Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 10
'iCD, ym
EINKAVIÐTAL VIKUNNAR VIÐ WOLFGANG SCHÁUBLE
og skilning fyrr en þeir hafa
beitt aðra ofbeldi. Það hefur
löngum verið svo að hluti íbú-
anna, hvort sem er í Þýska-
landi, Belgíu, Frakklandi,
Sviss eða Austurríki, hefur
orðið fyrir vonbrigðum og finn-
ur ekki skoðunum sínum og
Pípureyk-
ingamaóur
og nýtur
lífsins
þegar
hann
kemur því
viö.
Stöndum
meö
flóttafólki
- tilveru-
rétt öllum
til handa.
Þjóóverjar
hafa tekió
viö fjölda
flótta-
manna.
tilfinningum stað nema í öfga-
hópum til hægri eða vinstri. Á
tímum öryggisleysis og mikilla
breytinga verður þetta meira
áberandi og nú eftir fall
Berlínarmúrsins og járntjalds-
ins eru öfgar til hægri sá kost-
ur sem sumir hafa valið sér,
hin algjöra andstæða. Með
því að koma á sem mestu
jafnvægi á sem flestum svið-
um þarf okkur ekki að stafa
hætta af öfgum til hægri eða
vinstri. Við þurfum að losa um
þá spennu sem myndast hef-
ur.“
ÞJÓÐVERJAR
UNDIR SMÁSJÁNNI
- Finnst þér misskilnings
gæta í fjölmiðlum utan Þýska-
lands, til dæmis hvað varðar
útiendingahatur?
„Við verðum að umbera
slíkt og reyna að skilja að
margt fólk utan Þýskalands
fyllist meiri óhug þegar það
fær fréttir af voveiflegum at-
burðum síðustu vikna hér í
landi fremur en ef þeir hefðu
gerst einhvers staðar annars
staðar í Evrópu. Fólk óttast
slíkt og um leið kemur upp
umræðan um nýnasista og at-
burðir úr sögu okkar eru rifj-
aðir upp. Við vitum líka að
hliðstæðir atburðir eiga sér
einnig stað í öðrum Evrópu-
löndum. Við verðum að gæta
okkur sérstaklega vel á að
slíkt geti gerst. Mitterrand
Frakklandsforseti sagði á
dögunum vegna atburðanna í
Solingen að um aldamótin
yrði margt fólk viða um heim
farið að fylgjast með atburð-
um í Þýskalandi af meiri ná-
kvæmni og um leið kvíða. Slík
ummæli verðum við að reyna
að skilja - en við vitum jafn-
framt að atburðir af þessu tagi
eiga sér líka stað í Frakklandi
og það verða þeir að viður-
kenna um leið og þeir viðhafa
slík ummæli um Þýskaland.
Því miður eru dómarnir oft
einhliða og yfirdrifnir en við
erum vegna fortíðarinnar á-
vallt undir smásjánni í þess-
um efnum, það verðum við að
sætta okkur við.“
- Þú varst innanríkisráð-
herra á tímum sameiningar-
innar og að flestra dómi
stóðstu þig mjög vel. Hvers
vegna hættir þú ráðherradómi
og gerðist formaður þing-
flokks CDU/CSU?
„Ég hafði alltaf mikla á-
nægju af því að vinna í þing-
flokknum þar sem ég var
framkvæmdastjóri áður en ég
gerðist ráðherra. Ég hafði oft
rætt það við Helmut Kohl að
ég hefði áhuga á formanns-
starfinu þegar það losnaði og
þáði það þegar tækifærið
bauðst. Mér líkaði líka vel
sem innanríkisráðherra og
vera kann að ég hefði haldið
því áfram ef persónulegir hag-
ir mínir hefðu ekki breyst. A-
byrgð mín sem formaður
þingflokks er önnur en sem
innanríkisráðherra en bæði
eru embættin skemmtileg og
tilbreytingarrík. Mér þótti ekki
létt að yfirgefa ráðherrastólinn
á sínum tíma en gerði það
engu að síður með glöðu
geði.“
NÆSTA KANSLARA-
EFNI?
- / nýlegri grein í hinu víð-
lesna blaði Wochenpost (27.
maí sl.) er látið að því liggja
að þú sért jafnvel valdamesti
maðurinn í Bonn. Hvað viltu
segja um þær bollaleggingar?
„I stjórnmálunum hér er
kanslarinn að sjálfsögðu sá
sem mest áhrifin hefur en
hvort hann er um leið valda-
mesti maðurinn veit ég ekki.“
- Kosningar verða að ári og
margt bendir til þess að þið,
kristilegir demókratar, CDU
og CSU, eigið miklar likur á
að sigra. Stjórnarandstaðan
er veik um þessar mundir,
sósíaldemókratar í for-
mannskreppu eftir að Björn
Engholm dró sig í hlé. Um
það er rætt og ritað að Kohl
stjórni flokknum í kosningun-
um en muni draga sig út úr
fremstu víglínunni að tveimur
árum liðnum. Ert þú þá ef til
vill líklegur sem kanslaraefni í
kosningunum þegar þar að
kemur?
„Veistu hvað - CDU, kristi-
legir demókratar, eru ekki
reiðubúnir til þess um þessar
mundir að halda uppi umræð-
um um það hver verður næsti
kandidat. Við höfum nú góðan
kanslara sem náð hefur mikl-
um árangri og umræður af því
tagi hvað gerast kann ein-
hvern tímann þegar hann gef-
ur ekki lengur kost á sér eru
tilgangslausar og því tek ég
ekki þátt í þeirn."
ÍSLAND VELKOMIÐ í EB
- Snúum okkur næst að Evr-
ópubandalaginu og spurning-
unni um hvort þaö yrði litlu
landi sem íslandi til góðs að
ganga í það, með öll sín sér-
kenni. Hvererþín skoðun?
„Ég get tæpast gefið les-
endum Vikunnar góð ráð í
þeim efnum, þeir vita það
miklu betur sjálfir. Ég get hins
vegar sagt það, að ísland er
hluti af Evrópu og því eru ís-
lendingar velkomnir í banda-
lagið. Þið verðið aftur á móti
að taka sjálfstæða og óháða
ákvörðun í þessum efnum. ís-
land er lítið land og fámennt,
auk þess sem það liggur tals-
vert frá öðrum löndum. Þetta
gerir ákvörðunina erfiðari.
Þýskaland er á meginlandinu
miðju. Okkar reynsla hefur
leitt okkur það fyrir sjónir að
sameining Evrópu og samein-
ing krafta hinna ýmsu þjóða
tryggir frið og kemur í veg fyrir
deilur um legu landarnæra og
nýtingu auðlinda, tryggir vist-
fræðilegar endurbætur. Því
betur sem okkur tekst að
sameina krafta okkar því fleiri
tækifæri eigum við til að taka
þátt í samkeppni við keppi-
nauta á markaðnum okkar í
Bandaríkjunum og Aslu til
dæmis. Engu að síður verður
hver þjóð að varðveita þjóð-
erni sitt og einkenni, svo og
menninguna sem gerir okkur
þetta kleift. Ég held að ef ís-
lendingar fylgjast með þróun
næstu ára á þessu sviði muni
þeir verða þeirrar skoðunar
að betra sé að ganga til liðs
við bandalagið, þess fullvissir
að þeir geti eftir sem áður
haldið öllum sórkennum sín-
um. Ykkur er ekki ógnað eða
hótað heldur miklu fremur
boðnir velkomnir."
SKIL MÁLSTAÐ YKKAR
Í HVALAMÁLINU
- Nú hafa þýsk fyrirtæki á
borð við Tengelmann-keðjuna
hætt að kaupa fisk af Norð-
mönnum vegna ákvörðunar
þeirra um að hefja hvalveiðar
að nýju. Það sama gerðist
þegar íslendingar hófu hval-
veiðar í vísindaskyni eftir að
Alþjóða hvalveiöiráðiö hafði
fallist á bann viö öllum hval-
veiðum. Þessar þjóðir eru að-
eins að reyna aö nýta stofninn
í þeirri vissu að honum sé
ekki hætta búin. Hverer skoð-
un þín á hvalveiðum íslend-
inga og Norðmanna?
„Ég trúi því að við berum öll
sameiginlega ábyrgð á varð-
veiðslu náttúrunnar og viðhaldi
hennar svo að næstu kynslóðir
geti notið hennar eins og við
fram að þessu. Við Þjóðverjar
höfum lagt mikið til málanna í
umhverfismálum síðustu árin
og við erum óánægðir með að
árangurinn skuli ekki hafa orð-
ið enn meiri en raun ber vitni.
Mér finnst að of margir einblíni
um of á einstaka þætti, meira
að segja fólk sem lætur sig
umhverfismál yfirleitt miklu
varða með góðum árangri. Oft
verður þetta til þess að á-
kveðnir hlutir eru gerðir tákn-
rænir fyrir heildina. Við verðum
að leitast við að stuðla að jafn-
vægi á milli nýtingar og við-
halds. Við erum öll sammála
um að við verðum að koma í
veg fyrir eyðingu hvalastofn-
anna. Við verðum að viður-
kenna að í langan tíma hefur
mikil rányrkja farið fram f höf-
unum og slíkt verðum við að
stöðva. Hvað mig varðar þá
verð ég að segja að ég held
að áróðurinn gangi svo langt í
þessum efnum að hann verði
skynseminni sterkari. Ég held
að Norðmönnum og íslending-
um sé treystandi til að nýta
stofnana með viðhald þeirra (
huga. Þess vegna skil ég mál-
stað þeirra og ber virðingu fyrir
honum.