Vikan


Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 37

Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 37
en þess konar álasanir standa í vegi fyrir lausnum. Viö erum svo upptekin af því aö hreyta ásökunum í hvort annað aö við sleppum tækifærinu til aö leysa ágreininginn. Þaö skiptir okkur meira máli að álasa hin- um aðilanum en að bæta stöðu okkar. Við þekkjum öll konuna sem segir við mann- inn sinn: „Við værum orðin rík ef þú hefðir leyft mér að kaupa þetta hús,“ eða móður- ina sem segir: „Ég hefði orðið konsertpíanisti ef ég hefði ekki lagst í barneignir.“ ■ Sumir hlaða upp álösun- um. „Foreldrar mínir voru svo fátækir að þeir höfðu ekki efni á því að kosta mig til mennta; þess vegna hef ég ekki há- skólamenntun, svo hvernig ætti ég að geta fengið al- mennilega vinnu?" Þessi álas- ari neitar að bera ábyrgð á sjálfum sér og bætir gráu ofan á svart: „Ég var rekin úr vinn- unni og er svo miður mín vegna þess að ég er farin að éta yfir mig og þess vegna er ég svona feit og karlmenn hafa engan áhuga á mér vegna offitunnar.'1 Keðjan er endalaus. ■ A - Ö. Þeir einstaklingar sem leggja stund á þessa teg- und álasana verja mestum hluta lífs síns í að álasa öðr- um. Það er aldrei neitt þeim að kenna. Afleiðingin er sú að afsakanalistinn - erfið æska, mörg misheppnuð sambönd - er óendanlegur. Þetta fólk veltir ábyrgðinni af gjörðum sínum yfir á aðra sem því finnast heimskir eða jafnvel ill- gjarnir. ALUR TAPA í ÁLÖSUNARLEIKNUM „Eitt það geðveikislegasta sem fólk gerir er að álasa öðr- um, hvort sem gert hefur verið á hlut þess eða ekki,“ segir sálfræðingurinn Wayne Dyer, höfundur bókarinnar Elskaðu sjálfan þig. „Sá sem trúir því að hann sé lélegur viðskipta- fræðingur vegna þess aö systir hans var í meira uppá- haldi hjá móöur þeirra nær aldrei að njóta sín til fulls. Álasanir ræna fólk valdinu til að velja og hafna.“ Með öðrum orðum þjóna á- lasanir eki hagnýtum tilgangi. Það breytir engum aö álasa einhverjum öðrum og bætir ekki stöðuna á nokkurn hátt; það er óskilvirkt og algerlega óvirkt. Álasanir laga ekkert. „Ég notaði „ömurlega æsku“ mína sem stóru afsök- unina fyrir „ömurlegum fullorð- insárum" árum saman," segir Jóna, 28 ára, sem er að Ijúka doktorsgráðu í heimspeki eftir langt tímabil áfengissýki sem hún taldi foreldra sína alfarið ábyrga fyrir. „Foreldrar mínir notuðu mig og bróður minn sem peð í skilnaði sínum," segir hún. „Okkur var þeytt fram og til baka á milli þeirra og óttuð- umst alltaf að vera vakin um miðja nótt og sagt að pakka. Við vorum dauðhrædd um að misklíð þeirra væri okkur að kenna.“ Jóna uppgötvaði áfengi á unglingsárum, drakk um helg- ar „til að deyfa sársaukann“ og var farin að drekka mikið þegar hún hóf háskólanám. „Ég fór beint úr tímum á bar- ina.“ Loks sendu foreldrar Jónu hana í meðferð. Ráð- gjafar komu henni í skilning um að hún hefði afsalað sér ábyrgð á sjálfri sér síðan í barnæsku. „Ég varð ekki hrifin af að heyra þetta,“ viðurkennir hún. „Ég áleit sjálfa mig fórnar- lamb. Loks rann upp fyrir mér að ég yrði að gera tvennt til að verða hamingjusöm: hætta að drekka og hætta að álasa. Það var auðvelt að hætta að drekka - ég hafði ekki drukkið nema í nokkur ár en ég hafði verið að álasa foreldrum mín- um frá upphafi." HVERNIG LÆ.RUM VIÐ AÐ ÁLASA? Eins og Jóna lærum við að álasa þegar við erum mjög ung. Sum börn nota álasanir til að verja sig bæði fyrir gagnrýni og of miklu ósjálf- stæði. Þetta er algengast þegar móðirin refsar barninu án þess að skilgreina að með því sé hún að hafna vissri hegðun en ekki barninu sjálfu. „Ég gerði það ekki, hann gerði það,“ er algeng setning hjá ungum skólabörnum. Börn læra líka aö álasa öörum þeg- ar þau vænta þess að þeim verði álasað. Foreldrar ættu því að gæta þess að vera sanngjarnir við börn sín og á- lasa þeim ekki að ósekju. Ef foreldrar hlusta á barnið sitt, ræða málin við það og út- skýra hvers vegna þeir eru sammála eða ósammála verður viðkomandi barn aldrei álasari. Ef við lærum að álasa í bernsku hagnýtum við það nám á fullorðinsárunum. Vissulega laða aðstæður á viö erfið ástarævintýri og óleyst vandamál við foreldra fram álasarann í öllum. Þótt það sé ekki hollt fyrir okkur að varpa sökinni á herðar ann- arra hefur það samt sinn til- gang. Væri ekki svo, væru all- ir til fyrirmyndar hvað per- sónulega ábyrgð varðar. Hvað er svona aðlaðandi við að segja erfiða bernsku ábyrga fyrir núverandi kring- umstæðum eða nota nýliðna reynslu sem afsökun fyrir því að halda ekki lífi okkar áfram? „Fólk er dauðskelkað við á- hættu, breytingar og ábyrgð,“ segir Wayne Dyer. „Að álasa öðrum er leið til að standa kyrr I sömu sporum. Ef ég get álasað öðrum fyrir erfiðleika mína þarf ég ekki að spyrja sjálfan mig: Hvers vegna leyfi ég honum að koma svona fram viö mig? Besta aðferðin til að komast hjá því að taka við stjórninni er að snúa sér að einhverjum öðrum og segja: Þetta er ekki mér að kenna. Þetta er þér að kenna. í stað þess að gera úrbætur í erfiðu hjónabandi ásökuðu Jón og Dóra hvort annað linnulaust og skildu að lokum. „Ég álasaði honum fyrir mitt framhjáhald. Hann var aldrei heima og ég var einmana," segir Dóra. „Hann sagðist aldrei vera heima af því að ég væri alltaf að rífast. Við fórum hring eftir hring en leystum aldrei úr neinu, gerðum bara hvort annað leiðara og leið- ara.“ Nanna var ritari með leynda drauma um að verða texta- höfundur á auglýsingastofunni sem hún vann á. Hún álasaði samstarfsfólki sínu þegar hún fékk ekki stöðuna. „Ég hafði nefnt þennan draum við fólk I deildinni og það hvatti mig til að segja framkvæmdastjóran- um frá honum en ég þorði það ekki. Þegar ég loks bað um viðtal við hann var það orðið of seint. Hann var búinn að ráða annan. Ég varð öskureið! Hvers vegna höfðu vinir mínir ekki sagt honum að ég sæktist eft- ir starfinu? Viku síðar borðaði ég meö aðstoðarstúlku hans. Ég sagði henni að það særði mig að enginn hefði nefnt við yfirmanninn að ég vildi fá þetta starf. Hún sagði salla- róleg - ég gleymi aldrei svipn- um á henni: Nanna, það var á þína ábyrgð að láta það frétt- ast, ekki okkar.“ Þetta er enn ein ástæðan fyrir því að fólk álasar, það á erfitt með að biðja um það sem það langar í og þarfnast. Síðan, þegar fólk fær ekki það sem það langaði í, álasar það vinum og kunningjum fyrir að uppfylla ekki óskirnar. □ ■ Þekktu álösunaroröin: ef; vegna; þú ert alltaf. Þagnaðu þegar þú heyrir þig segja eitt þeirra. ■ Geröu þér grein fyrir aö það bætir ekki stööuna aö álasa, jafnvel þótt hún sé einhverjum öörum aö kenna. Því fyrr sem þú hættir aö álasa öörum því fyrr tekurðu viö stjórn á eigin lífi. ■ Ekki álasa honum fyrir aö vera ekki betri elskhugi. Taktu honum eins og hann er eöa finndu nýjan mann. ■ Ekki vænta þess aö hann færi þér hamingju. Hamingja þín er á þína ábyrgö, einskis annars. ■ Leitaöu faghjálpar ef þú og maki þinn rífist stööugt um hver eigi sökina. ■ Gættu þín á afsökunum. Á- lasaröu umferöinni fyrir aö þú komir alltaf of seint í vinnuna? Stígöu þá jákvætt skref - á við að láta klukkuna hringja fyrr. ■ Spurðu yfirmanninn hvers vegna þú hafir ekki fengið stööuhækkun. Ef þú notar upplýsingarnar, sem þú færð, á uppbyggilegan hátt má vel vera aö þú eigir stööuhækkun í vændum. ■ Geröu þér grein fyrir því að viö leikum oft sama álösunar- leikinn viö yfirmenn og aöra á vinnustað og viö lékum við foreldra okkar og systkini. ■ Fyrirgeföu foreldrum þín- um, hvaö sem þaö er sem þú ímyndar þér aö þeir beri á- byrgö á. Líttu á það jákvæða sem þú fékkst frá þeim - yndi af tónlist, tilfinningu fyrir réttu og röngu, fallega framkomu, góðan smekk og sjálfstæða hugsun. 13.TBL. 1993 VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.