Vikan - 01.07.1993, Blaðsíða 55
- Hvernig stendur á þessu,
MacDonald? sagöi gesturinn viö
Skotann sem hatði boðið honum
heim. - Við erum sex við borðið
en þú hetur aðeins keypt fjögurra
manna tertu.
- Ég reikna fastlega með því,
svaraði Skotinn, að krakkarnir
verði svo óþægir við borðið að
ég verði aö reka þá út áður en að
tertunni kemur.
Blaðasali í Texas stóð á götu-
horni og hrópaði: - Svindlað á
98 manns!
Eldri maður keypti blaðið og
leit yfir það. - Ég sé ekkert um
þetta svindl í blaöinu.
Strákurinn var þá upptekinn
við aö hrópa: - Stórsvindl!
Svindlaö á 99 manns!
Stælgæi nokkur hafði boöið fal-
legri stúlku í bíltúr og auðvitaö
stoppaði bíllinn allt í einu þegar
FINNDU 6 VILLUR
þau voru komin nokkuö út fyrir
bæinn. Gæinn yppti öxlum og
stundi: - Bíllinn er líklega bensín-
laus. Stúlkan lét sér hvergi
bregða og dró vínflösku upp úr
tösku sinni, glaðhlakkaleg á svip.
- Þú ert svei mér ekkert blávatn,
sagði gæinn glaður í bragði. Er
þetta viskí eða vodka? - Bensín,
svaraði stúlkan og brosti sínu
blíðasta.
Prófessorinn var nýkvæntur
og kom heim fyrsta daginn,
rauk fram í eldhús, tók skeiö
og smakkaði á innihaldinu í
skaftpotti. Hann gretti sig og
sagði: - Uppþvottavatn! Þetta
geröi hann í nokkra daga þar
til kona hans sagöi ósköp ró-
lega: - Hvað er aö þér, góði?
Þetta er uppþvottavatn.
Sveitakona nokkur ætlaði í versl-
unarferð til borgarinnar. Ná-
grannakona hennar bað hana að
sinna fyrir sig nokkrum erindum í
leiðinni. Því lofaði sveitakonan.
Nágrannakonan skrifaði á lista
þaö sem kaupa átti og annað
það sem hún bað um að fyrir sig
yrði gert. Að lokum sagði hún: -
Svo ætlaði ég til Ijósmyndara en
það verður víst að bíða þangað
til ég fer sjálf í bæinn.
STJÖRNUSPA
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
ejeojs J9 jeuunuo^ jeg 9 ‘iuiqji
ejj i6œ|jel) quoa jnjaq ioíjB g ‘jisojq ueujiueiu ue J|60|n|Aj j(uqjo m0 j(Uje6Q0j mp ‘QiJJoq
je sujs^ejis xoqeijq 'G ‘eujpuAuj ? uu|ujo>i J9 issojjsod z Ts6u0| jnjoq ijjsuia |j) isj0 QjsnH ' L
HRUTURINN
21. mars - 20. apríl
Þú aflar á næstunni braut-
argengis þeim málstað sem þú hef-
ur mikla trú á og reyndar finnst þér
það létt verk. Þér mun líka veitast
heiður fyrir árangurinn sem þú
nærð, þó að þér finnist þú kannski
ekki eiga hann skilið.
NAUTID
21. apríl-21. mars
Eitthvað sem þér finnst þú
vera undir sterkum áhrifum frá mun
hafa mikil áhrif á líf þitt á næstunni
hvort sem þér líkar það betur eða
verr. Þér finnst til mikils að vinna
og ert tilbúinn að fórna ýmsu til að
ná takmarki þínu þó að á móti
blási. Horfðu á björtu hliðarnar.
TVÍBURARNIR
22. maí - 21. júní
Það gerir ekkert til þó aö
þú sért ánægður og stoltur með
það sem þú átt en láttu þaö samt
ekki stíga þér til höfuðs. Einhver
þér nákominn er reiðubúinn til þess
að fórna einhverju mikilvægu þér til
hagsbóta. Ert þú tilbúinn að gera
hið sama?
KRABBINN
22. júní - 23. júli
Þér finnst margt spennandi
vera að gerast í kringum þig. Þig
langar að taka þátt í þessu en hik-
ar. Hafðu hugfast að það að hika er
sama og aö tapa. Þér finnst mikil
spenna vera í kringum þig. Taktu
þátt í því sem þér verður boðið, þá
fyrst geturöu slakað á.
UÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Eftir að hafa legið undir
feldi um sinn og hlaðið rafhlöðurnar
ertu nú tilbúinn aö hella þér út í
hlutina á nýjan leik með það að
markmiði að ná nú betri árangri en
nokkru sinni fyrr. Það sem þú
keppir fyrst og fremst að er viöur-
kenning, þó svo þú kunnir að bera
á móti slíku.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Á næstunni verður þú upp-
tekinn af hlutum sem standa þér
nærri. Þar stendur þú augliti til
auglitis viö tilfinningar sem þú hefur
fram aö þessu átt erfitt með að
ræða um viö aðra. Þaö reynist þér
vafalítið heilladrýgra að þiggja
fremur en að hafna.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Þú átt auðvelt með að ná
sambandi við annað fólk og blanda
geði við það. Þú ert mannþekkjari
fremur en að þú sért opinskár. Þú
átt kost á að komast hjá erfiðleikum
í samskiptum þínum við valdamikla
manneskju, þó aðeins meö því
móti að þú þegir sem steinninn um
veikleika hennar.
SPORÐDREKINN
24. okt - 22. nóvember
Þú hefur ef til vill ekki verið
með það á hreinu hversu miklu
máli þú skiptir fyrir þá sem þú um-
gengst - fremur en hversu mikil-
vægir þeir eru þér. Sem betur fer
hefur þú aðgang að mikilvægum
upplýsingum sem geta komiö sér
vel.
BOGMAÐURINN
23. nóvember - 22. des.
Þú situr sem fastast á
verðmætum sem þú hefur aðgang
að ásamt einum öðrum. Kappkost-
aðu að komast að ótvíræöu og
sanngjörnu samkomulagi svo að
unnt sé að tryggja rétt ykkar beggja
sem best.
STEINGEITIN
23. des - 20. janúar
Þú verður í sviðsljósinu og
þér kann jafnvel aö finnast sem þú
sért öllum til sýnis, lokaður inni í
búri. Þér mun þó veitast auðvelt að
draga þig smám saman í hlé á
meðan athygli fólks beinist að öðru.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Það eru takmörk fyrir því
hversu mikið þú getur fórnaö þér
fyrir annað fólk og tími til kominn
að þú látir aðra um aö gera skít-
verkin. Reyndar verður þér hrósað
fyrir erfiðið en heiðurinn er ekki
alltaf eftirsóknarverður.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Um þessar mundir er mikill
hugur í fiskum og ástarlíf þeirra
með besta móti. Þú ættir að reyna
að koma sem mest til móts við
þann eöa þá sem þér þykir vænst
um og uppskera þá ánægju sem af
því getur hlotist. Ef þú átt þess kost
aö taka þátt í keppni er rétti tíminn
til að láta reyna á hæfileikana.
13. TBL. 1993 VIKAN 55