Vikan - 25.02.1993, Blaðsíða 44
HUGARÓRAR HALLGERÐAR
Já, ég sagöi þessum bolta að
böggast i burtu þegar hann
kom meö þessa erfðaskrá til
mín um daginn. Glætan. Hann
er fáviti. Rétt eins og ég geti á
brúðkaupsdaginn notaö sem
hárnet moldlegiö „gráslepþu-
net“ síöan um aldamótin, eins
og pinninn óskar eftir í skránni.
Baddi bróöir, þessi fáránlegi
sjálfssvelti sjúklingur, fylltist
græðgi þegar hann sá erföa-
skrána og baö mig um að biðja
pabba aö gefa sér netin. Eg
meina, ef gamli njólinn ætlar
aö arfleiöa mig aö einhverju, af
hverju þá ekki húsinu á Flór-
ída. Nei, nei, það má ekki,
enda ætlar hann greinilega að
nota þaö sjálfur bæöi hérna
megin og hinum megin. Glæt-
an.
Eins og sjái ekki allir í gegn-
um svona hrikalega lúmsku.
Hann heldur að ég falli í stafi
yfir þessum grásleppunetum
sem hann sjálfur erföi eftir
ömmu sína og hefur notað
sem flugnanet einmitt úti á
Flórída. Sénsinn. Ég ætti ekki
annað eftir en aö nota
grámyglað grásleppunet sem
höfuðfat á brúðkaupsdaginn,
bara af því aö amma gamla
naut þess aö gera þaö. Mann-
eskjan var meö svo mikið hár
aö hún gat auðveldlega dress-
aö sig upp meö því. Meira aö
segja dugöi það í sokka á geit-
ina á sama tíma, svo rosalega
langt var þaö. Ef hún átti aö
sjást á brúðkauþsdaginn varö
hún aö nota netiö. Glætan.
Ég hef sáralítið hár síðan ég
var látin labba stanslaust í
skólann í fyrra. Baddi, þetta
ógeö, ætlar örugglega aö
reyna aö veiða hafmeyju eöa
eitthvaö í netið. Hann er ekkert
eölilega kynsjúkur, gaurinn.
Mamma veit allt um málið
og sagði viö gamla boltann aö
hann skyldi ekki voga sér aö
geyma netiö í húsinu og gjöra
svo vel aö dysja gripinn. Peran
heldur aö liöiö hérna á Nesinu
haldi aö viö séum komin af
helstu höfðingjum landsins. Ég
meina, geitin segir aö viö séum
náskyld meiri háttar dæmi á
þinginu. Hún veit svo innilega
aö ef viö svo mikiö sem orðum
þetta meö grásleppunetin get-
um viö gleymt því aö hafa ein-
hvern tíma átt kost á aö ganga
framhjá genginu í götunni án
þess aö þurfa aö skammast
okkar. Sénsinn.
Auðvitað er ég ekkert smit-
uö af svona rosalegu snobbi.
Ég meina, viö erum ekki eina
fyrrverandi verkafólkið á Nes-
inu. Ég get ekki búiö með
þessu pakki. Þaö er svo inni-
lega afbrigöilegt. Vonandi fæ
ég farið til London eins og hin-
ir krakkarnir í götunni. Ég
meina, við ætlum bara i
sæmilega stóran hamborgara
og franskar i London. Viö
fljúgum náttúrlega heim strax
eftir matinn. Nei, sénsinn.
Maður fær ekki tíkall í svona
ferð en á sama tíma er verið
að plana arf á höfuðið á
manni.
Viö skulum athuga þaö aö
þegar Jóa þurfti hundraðþús-
undkallinn um daginn var nóg
fyrir hana aö rétt nefna þaö.
Gamla settið heima hjá henni
vill ekkert vesen og gatan má
ekki heyra neitt ósæmilegt frá
húsinu, nema þá kannski ríf-
legt rop eða í mesta lagi smá-
prump. Jóa hótaöi bara góöu
gargi og stóru aukaprumpi ef
hún fengi ekki seðilinn snögg-
lega. Vonandi verö ég upp-
götvuö snarlega. □
/ Moa/a/- WM MiTA XABðA AM'LLi/frr AiMi/T m wtpA- jlató / biduR^ CíhlnlfA. 'iLL- áfóSi
—> z Vi&TAÖi
»• •' t / ^ i . i f- Æfl- Xp? il FdL-É) fi kemmmr Ei.SK/l 5" ' » 3
/ 'ol- ST ofu/( iL.r4fi% bREÍAjSA 'Mf\Lb V > J
SAKA^ FfiTAI- fi-BufiL !o
Ro^'AJ AE’jFiST \/ > 1 > FL'ijTÍ SK.ÍP- STj ÖRfi
wmz > A\TJHT SfifiiST. STfíFi/L
STfiR. F- RíMCTt Kfi/ZL- FUCxLfi tAfiNt/S- NfiFAJ > V
/ Z 3 y S- !o 'lojRA
44 VIKAN 4. TBL. 1993
Lausnarorö í síöasta blaöi: ÞORRI