Vikan - 19.05.1993, Page 58
Myndin greinir frá tveimur
bræðrum á tímum heims-
kreppunnar miklu á þriðja og
fjórða áratug þessarar aldar í
Bandaríkjunum. Bræðurnir
eiga ástríka foreldra og faðir-
inn kennir þeim hversu mikil-
vægt sé að veiða á flugu.
Sagan er kannski ekki sérlega
safarík eða krassandi en hún
hefur þann boðskap fram að
færa að þegar í harðbakkann
slær er mikilvægt að fjöl-
skylduböndin séu traust.
Mynd þessi kom á óvart í
Bandaríkjunum með því að
slá í gegn þrátt fyrir að ekki
geti talist um stórmynd að
ræða. Hún verður fljótlega
sýnd hér á landi.
Janet
Jacksoní
Poetic
Justice.
JANET JACKSON
í BÍÓMYND
John Singleton er 25 ára
gamall blökkumaður sem árið
1991 kom rækilega á óvart
með fyrstu mynd sinni, Boyz
in the Hood. Skilaði myndin
sú 57 milljónum Bandaríkja-
dala. Nýjasta mynd Single-
tons heitir Poetic Justice og
er með poppgyðjunni Janet
Jackson. Greinir þar frá Ijóð-
skáldi sem vinnur á hár-
greiðslustofu. Janet Jackson
þykir standa sig með prýði.
Myndin verður væntanlega
sýnd í Stjörnubíói.
BÆRILEG
BJÖRGUNARLAUN
Loksins kemur út mynd sem
heitir Mad Dog and Glory og
Robert De Niro, Bill Murray
og Uma Thurman í Mad Dog
and Giory.
er með þríeykinu Robert De
Niro, Bill Murray og Uma
Thurman. Mynd þessi var
lögð á hilluna þegar hún þurfti
á endurklippingu að halda en
Matt Dillon og Annabelle Sciorra í Mr. Wonderful.
nú er hún sem sagt á leiðinni.
í Mad Dog and Glory segir frá
lögreglumanni sem Robert De
Niro leikur. Hann bjargar frá
bana manni nokkrum sem
lendir í miðju bankaráni þegar
hann ætlar að leggja inn á
sparibók sína. Náunginn reyn-
ist vera melludólgur og lífgjöf-
ina vill hann launa með fal-
legri stúlkusnót sem lögreglu-
maðurinn fellur kylliflatur fyrir.
John McNaughton leikstýrir
myndinni en hann gerði síðast
Henry: A Portrait of a Serial
Killer.
SÍDASTA HASARHETJAN
Loksins fær hasarleikstjórinn
John McTiernan verðugt
verkefni. Hann færði okkur
megaspennumyndirnar Die
Hard 1 og The Hunt for Red
October. Síðan gerði hann
örvæntingarfulla tilraun til að
búa til frumskógarvasaklúta-
mynd sem hét The Medicine
Man og var með Sean Conn-
ery og Lorraine Bracco. Þar
átti McTiernan ekki heima.
Hans sérsvið er harðsoðnar
spennumyndir. The Last Act-
ion Hero mun sanna það en
hún verður sýnd í Stjörnubíói
f september. í myndinni leika
- haldið ykkur - Arnold
Schwarzenegger, Mercedes
Ruehl (The Fisher King),
Charles Dance (The Golden
Child, Alien 3) og F. Murray
Abraham (Amadeus, The
Last Innocent Man).
Arnold Schwarzenegger er
þarna í hlutverki hasarmynda-
leikara sem dýrkar morð og of-
beldi. Strákur nokkur, mikill að-
dáandi kappans, vill kenna
honum að meta lífið og elska
friðinn. Hvernig getur svo
strákurinn kallað hið góða fram
í leikaranum? Jú, með undra-
aðgöngumiða. Strákurinn kall-
ar gaurinn út úr einni hasar-
myndinni meðan á sýningu
stendur. Áhorfendum til mikill-
ar hrellingar stígur hann út úr
myndinni og hittir strákinn Ijós-
lifandi. Saman halda þeir síð-
an út úr kvikmyndahúsinu og
hefst þá alvöru atburðarás.
FIMMTA DAUÐAÓSKIN
Gamla brýnið Charles Bron-
son er langt frá því að vera
dauður úr öllum æðum. Hann
leikur nú í fimmta sinn Steve
Weston, arkitektinn frá New
York sem einbeitir sér að
byssuleik sem fyrr. Hann
dustar rykið af gylltu byssun-
um sínum eftir að hafa horft
upp á dusilmenni hella sýru
yfir unnustu sína og drepa
hana sfðan. Þá rennur æði á
Steve Weston og hann
strengir þess heit að tortíma
öllum glæpagengjum New
York borgar. Upphefst nú mik-
ið götustríð, lögreglan stendur
ráðvillt en Steve Weston gefur
ekkert eftir.
1001 NÓTT
í TEIKNIMYND
Aladdin frá Walt Disney sló
öll aðsóknarmet í Bandarfkj-
unum í fyrra. Þar Ijáir Robin
Williams Aladdin rödd sín en
teiknimyndin greinir frá þjófi
sem stelur töfralampa til að
öðlast betra líf og vinna ást
göfugrar og fallegrar prins-
essu. Myndin verður sýnd í
Sambíóunum.
HERRA YNDISLEGUR
Matt Dillon, sem lék svo eftir-
minnilega í Singles sem sýnd
var fyrir nokkrum mánuðum,
hefur nú leikið í nýrri mynd
sem heitir Mr. Wonderful.
Auk hans leika þar Annabelle
Sciorra (Whispers in the
Dark, Jungle Fever, The
Hand that Rocks the Cradle),
William Hurt (The Doctor) og
Mary Louise Parker (Grand
Canyon, Fried Green Tom-
atoes). Við stjórnvölinn er
breski leikstjórinn Anthony
Minghella sem leikstýrði Tru-
ly, Madly, Deeply með Alan
Rickman (Die Hard, Robin
Hood: Prince of Thieves).
Matt Dillon leikur rafvirkj-
ann Gus sem nýskilinn er við
fyrstu ástina sína (Annabelle
Sciorra). Gus mun vitaskuld
borga meðlag en hefur samt
áhyggjur af þessari fyrrum
eiginkonu sinni. Hún er dálítið
stefnulaus, langar til að Ijúka
háskólanámi sínu en til þess
skortir hana fé. Gus afræður
að finna efnaðan eiginmann
handa henni. William Hurt
leikur giftan háskólaprófessor
sem heldur við þá fyrrverandi
en vill hvorki skuldbinda sig
né fórna sér fyrir hana með
því að skilja við eiginkonu
sína. Gus er kominn með
nýja ástkonu en ákveður að
færa mikla fórn. Hann ætlar
að slíta ástarsambandi sínu
og heitbindast sinni fyrrver-
andi á ný. Hann er „herra
yndislegur". Mr. Wonderful er
ein af fjölmörgum raunsæis-
myndum sem nú koma frá
Bandaríkjunum enda var
kominn tími til. □
58 VIKAN
10.TBL. 1993