Vikan - 19.05.1993, Page 50
TEXTI: HELGA MÖLLER/UÓSM.: BRAGIJÓSEFSSON, ÞORSTEINN ERLINGSSON O.FL.
LINDA PETURSDOTTIR
UM NEKTARMYNDATÖKUNA
Biyy
IEYNA
EYTA
MYNDUM
FOLKS
UM MIG
rált fyrir kvef og hæsi,
sem sjálfsagt eru af-
leiðingar hins „indæla,
íslenska vors“, gaf Linda Pét-
ursdóttir sér tíma til að spjalla
stuttlega um nýju umboðs-
skrifstofuna sína, fyrirsætu-
keppni Vikunnar, sjálfa sig,
sambýlismanninn og ekki síst
um hina margumtöluðu nekt-
armyndatöku sem nú er að
hluta til afstaðin.
Eins og flestir vita hefur
Linda stofnað umboðsskrif-
stofu fyrir fyrirsætur hér á
landi, ásamt sambýlismanni
sínum, hinum skoska Les Ro-
bertson. Umboðsskrifstofan
ber nafnið Wild. Vikan hefur
hafið samstarf við Wild um leit
að forsíðustúlku Vikunnar og
munu átta stúlkur verða vald-
ar til að keppa um titilinn.
- Nú eru liðnir nokkrir mán-
uðir frá stofun Wild. Hvernig
gengur?
„Það gengur bara mjög
vel.“ Linda brosti og hagræddi
sér í stólnum. „Það er nóg að
gera,“ bætti hún við. „Þær
sem hafa mest að gera fá tvö
til þrjú verkefni á viku og það
er mjög gott á íslenskan
mælikvarða."
- Hvað eru margar fyrirsæt-
ur á skrá hjá Wild?
„Svona um tuttugu eins og
er, þar af um það bil fimm
strákar. Við ætlum hins vegar
að fara upp i svona þrjátíu.
Markmiðið er að hafa fáar en
góðar fyrirsætur á skrá til að
geta útvegað þeim öllum
vinnu. Það viljum við heldur
en að hafa yfir hundrað
manns á skrá sem síðan fá
ekkert að gera.“
- Eru verkefnin næg til að
þið getið lifað af að reka
svona fyrirtæki?
„í raun og veru ekki en við
stofnsettum Wild til að koma
íslenskum fyrirsætum á fram-
færi og miðla þeim af reynslu
okkar og þekkingu. Það kost-
ar heilmikið að reka svona
skrifstofu. Við leigjum hús-
næði og símakostnaður er
mikill því mest öll vinnan fer
fram í gegnum símann.“
- Sjáið þið einungis um að
útvega fólk í myndatökur eða
standið þið líka fyrir tískusýn-
ingum?
„Hvort tveggja. Það er ofsa-
lega mikið um sýningar. Svo
förum mikið út á land. Við höf-
um þegar verið á Hornafirði
og erum á leið til Akraness og
fleiri staða. Svo komum við
líka krökkum á framfæri úti og
þegar hefur ein stelpa verið
ráðin hjá Elite í London.“
- Þið stóðuð fyrir námskeiði
í mars. Varþátttakan eins góð
og ífyrra?
„Já, hún var mjög góð. Við
vorum mjög ánægð með
námskeiðið og líka krakkarnir
sem sóttu það, held ég.
Stjarna námskeiðsins var
Heiðar Jónsson, hann var al-
veg æðislegur. Svo fengu
krakkarnir þar að auki góðar
gjafir frá YSL snyrtivörufyrir-
tækinu og Vífilfell sendi okkur
kók og snakk okkur að kostn-
aðarlausu. Þetta var mjög
gaman en mikið verk, sérstak-
lega eftir á, við val, stækkun
og flokkun mynda og annað.
Það verður bið á því að við
endurtökum þetta því þetta út-
heimtir svo rosalega mikla
vinnu."
- Nú eru fjölmargir ungir
Ijósmyndarar að skjóta upp
kollinum hér heima. Hafið þið
samstarf við einhverja þeirra?
„Já, krakkarnir, sem eru að
byrja, þurfa að koma sér upp
möppu til að geta sýnt. Við
vinnum mikið með Sissu Ijós-
myndara og ungum strák,
Sveini Speight, sem er rétt að
byrja en er alveg frábær. Svo
eru Keli á Mogganum, Gústi,
Bernharð Valsson eða Benni
sem vinnur mikið í París og
Max Bradley líka í töluverðri
samvinnu við okkur. Það eru
margir góðir Ijósmyndarar
hérna.“
Með stofnun Wild eru um-
50 VIKAN 10. TBL. 1993