Vikan - 28.01.1993, Side 33
KÖLLUÐ FREKJA I
MINNI SVEIT
Kaj flutti til Englands sautján
ára og síðan til Svíþjóðar.
„Eftir Svíþjóðardvölina tók við
þriggja ára herþjónusta, svo
það má segja að ég hafi al-
hliða bakgrunn," segir hann.
„Að herþjónustu lokinni fór ég
í tveggja ára íþróttakennara-
nám og síðan til Líbanon sem
íþróttakennari hjá Sameinuðu
þjóðunum. Líbanir eru fólk
eins og við en sjá hlutina á allt
annan hátt, þeirra raunveru-
leiki er allt annar en okkar.
Sjálfur er ég alinn upp í sós-
íalísku umhverfi þar sem
þurfti að deila kökusneið í tutt-
ugu bita ef svo bar undir en
þegar komið var út í samfé-
lagið og maður beið prúður
eftir sinni köku kom í Ijós að
maður fékk ekkert nema slást
▲ Þiö
íslending-
ar eigiö
samfélag
sem Hitler
heföi
runnið
algerlega
á rassinn í
vegna
þess aö
þaö er
ekki hægt
aöfá
íslendinga
til aö
gangaí
takt.
„Botninn dettur
úr þjóðfélagi
sem ekki
hugsar um
börnin sín.“
fyrir því. Einungis þeir sniðug-
ustu fengu af kökunni - þeir
sem voru sniðugastir að
ráðskast með aðra, sniðug-
astir að tala og sniðugastir að
taka. Hér á íslandi þarf fólk
sannarlega að vera duglegt
að sýna sig ef það ætlar að
sjást. Hluti íslenskrar menn-
ingar er beinskeytnin sem í
minni sveit væri kölluð frekja.
Það er stór munur á norskri
og íslenskri menningu. Við
erum ólikt fólk af ólíkum stofni
og lifum alls ólíku lífi. Ég er til
dæmis alinn upp við að fólk
spari fyrir óvæntum áföllum
eða uppákomum en slíkan
hugsunarhátt hef ég aldrei
orðið var við hér.“
Eftir Líbanondvölina sneri
Kaj til Osló og starfar þar nú
við útideildir, auk þess sem
hann leggur stund á sálfræði-
nám.
„Mest starfa ég úti á götum
að næturlagi; við erum að
reyna að fá vændiskonur og
fíkla til að koma í meðferð.
Auk þess er ég búinn að
leggja stund á sálfræðinám í
eitt og hálft ár og svo starfa
ég á endurhæfingarheimili fyr-
ir geðsjúklinga. Við gerum
okkur vonir um að þetta fólk
geti lifað eðlilegu lífi í framtíð-
inni. Ein aðalástæða þess að
þetta fólk er komið út og í
þetta hús er sú að læknarnir
álitu að það ætti sér von.“
ÍSLENDINGAR GANGA
EKKI i TAKT
Hvernig líst honum svo á ís-
land?
„Hver og einn á sér sinn
raunveruleika þó að mjög
margir reyni að segja öðrum
hvað þeim eigi að finnast og
hvað þeir eigi að sjá. Það er
miklu skemmtilegra að hlusta
á hvað hver hefur fram að
færa, veröldin verður leiðinleg
ef skoðanir eru fyrirskipaðar.
Mér finnst spennandi hvernig
„Hitler hefði
aldrei komist
til valda á
íslandi.“
hver og einn sér sinn heim og
þið íslendingar eigið samfélag
sem Hitler hefði runnið alger-
lega á rassinn í vegna þess
að það er ekki hægt að fá ís-
lendinga til að ganga í takt.
Það er kannski ykkar stóri
styrkur - að hér eru svo
margir einstaklingar sem þora
að vera þeir sjálfir. Það rúm-
ast svo mikið á íslandi. Hér er
margs konar stíll og útlit í
gangi, þó margir fylgi Ifka tísk-
unni, en hér er rými og for-
dómaleysi.
Það sem mér hugnast ekki
jafnvel er að þið hugsið ekki
um börnin ykkar og botninn
dettur úr þjóðfélagi sem ekki
hugsar um börnin sín. Þau
eru næsta kynslóð, sem á eft-
ir að stjórna ykkur. Hvað hafa
þau svo lært af ykkur þegar
þau eru orðin fullorðin? Þau
hafa að minnsta kosti ekki
lært að sýna umhyggju. Þegar
þau verða eldri mun þeim
finnast að það sé svo margt í
þeim sem ekki hafi verið full-
nægt að þau eiga eftir að leita
þeirrar fullnægingar mestan
hluta lífs síns. Þeir sem eru
frá tvítugu til þrítugs hafa svo
rosalegar þarfir sem þarf að
fullnægja vegna þess að for-
eldrar þeirra komu því þannig
fyrir. Nú er að bætast við enn
ein kynslóð sem elst upp án
öryggis vegna þess að for-
eldrarnir eru þess ekki megn-
ugir að veita börnum sínum
það.
Ég held að þið hafið skap-
að mjög óhollt þjóðfélag. Eftir
nokkur ár getið þið allt eins
sett þak á landið og haft þetta
eitt stórt hæli. Ég veit að þið
vinnið mjög mikið og ég veit
að alltaf verður eitthvað und-
an að láta. Þeir sem tapa í
þessu tilviki eru börnin vegna
þess að þeir sem geta ekki
barist fyrir rétti sínum tapa og
vitanlega sér maður þetta
annars staðar f heiminum
líka. En segðu mér hverjar
eiga að verða fyrirmyndir
þessara barna í lífinu? Það er
enginn heima. Börnin verða
að sjá um sig sjálf og verða
því eins og smávaxið fullorðið
fólk. Hvenær eiga þau að fá
að vera börn? Kannski eftir að
þau eignast sjálf börn? Þú
sérð það líka að þegar fólk er
búið að vera saman um
stundarsakir þá hagar það sér
ekki eins og fullorðið fólk. Það
skammast og rífst yfir því hver
eigi að gera hvað, í stað þess
að sýna hvert öðru umhyggju.
Þetta er það sem gerist þegar
tvær manneskjur koma sam-
an og vilja báðar verða um-
hyggju aðnjótandi. Hver á að
gefa hana - börnin? Sjálf geta
þau ekki gefið börnunum neitt
vegna þess að þau hafa ekki
meiri orku.
Ef börnin biðja um eitthvað
er öskrað á þau og þeim sagt
að þegja. Börn læra ekki ann-
að en það sem fyrir þeim er
haft. Sem fullorðið fólk erum
við alltaf fyrirmyndir, jafnvel
þegar okkur langar ekki til
þess. Á sumrin fleygið þið
krökkunum í fótboltaskóla all-
an daginn, átta, níu ára göml-
um, í stað þess að leyfa þeim
að leika sér. Þeim er sagt
hvað þau eigi að gera í skól-
anum, sagt að hafa hljótt um
sig heima og á sumrin er
haldið áfram að loka fyrir í-
myndunaraflið með háalvar-
legri fótboltaþjálfun."
ELTINGALEIKUR
VIÐ FÝSNIRNAR
Hvernig finnst þér íslendingar
sem félagsverur?
„Hér á íslandi vill fólk ekki
vita af vandamálum. Fólk elt-
ist við fýsnir sínar eins og þær
væru að fara úr tísku. Verð-
gildamatið snýst allt um að
elta uppi stundargleði í stað
gæða. Þið eruð algerir villi-
menn þegar þið eruð komin
með ykkar þrjátíu Grand
Marnier innbyrðis. Svo er
„Eftir nokkur
ár getið þið sett
þak á landið og
haft það eitt
stórt hæli.“
mynstrið þannig að fólk er í
ofsafenginni leit að einhverj-
um til að hjálpa sér að komast
gegnum nóttina. Þá kastar
það sér yfir hvort annað og
nýtur líkama hvors annars
meðan það þarf ekki að taka
á sig neina ábyrgð. Um leið
og farið er að tala um ábyrgð
er fólk farið. Hvað mig varðar
haldast ást og kynlif í hendur
því lífið er of langt til þess að
leita ekki að því vandaðasta
sem býðst. Mér finnst þessar
skyndiástir, sem takast hér
með fólki um helgar, vera hluti
af ykkar þjóðfélagi og þá er
ég enn og aftur kominn að
gæðum.
Ykkur svipar svolítið til
hamstra á hjóli, þið hlaupið
hraðar og hraðar og hjólið
snýst æ hraðar en þið þorið
ekki að nema staðar vegna
2.TBL. 1993 VIKAN 33