svolítið að því aö skipta mér af þeim fyrir nokkrum árum eða öllu heldur að láta þau vita hvað mér fyndist þau lifa tilbreytingar- snauðu lífi. Þau gera ekkert spennandi og lífið er eintóm „rútína" hjá þeim. Mér finnst að þau hljóti að geta gert eitt- hvað til að hressa sig svolítið við. Ég talaði um þetta því ég hélt kannski að ég gæti vakið áhuga þeirra á að lifa lífinu og við næðum kannski saman í gegnum það að gera eitthvað saman. Arangurinn varö eng- inn og andrúmsloftið varð enn þvingaðra svo ég hætti þessu. Mér fannst þó að ég sýndi þeim áhuga og því hvernig þeim liði. Þau tóku þetta á- byggilega sem afskiptasemi og hafa engu breytt í sínu lífi. Gerðu þaö nú að hjálpa mér. Mér finnst ömurlegt að hugsa til þess að sambandið verði svona áfram. Hugsaðu þér ef ég eignast börn og get ekki fariö í heimsókn með þau til afa og ömmu. Hvað ætti ég að segja þeim? Vona að þú getir gefið mér einhver ráð, Gunni Kæri Gunni. Þér er ef til vill huggun í því að vita að þú ert ekki einn á báti með þetta vandamál. Fjöldinn allur af fólki, sem til mín leitar, hefur sömu sögu að segja af samskiptum sín- um við foreldra sína. Vissu- lega er þetta vandamál og í flestum tilvikum sem betur fer óska báöir aðilar eftir því að hlutirnir breytist en kunna enga leið til þess. AD VERA FORELDRI Það er oft ekki auðvelt að vera foreldri og foreldrar gera oft mistök í uppeldi sínu á börnunum. Sjaldnast gera þeir upp á milli barna sinna meðvitað og með vilja. Það bara þróast þannig. Oftast verða samskiptin að vítahring þannig aö hvorugur aðilinn getur brotið hann. Þó er það oftast þannig að innst inni vita foreldrarnir að þeir hafi gert eitthvað rangt þó að þeir ann- aðhvort vilji ekki horfast í augu við það eða kunni bara engin ráð. Oft reyna þeir að breyta þessu og laga til en barnið tekur því ekki, annað- hvort vegna þess að það skil- ur ekki breytinguna eða það vill hefna sín ( smátíma og svo er þaö of seint því foreldr- arnir gefast upp og þá er gjarnan litið svo á að barnið eða unglingurinn sé bara svona gerður. Allt er þetta gert í þögn því viö viljum alltof gjarnan leiðrétta mistök þannig að enginn verði var við 30 VIKAN 2. TBL. 1993 UTIISVIRÐA Lengi vel reyndi ég að þóknast þeim og gera þeim til hæfis. Núna er ég hættur þvi og hef nónast ekkert samband við þau.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.