Vikan - 01.07.1993, Side 38
Allir vita hversu hörmu-
legar afleiðingar stríð-
ið í fyrrum Júgóslaviu
hefur haft fyrir íbúana þar.
Sumir tala um þjóðarmorð og
útrýmingu Serba á múslimum
í Bosníu. Við erum að verða
ónæm fyrir fréttamyndum í
sjónvarþi á hverjum einasta
degi, sundurskotið fólk liggur í
valnum, brunarústir og eyði-
legging, sultur og vosbúð,
grátur og tár. Engin alþjóða-
samtök virðast þess megnug
að stöðva brjálæðið þó að
það eigi sér stað fyrir framan
nefið á okkur.
▲ Hope
heimsækir
Alan og
móöur
hans
tvisvar í
viku. Hon-
um leiö
ekki vel
þennan
dag, haföi
miklar
kvalir í
fætinum.
Fórnarlömb þessa stríðs
eins og allra annarra eru sak-
lausir borgarar, karlar, konur
og börn. í Bosníu er ástandið
þannig að þeir sem ekki hafa
þegar misst lífið hafa verið
innikróaðir allslausir eða
hraktir á flótta.
í Bonn í Þýskalandi starfar
félagsskaþur sem kallast
„Heilung hier fur bosnische
Kinder“ eða „Lækning hér fyrir
bosnísk börn“. Þetta eru frjáls
samtök kirkjufélaga og ein-
staklinga sem taka að sér
slösuð og sjúk börn frá Bosn-
íu og veita þeim læknishjálp
og hæli um sinn.
Hope Millington er kennari
og blaðamaður og starfar
með þessum samtökum. Hún
bjó hér á landi um nokkurra
ára skeið og starfaði meðal
annars sem klippari hjá Sjón-
varpinu. Hún er gift Guðna
Bragasyni, fyrrum fréttamanni
á sömu stofnun en núverandi
sendiráðsritara við sendiráð
íslands í Bonn.
Á ferð sinni um Þýskaland
á dögunum slóst tíðindamað-
ur Vikunnar í för með Hope í
einni af mörgum heimsóknum
hennar til bosnískra skjól-
stæðinga sinna á sjúkrahús-
um í Bonn. Þá voru þar í borg
sextán illa slösuð börn á aldr-
inum eins til fjórtán ára sem
þegar voru komin undir lækn-
ishendur fyrir tilstilli samtak-
anna og von var á fjörutíu til
viðbótar þennan sama dag. í
bílnum á leiðinni til sjúkra-
hússins var Hope beðin um
að skýra frá tildrögum þess
að hún fór að starfa með
samtökunum.
FÓR TIL ZAGREB
„í nóvember sá ég sérstak-
lega óhugnanlegar myndir í
sjónvarpinu af atburðunum í
Bosníu. Þær liðu ekki úr huga
mér. Ég hugsaði með mér að
eina leiðin til þess að sjá hvað
í raun og veru væri að gerast
væri að fara á staðinn. Eg var
í sambandi við bandaríska
konu, Betsy Dribben. Hún
hafði líka mikinn áhuga á að
fara og heimsækja flótta-
mannabúðir múslima í Za-
greb. Ákveðið var að við fær-
um saman og ynnum síðan
að því að miðla sem flestum
af reynslu okkar. Þess vegna
tókum við myndbandstökuvél
með okkur.
Ég hafði ýmsar hugmyndir
um hvernig við skyldum haga
heimsókninni enda hef ég
unnið bæði sem blaðamaður
og fyrir sjónvarp og þóttist því
vita hvað til þyrfti til þess að
vekja athygli fólks. Ég stakk
upp á að við heimsæktum
tvennar búðir - annars vegar
þær sem hýstu karla sem ný-
komnir væru úr fangabúðum
Serba í miðri Bosníu og hinar
þar sem einkum væru konur
og börn. Við knúðum einnig
dyra á barnasjúkrahúsi.
Hluti af því efni sem við tók-
um upp var sent til íslands, til
Stöðvar 2. Á myndunum kom
meðal annars það fram sem
benti til þess að þetta fólk
myndi ef til vill þurfa að svelta
til dauða um veturinn ef ekkert
yrði gert því til hjálpar. Þess
vegna lá á að koma skilaboð-
um til sem flestra. Mér voru
líka fengnar í hendur myndir
sem aldrei höfðu komist út fyrir
raðir múslima. Þær sýndu öm-
urlegt líf fólks sem hafðist við í
skóginum og hafði ekkert ann-
að að leggja sér til munns en
kartöflur. Þetta efni klipptum
við niður og sendum til mikil-
vægra aðila í Sviss og til sjón-
varpsstöðvar í Bretlandi.
Einnig sendum við efni til
Bandaríkjanna.“
VARÐ AÐ GERA
EITTHVAÐ
„Eftir þessa ferð í nóvember
talaði ég við bandaríska konu
hér í Bonn, Barböru Fromm.
Hún starfar fyrir áðurnefnd
líknarsamtök, „Heilung hier fur
bosnische Kinder". Það er
markmið samtakanna að veita
aðstoð sína án tilstillis opin-
berra aðila. Af þeim sökum er
eingöngu gert ráð fyrir frjáls-
um framlögum einstaklinga og
stofnana til að greiða hvers
konar útgjöld sem þessu
fylgja, á borð við sjúkrahús-
og lækniskostnað. Börnunum
er komið fyrir hjá fjölskyldum
ásamt einni fylgdarmanneskju
heiman frá þeim. Jafnframt
skuldbinda samtökin sig til að
aðstoða fólkið við að komast
aftur til heimkynna sinna um
38 VIKAN 13.TBL. 1993