Vikan


Vikan - 01.07.1993, Síða 18

Vikan - 01.07.1993, Síða 18
verk Nellifer drottningar í myndinni Land faraóanna. Þar fékk einn yfirmanna Twentieth Century Fox augstað á henni og fastréð hana til fyrirtaekis- ins. Þar með fór leiðin að liggja upp á við. „Ég var einum of lausmál í sambandi við á- kveðna hluti í ástarlífi mínu,“ segir Joan Collins í þessu einkaviö- tali viö Vikuna. HEIMSKAR, KYN- ÞOKKAFULLAR STELPUR Fjöldi hlutverka kom í kjölfarið en flest voru það sem Joan vill kalla „veggfóðurshlutverk" - að vera fallega stúlkan sem bara stendur þarna í gömlu búningunum hennar Susan Hayward. Þrátt fyrir þessa skoðun hennar var hún í m ö r g u m metnaðarfull- um hlutverk- um og lék mjög ólíkar persónur, allt frá rolulegri senjorítu til s k i p r e i k a nunnu. Samt sem áður fannst henni hún alltof oft valin í sams- konar hlutverk og vegna þess lenti henni æði oft saman við yfirmenn sfna. Hún taldi sig sífellt vera að leika heimskar, kynþokkafullar stelpur. „Það getur hreinlega eyði- lagt feril hverrar konu að vera í hlutverkum heimskra kvenna í heimskulegum myndum,“ segir Joan. „Mig langar ekki að vinna við eitthvað sem mér finnst ekki borga sig og er þar að auki ekki eftir mínum smekk." Eitt af ógeðfelldari hlutverk- unum að hennar dómi var hlut- verk hennar sem vergjörn kvenréttindakona í kvikmynd sem byggð var á leikriti D.H. Lawrence, Sons and Lovers. Joan neitaði að mæta í tökur á einu atriðinu og létu yfirmenn Twentieth Century Fox hana ekki fá launin sín í átta vikur. Þeir létu hana lofa að Ijúka tveimur myndum áður en samningum við hana yrði sagt lausum. Hún sagði að þessar myndir hefðu verið það slæm- ar að hún vonaði að enginn hefði séð þær. Vel var fylgst með Joan Collins á þessum tíma, jafnt á hvíta tjaldinu sem í einkalíf- inu. Það vakti töluverða at- hygli þegar hún skildi við fyrsta eiginmann sinn, Maxwell Reed, árið 1957 eftir fimm ára hjónaband. Það sem ávallt tryggði henni athygli var að hún var síður en svo hátt- vfs í framkomu. Fékk hún mörg og skrautleg viðurnefni, var kölluð breska sprengju- varpan, hitabeltispakkinn og fleira í þeim dúr. Joan Collins var mikið út á lífinu í Hollywood á þessum tíma og var í nokkrum sam- böndum með þekktum mönn- um eins og leikaranum Sydn- ey Chaplin, hóteljöfrinum Nicky Hilton og um tíma var hún trúlofuð Warren Beatty. „Ég var mjög saklaus og ó- þroskuð stúlka þegar ég kom fyrst til Hollywood. Fyrir unga stúlku var þetta tilfinningaleg- ur frumskógur," segir Joan. „Þegar ég lít til baka finnst mér ég hafa komist býsna vel í gegnum hann.“ Hún er Ifka sannfærð um að orðspor sitt sem lista- manns hafi sloppið ótrúlega vel. „Ef á heildina er litið var megnið af þeim myndum sem ég lék í á þessum árum ekki neitt sérstakar en ég fékk hlutverk í nokkrum mjög góð- um myndum. Þær fengu góða dóma og það átti sinn þátt í að halda mér á floti sem þekktum listamanni. Stað- reyndin er samt sú að ég er fær um að leika miklu fjöl- breyttari hlutverk en flestir halda." SNERI SÉR AÐ BLÁUM MYNDUM Hún varð atvinnulaus í Hollywood upp úr 1961 og hélt þá aftur til Englands til að leika aðalhlutverkið í Bob Hope/Bing Crosby myndinni The Road to Hong Kong. Eftir það ætlaði hún sér að halda leikhúsferli sínum áfram í Bretlandi. Ekki fer þó allt eins og ætlað er og í stað þess giftist hún breska leikaranum, söngvaranum, lagahöfundin- um og sviðsstjórnandanum Antony Newley. Fór giftingin fram 27 maí 1963. Hann hafði samið marga frjálslynda og mjög vinsæla söngleiki. Næstu árin helgaði Joan Collins sig fjölskyldunni, manninum og börnunum þeirra tveimur, Tara Cynara og Alexander Anthony sem alltaf hefur verið kallaður Sacha. Það var ekki fyrr en árið 1967 að hún var tilbúin að leika aftur og fyrstu mynd- irnar hennar eftir þetta hlé voru Warning Shot, Can Heironymus Merkin Ever For- give Mercy Humppe og Find True Happiness. Þær fengu þá dóma að vera smekklaust rugl og sjálfmiðaður uppspuni, saminn og leikstýrt af eigin- manni Collins, Antony Newley. Hún lék einnig í fjölda framhaldsþátta í sjón- varpi og meðal þeirra má nefna The Man from U.N.C.L.E., Star Trek, Bat- man, The Virginian og Mission Impossible. Eftir að Joan skildi við Ant- ony Newley árið 1970 settist hún enn einu sinni að í London og fór að fást við „aðra hluti'1 eins og hún vill kalla það. „Ég opnaði diskó- tek, fór að stússa í innanhúss- hönnun, sjónvarpsþáttum og fleiru," segir Joan. Hún lék samt sem áður í fjölda kvikmynda og var alltaf að vinna. Það fór hins vegar ekki að snúast verulega á gæfuhliðina fyrir henni fyrr en hún lék í myndinni The Stud undir handleiðslu eiginmanns síns, Ronald S. Kass, en hon- um hafði hún gifst árið 1972. Hann hafði verið með hljóm- plötufyrirtæki og snúið sér að kvikmyndagerö. Ronald fram- leiddi The Stud en handritið var byggt á sögu systur Joan, Jackie. Myndin fjallar um í- þróttamannslegt kynlíf ungs eiganda diskóteks og vergjarna konu hans sem Collins leik. The Stud gerði það nokkuð gott peningalega og þetta var í fyrsta sinn sem Joan hafði einhverja peninga að ráði á milli handanna. Gagnrýnend- ur kölluðu myndina „ódýra kynlífssýningu" en hún gaf samt af sér milljónir dollara „og nafnið Joan Collins varð aftur þekkt" eins og hún segir. - Hvernig stóð á því að þú snerir þér að léttbláum mynd- um? „Ég gerði mér einfaldlega grein fyrir því að ég var allt f einu orðin fertug. Ég leit vel út, mér fannst ég vera góð leik- kona, betri en fólk sagði mig vera og því ákvað ég að not- færa mér það. Fólk hafði alltaf veitt útliti mínu meiri athygli en því sem ég var að gera. Ég vildi halda frægðarferlinum á- fram og ég birtist aftur fyrir augum almennings með því að fara úr öllum fötunum í því sem kalla má bláar myndir. Það varð til þess að ferillinn hélt áfrarn," segir Joan. DYNASTY Þrátt fyrir að hún héldi áfram að leika í bláum myndum tók hún einnig að sér hlutverk í annars konar myndum og gat sér nokkuð gott orð, vann meira að segja nokkur verð- laun fyrir aukahlutverk. Nefna má myndirnar The Big Sleep og rómantísku grínmyndina Sunburn. Hún lék einnig í vin- sælum framhaldsmyndaflokk- um í sjónvarpi eins og Bar- etta, Police Woman, Switch og Fantasy Island. Árið 1981 var Joan Collins ráðin til að leika í sjónvarps- þáttaröðinni Dynasty. Ætlunin var að bæta með því svolitlu af kynþokka og slægð f þætt- ina. Lék hún Alexis Carr- ington, fyrrverandi eiginkonu olíubarónsins Blake Carr- ington frá Denver. Collins lýsir Alexis sem undirförulli og samviskulausri konu, að vissu leyti með samsvörun við J.R. Ewing í Dallas-þáttunum. „Hún var ófyrirleitin, metnað- argjörn og samviskan ekki hreinni en flór. Þetta hlutverk var frábært,11 segir Joan. „Það sem ég var að reyna að gera með þessu var að færa þess- ar glæsilegu konur, sem við sjáum stöðugt á hvíta tjaldinu, yfir í sjónvarpið.11 Persónan J.R. Ewing færði Larry Hagman alþjóðlega frægð og Alexis Carrington gerði slíkt hið sama fyrir Joan Collins. Samt sem áður hafði hún ekki mjög háar hugmynd- ir um frægð í sjónvarpi. Jafn- vel þótt hún fengi tólf þúsund ástar- eða hatursbréf á viku vissi hún að frægðin er fall- völt. „Maður er kannski aðalum- ræðuefni bandarísku þjóðar- innar þennan mánuðinn en getur verið gleymdur þann næsta. Ég gerði mér grein fyr- ir því og það truflaði mig ekki neitt,11 segir Joan. Vegna þessa hefur hún alltaf verið opin fyrir öðru og ekki treyst á velgengni sfna í Dynasty. Hún gerði meðal annars margmillj- óna dollara samning við Revlon snyrtivörufyrirtækið og hefur verið talsmaður þess og auglýsingafyrirsæta um skeið. Joan Collins hefur alltaf verið þokkafull kona og litið vel út. Hún hefur stór grængrá augu, dökkbrúnt hár og mjög Ijósa húð. Hún er um 170 sentfmetrar á hæð og reynir að halda sér um 55 kílóa þungri með því að borða heilsusamlegan mat og gera líkamsæfingar í litlum leikfimi- sal sem hún hefur komið sér upp á heimili sínu. Hún hefur gefið út forskriftina að góðu útliti í bók sem heitir The Joan Collins Beautybook. Þegar hún vann að Dyna- sty-þáttunum var vinnudagur- inn gjarnan fjórtán tímar þannig að hún hafði hvorki mikinn tíma fyrir íþróttaiðkun né til að sinna áhugamálum sínum sem eru Ijósmyndun og söfnun antikmuna. Hún segist 18VIKAN 13.TBL. 1993

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.