Vikan - 28.01.1993, Side 54
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SKRIFAR UM SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
þola. Hann segir meöal annars þetta eftir aö hafa
upplifað þá niöurlægingu, eins og hann segir sjálf-
ur, aö hafa mátt sjá á eftir konunni sinni í fang vinar
síns sem hann treysti gjörsamlega eins og henni
reynar líka: „Veistu þaö, Jóna Rúna,“ segir Helgi,
„að ég hlýt að vera geöveikur þvi mig langar hrein-
lega til að drepa þau bæði. Hugsaðu þér, þetta
kvikindi heiur verið inni á heimilinu mínu nákvæm-
lega á sama tima og hann helur verið i ástarsam-
bandi við konuna mína. Það er varla hægt að sýna
manni lélegri framkomu. Hún er frekar viðkvæm
VINUR
MINN
SVIKSEMI I
VINÁTTU- &
TRÚNAÐAR-
SAMBÖNDUM
Vegna þess aö mér hafa á liðnum mánuðum borist
mýmörg bréf um sviksemi í vináttu- og trúnaðar-
samböndum er upplagt aö leggja almennt út af
slíku efni að þessu sinni og heppilegt aö vitna í eitt
af bréfum þeim sem fjalla um þannig framkomu og
atferli vinar og ástvinar viö vin sinn annars vegar
og maka hins vegar. Auövitað nota ég eins og áöur
innsæi mitt, hyggjuvit og reynsluþekkingu til aö
styrkja uppbyggingu svara minna.
manneskja og trúlega áhrifagjörn líka. Ég er ekki
að afsaka hana, Jóna Rúna, en mér finnst eins og
henni sé ekki sjálfrátt eða eitthvað. “
ÓHEIÐARLEIKI OG SIÐFÁGUN
Eins og Helgi bendir á er meö öllu óskiljanlegt
hvernig hægt er aö vera svona óheiöarlegur og þaö
viö vin sinn annars vegar og maka hins vegar.
Varla getur talist eölilegt að koma svona fram. Þaö
virðist varla eðlilegt meö tilliti til lágmarks siöfágun-
ar. Þaö á enginn aö taka þaö sem er sýnilega ann-
arra í tilfinningamálum. Helgi segir og spyr jafn-
framt: „Hvernig getur fótk verið svona ómerkilegt?
Innst inni vil ég sennilega fá hana aftur þótt ósenni-
legt sé að hún snúi baki við honum. Hún viröist
bergnumin af vini mínum. Þau ganga hér inn og út
bæöi og ætlast til að ég passi barnið ótæpilega
mikið, ásamt því að gera við bilinn hennar fyrir
hana. Allt virðist þetta vera meira en sjálfsagt frá
þeirra sjónarhorni séð. Finnst þér að ég ætti að líða
svona framkomu?"
NIÐURLÆGING OG HEFND
Viö skulum láta Helga, sem er nítján ára, segja hug
sinn og leggja síðan í kjölfar þess út af þeim spurn-
ingum sem vaknað hafa innra meö honum og flest-
um hinna bréfritaranna sem upplifað hafa álíka
trúnaðar- og sviksemisbrot og hann hefur mátt
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
aö fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
SJÁLFSTRAUST í MOLUM
Helgi segir jafnframt í þessum upplýsingum í bréfi
sínu eitt og annaö sem er mjög táknrænt fyrir mörg
hinna bréfanna líka. Til dæmis segist hann hafa
tapað lífsviljanum og sig langi til aö deyja. Eins
bendir hann á að sjálfstraustið sé algjörlega í mol-
um og hann viti stundum ekki hvernig hann eigi aö
komast í gegnum dagana hjálparlaust, svo ótrúleg
er innri vanlíðan hans og smæðarkennd.
Það má líka reyna aö svara honum og hinum
bréfriturunum jafnframt þegar þeir segja frá því aö
þaö sé eins og þeir hafi tapaö hæfileikanum til að
treysta og trúa á dýpri tengsl eftir aö hafa fengið
svona lítilmótlega útreiö frá fólki sem þeir treystu.
Helgi kveöst lesa allt sem ég skrifa og skorar á mig
aö halda ótrauö áfram á sömu braut. Fyrir þessa
hvatningu vil ég náttúrlega þakka honum sérstak-
lega, ekkert síður en þeim hinum sem skrifaö hafa
mér um svipaða eöa sams konar reynslu og koma
vonandi til meö aö nota sér svör mín ekkert síöur
en hann.
^V/
i
VINIR EÐA ÓVINIR
Ef viö til aö byrja meö íhugum svolítið vináttuna má
segja sem svo aö þaö sé yfirleitt mikið lán aö eiga
góöa og heiðarlega vini. Viö þurfum nefnilega öll aö
finna fyrir heilindum vina okkar í öllum samskiptum
en ekki óheilindum og ættum ekki aö þurfa aö ótt-
ast um okkar nánustu fyrir þeim. Það liggur því í
hlutarins eöli aö þaö hlýtur aö valda okkur sárum
vonbrigöum þegar viö uppgötvum aö verið er aö
fara alvarlega á bak viö okkur eins og til dæmis
augljóslega hefur gerst í Helga tilviki. Hann var al-
veg grandalaus og áttaöi sig ekki á svikunum sem
voru í gangi við nefið á honum. Hann treysti bæöi
konunni sinni og vini enda einlægur og heiöarlegur
sjálfur. Vonbrigðin, sem skapast innra meö okkur
þegar vinir okkar og makar veröa til þess aö fara á
bak viö okkur og svíkja okkur ósæmilega, eru ólýs-
anleg og afar óþægileg. Helgi hefur svo sannarlega
ekki farið varhluta af einmitt þannig vonbrigðum á
liönum vikum.
MANNGILDI HAFNAD GRÓFLEGA
Vitanlega hefur þaö mjög sérstök áhrif á tiltrú okkar á
manngildi okkar þegar okkur er hafnaö gróflega af
manneskju sem viö elskum. Helgi ann sýnilega kon-
unni sinni þrátt fyrir tryggöarbrotiö og því er, eins og
hann sjálfur segir, mjög niöurlægjandi aö þurfa aö
upplifa þaö aö slíkur aöili fótumtreöur þessar sér-
stöku og viökvæmu tilfinningar sem tengjast alltaf ást
á maka sínum. Þaö kemur líka fram aö reiði hans er
gifurleg, ekki bara út í hana aö gefnu tilefni heldur
vininn líka. Vinir eiga ekki aö svíkja hver annan. Vin-
áttan er samband á milli fólks og á að byggjast upp á
einlægni, trúmennsku, heiðarleika og væntumþykju
sem liggur meöal annars í því aö hafa áhuga á vel-
ferö vina sinna viö sem flestar aðstæður, ekkert síöur
en sínum eigin framgangi.
Hvers kyns sviksemi við vini sína er ómerkileg.
Eins er þaö alvörumál aö eiga þátt í því aö ögra til-
trú fólks á eigin persónu meö því aö koma ósæmi-
lega fram viö það að ósekju og þá þannig aö þaö
eigi lítiö færi á aö verjast athæfinu. Þótt að okkur
só vegið veröum viö aö passa aö efast aldrei um
manngildi okkar, þrátt fyrir aö á móti blási og reynt
sé aö vinna okkur einmitt þannig mein meö hvers
kyns sviksemi og ööru óréttlæti.
SIDFERÐISKENND OG
ÓHEPPILEGUR SKAÐI
Þaö viröist því einhverju vera ábótavant i siöferöis-
kennd þess manns sem getur svikiö vin sinn meö
þeim lúalega hætti sem vinur Helga gerði og viröist
lítiö finnast athugavert viö þaö, satt best aö segja.
Skaöi sá sem þegar hefur hlotist af þessu, bæöi til-
finningalegur og andlegur, veröur seint bættur enda
er Helga þaö fyllilega Ijóst sjálfum. Máliö er bara aö
sá sem gerist brotlegur við aöra og sér í lagi þá
sem treysta honum er, þegar dýpra er skoöaö, aö
brjóta mun meira á eigin persónu en hann gerir sér
mögulega grein fyrir. Þetta ber aö hafa í huga þótt
fljótt á litið viröist eins og svo sé ekki. Þaö lítur út
eins og Helgi veröi undir í þessum átakanlega hild-
arleik skakkra samskipta og vanvirtra tilfinninga.
Svo verður auövitaö ekki þegar upp er staöiö.
MÓTLÆTI OG MISGÁNINGUR
Auövitað hafa komiö mjög slæmar afleiðingar inn í
líf Helga síðan atburöarás hans daglega lífs tók á
sig þessar skuggalegu myndir. Hann mun samt
finna - eins og allir aörir sem órétti eru beittir - aö
honum veitist eitt og annaö innan frá sem afleiöing
af þessari hrottalegu reynslu og þaö mun skila sér í
auknum þroska hans. Ef viö veljum rétt viöbrögö og
viljum yfirvinna hvers kyns óréttlæti getum viö eflst
viö mótlæti og misgáning annarra með jákvæöum
54 VIKAN 2. TBL. 1993