Vikan - 01.07.1993, Síða 31
búðum verður maður alveg
óöur þegar maður fer að geta
valiö, kannski bæði um liti og
snið. Það allra besta er að
þurfa ekki að kaupa það
stærsta sem til er í verslunun-
um því ofan á allt er það jafn-
an í sauðalitunum. Þegar það
stærsta var ekki nógu stórt
þurfti klæðskerinn að kom til
sögunnar."
Á MIS VIÐ MARGT
Þegar veriö er að ræöa
hversu margt það er sem feiti
maðurinn á erfitt með að gera
kemur blik í augu Gunnars.
Nú eru honum allir vegir færir.
Að minnsta kosti hamlar lík-
amlegt atgervi honum ekki
lengur.
„Ég get nefnt sem dæmi aö
spölkorn fyrir ofan Akureyri er
eitt besta skíðasvæöi landsins
og þangað hafði ég aldrei
komið fyrr en ég fór nú um
páskana og gekk upp á topp
Hlíðarfjalls." Gunnar iðar í
skinninu og það er auðheyrt á
honum að hann ætlar sér að
njóta hverrar mínútu af sumr-
inu til þess að gera sitthvað
sem hann hefur hingað til
annaðhvort alls ekki getað
gert eða ekki notið þess að
gera.
„Hversdagsleg athöfn eins
og að fara út að hlaupa er dá-
samleg og að setjast í rólu og
róla mér er nokkuö sem ég
heföi ekki látið mig dreyma
um fyrir ári. Á dögunum fór ég
upp í Kjarnaskóg, yndislegt
útivistarsvæöi hér fyrir sunnan
bæinn, settist í stóra rólu sem
þar er og rólaði mér eins og
þarn. Bara það var dásamleg
tilfinning og mér finnst eins og
ég sé að koma af eyöieyju og
hafi farið á mis við svo margt í
lífinu. Nú er tækifærið og ég
ætla svo sannarlega að nota
það. Ég sé til dæmis laxana í
hillingum og það verður ekki
mjög slæmt að geta gengið
upp með ánum án þess aö
eiga það á hættu að detta nið-
ur dauður vegna þess hversu
feitur maður er.“
HÚDIN OF STÓR
Þegar Gunnar var búinn að
sýna sjálfum sér fram á hvað
hann gat gert fór hann ó-
sjálfrátt að gera meiri og meiri
kröfur. Hann segist aldrei í
sínum stærstu og dýpstu
draumum hafa reiknað með
aö hann næði aö léttast
svona mikið.
„Menn voru farnir að skjóta
því að mér að þetta væri orð-
inn helber hégómi og ég væri
bara aö keppast við að setja
einhver met eða eitthvað í
þeim dúr. Það er náttúrlega
eins og hver önnur fjarstæða
og segir sig sjálft aö þegar
maður er kominn svona á
bragðið verður maður að
hreinsa vel af diskinum, ef
svo mætti að orði komast.
Maður gerir ekki svona lagað
nema fyrir sjálfan sig og ein-
ungis vegna þess að maður
finnur vellíðanina aukast með
hverju kílói sem fýkur burt. Ég
reiknaði aldrei með því að
komast á það stig að fara að
velta því fyrir mér hvernig
hægt væri að laga húðina því
hún er orðin nokkrum númer-
um of stór. Ég er i þeirri stöðu
núna að þurfa að strekkja á
henni þegar ég leggst á bakið
í Ijósabekk. Geri ég það ekki
kemur brot. Mér sýnist ég
þurfa að fara í aðgerð og láta
fjarlæga eitthvað af henni.
Hver veit nema ég fái efni í
fína hanska til þess að spóka
mig með í vetur.“
FITNA EKKI AFTUR
Núna, þegar hátt í hundrað
kíló eru farin af líkama Gunn-
ars, segist hann verða að fara
að hægja á sér. Núna geti
hann leyft sér að borða nán-
ast hvað sem er og það sé
gott að finna það jafnvægi
sem virðist vera aö komast á
milli hreyfingar og neyslu.
„Ég er orðinn háður hreyf-
ingunni og það er dálítið
skondið að hugsa til þess
hvernig mér hefði orðið við
fyrir nokkrum árum ef einhver
hefði sagt mér að ég ætti eftir
að verða heltekinn sportisti.
Ég hugsa að ég hefði móðg-
ast og fundist sem verið væri
að gera grín að mér.“
Þótt Gunnar sé á fullu í
heilsuræktinni segir hann það
ekki vera vegna hræðslu við
að bæta á sig aftur, þetta sé
einfaldlega orðið hans lífsstíll.
„Hins vegar er það ekki til
umræðu að ég fitni aftur.
Þetta er ofát og ég er farinn
að hafa fulla stjórn á því
hvað ég læt ofan í mig. Ég
held að þótt ég vildi kæmi ég
þeim skömmtum sem ég
borðaði aldrei niöur núna. Nú
hef ég prófað þessa hlið til-
verunnar og mér líður dá-
samlega. Ég hef verið hepp-
inn, allt gengið mér í hag i
vetur og ég vildi óska þess
að fleiri gætu náð svona ár-
angri með likama sinn. Mér
kemur ekki til hugar að fara
að segja öllum að stökkva í
líkamsrækt því hver og einn
verður að finna sína leið.
Meginmottóið held ég sé þó
skýrt: Hreyfa sig meira og
borða minna." □
ÁAAAAAAAAAAAAAÁAAáAÁÁAAAAA
S
ÆVINTYRI VERULEIKANS
TTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT
Samskipti milli manna
hafa verið mér hugleikin
allt frá þvi er ég man
eftir mér fyrst á Víðimelnum.
Núna, áratugum síðar, eru
þau einnig fyrirferðarmikil og
ég hef komist að ýmsu sem
mig hefði langað að væri
öðruvísi en ég ræð svo ógnar-
litlu.
Það þarf svo mikinn vilja og
mikinn kærleika til að vera í
góðu sambandi við fólk og
ekki síður að vera í góðu
sambandi við sjálfan sig.
Þetta er eiginlega fullt starf -
að halda sér í góðu sambandi
við sjálfan sig, maka, börn,
tengdabörn, foreldra, systkini
og vini. Sumir hafa þetta líka
fyrir ævistarf qg vilja það
fremur en að vinna og hafa
efni á því en aðrir leggja ekki
mikið á sig, hafa ekki á því á-
huga en þiggja gjarnan þaö
sem að þeim er rétt. Og þá
kemur spurningin: Eru öll
þessi samskipti einhvers virði
eða eru þau sóun á tíma sem
gera mætti annað við, til
dæmis vinna, skapa eða
stunda andleg fræði og
styrkja guðdóminn í sjálfum
sér.
Þegar ég sit hérna og skrifa
er ég með lesendur i huga.
Eru þeir með spurningar eins
og mínar, hafa þeir fundið
svör lík mínum?
Það sem ég get sagt um
samskipti á þessari stundu, á
fallegum sumardegi, er þetta:
Ef samskipti okkar eru okkur
til gleði og hvatningar eru þau
af hinu góða. Ef þau minna á
öldurnar, stundum flóð og
stundum fjara, eru þau sönn.
Að gefa og þiggja eru lykilorð-
in. Ef samskipti eru hins vegar
orðin þannig að fólk vill láta
dást að sér, dekra við sig og
það er orðið aðalatriðið í sam-
skiptunum finnur sá sem á að
framkvæma alla þjónustuna
aö hún er lítils virði til lengdar.
Það kemur ójafnvægi í sam-
bandið. Ef þú ætlar að gefa
einhverjum blóm skaltu iáta
verða af því. Ef þú ætlar að
vera vinur einhvers skaltu láta
hann finna það.
Annars hefur mér oft dottið
í hug að gott væri nú að eiga
sinn fjallakofa og fara bara
þangað þegar lifiö er orðið of
flókið og samskipti mín við
annað fólk eru orðin of marg-
slungin og fyrirferðarmikil. Af
hverju ég geri það ekki? Af
því að mér finnst svo gaman
að fólki, finnst það svo áhuga-
vert og skemmtilegt. Og af því
að ég held að ég kunni bæði
að gefa og þiggja.
TIL VINAR
Það er ekki nóg
að tala um blóm
tala um vináttu
tala um ást.
13. TBL. 1993 VIKAN 31
ANNAS. BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR