Vikan - 28.01.1993, Page 44
27.1.-3.2. 1991
KAMERÚN
í Kamerún heimsóttum við
meðal annars þjóðgarðinn
Waza. Við fórum með inn-
fæddum fararstjóra að
nokkrum vatnsbólum til að
fylgjast með dýrunum koma til
að fá sér að drekka. Þetta var
spennandi að því leyti að
þarna fengum við að fara úr
bílnum og sitja við vatnsbólið
þegar dýrin komu og fengu
sér vatn. Fjölmenni var við
vatnið og biðu allir átekta. Eft-
ir stutta stund komu fílarnir
þrammandi í stórum hópum
og alltaf urðu þeir fleiri og
fleiri. Aður en við yfirgáfum
bílinn var okkur sagt að ef
einhver fílanna nálgaðist okk-
ur um of ættum við að flýta
okkur upp í trukkinn.
Við sátum og fylgdumst
með fílunum í um það bil hálf-
tfma en þá voru aðrir trukkar
farnir og við orðin ein eftir um-
kringd á að giska tvö hundruð
fílum af öllum stærðum og
gerðum. Fílarnir voru orðnir ó-
kyrrir og við því farin að
hugsa okkur til hreyfings,
flestir reyndar komnir upp í
trukkinn. Við vorum nokkur
ennþá að taka myndir þegar
hjörðin ókyrrðist eitthvað og
einn forystufílanna lét heyra
kröftuglega í sér, blakaði eyr-
unum og tók á rás í áttina til
okkar. Það var víst mjög fynd-
ið að sjá skelfingarsvipinn á
▼ í þjóö-
garöinum
Waza hitt-
um viö
þessa Ijón-
ynju en
hún mátti
ekkert
vera aö
því aö
staldra
viö.
okkur þegar við komum
hlaupandi líkt og við ættum líf-
ið að leysa. Sumir bösluðu við
að halda á myndavélum og
þrífæti, aðrir voru tómhentir
eða með myndavél. Svo var
slegist um að komast upp
stigann inn í bílinn og náung-
anum jafnvel þeytt frá til að
bjarga eigin skinni. Þá var fíll-
inn reyndar snúinn við til
hjarðar sinnar en um það
höfðum við enga hugmynd á
því augnabliki. Haft var á orði
að þarna hefði hið rétta eðli
sumra komið í Ijós.
Nokkrum dögum síðar fór-
um við upp í Kapsikifjöll. Á
◄ Börnin
báöu
ákaft um
„cadeau"
gjöf.
Onnur
stóöu
bara og
mændu á
okkur meö
útrétta
lófa, en ef
vió litum
undan og
þóttumst
ekki taka
eftir þeim
var hnippt
i mann.
► Fílarnir
farnir aö
ókyrrast.