Vikan


Vikan - 01.07.1993, Qupperneq 45

Vikan - 01.07.1993, Qupperneq 45
gildi sínu sem afleiðing af stöðugum rangtúlk- unum annarra barna á persónu viðkomandi. Við erum flest mjög varnarlítil þegar kemur að því að einhverjir leggja okkur í einelti. Þaö er því viturlegast fyrir Hebu að leita drengnum faghjálpar og efla sjálf að auki öryggi hans og réttmætt sjálfsmat. STRENGIR SAMSKIPTA ROFNA Heba finnur að hún er alltaf að fjarlægjast manninn meira og meira og nú er svo komið að hún er orðin fráhverf honum í flestum tilvik- um. Hún vill sem sagt ekkert með manninn hafa lengur og þess vegna slítur hún smátt og smátt á þá strengi eðlilegs samneytis við hann sem hún getur og treystir sér til. Vissu- lega verður þetta að teljast eðlilegt þó það þýði alls ekki að hún geti ekki unnað mannin- um. Hann er núna á valdi fíkna sem draga persónu hans niður og gera hann ómerkileg- an og ábyrgðarlausan. Það út af fyrir sig ætti í raun að vera nóg til að Heba líti svo á að þetta samband sé nánast dauðadæmt, að minnsta kosti í bili og síðar ef ekkert breytist. VALDNÍÐSLA OG SIÐLEYSI Eitthvað fær hana til að reyna að klóra í bakk- ann og það er, þegar dýpra er skoðað, býsna dýru verði keypt þegar geðheilsu hennar er ögrað og sálræn og tiifinningaleg heilsa barn- anna er í stórhættu. Það segir sig sjálft að eiginmaðurinn óreglusami hefur alltof mikið vald yfir þeim heima og hann á hreint ekki að komast upp með slíkt. Enginn siðfágaður ein- staklingur lemur konuna sína og jafnvel börn. Það gera einungis valdniðingar og óvenju drottnunargjarnir einstaklingar og siölausir. VANÞROSKI OG FÓTAÞURRKUR Ef þeim líðst slikt má segja að þeir séu valda- miklir í vanþroska sem verið er að viðhalda og auka með því að gefa þeim færi á slíkri hegð- un rugls sem hlýst alltaf af misnotkun á vímu- efnum og andlegu sem líkamlegu ofbeldi. Eða eins og þægilega undirlægjan sagði eitt sinn eins og af tilviljun I góðra vina hópi: „Elskurn- ar mínar, ef einhverjum hefur dottið í hug að ég sé einhver sérstök undirlægja, þá má sá hinn sami fara að vara sig. Ég er það alls ekki enda var ég ekki send niður til jarðarinnar til þess að gerast einhver fótaþurrka fyrir mína nánustu. Ég hef skyldur við mig og ætla að rækta þær og efla sem fyrst.“ Með vinsemd, Jóna Rúna SÁLFRÆÐINGUR OG SÁÁ Ef við íhugum það sem ellefu ára drengurinn er að kljást við er það ekkert smávegis. Heba lagar það ástand ekki ein I því óveðri sem hvín I heima fyrir. Hún á umsvifalaust að snúa sér, drengsins vegna, til skólasálfræðings og bera þennan mikla vanda undir hann. Hún á jafnframt að leita eftir upplýsingum hjá SÁÁ um hvernig best sé að reyna að fá manninn til að leita sér faglegra hjálpar, til dæmis á þeirra vegum og fara I því skyni I meðferð á afvötn- unarstöð SÁÁ. MISLITIR SAUÐIR Það er I raun erfitt að hvetja Hebu til þessa vegna þeirra leiðinda sem það hefur þegar kostað hana að þurfa að leita sér utanaðkom- andi hjálpar. En hvað á að gera ef barnafjöl- skylda er I kreppu og ástandiö á heimilinu er óviðunandi? Best væri fyrir Hebu að horfa fram hjá þeim hroka eða þeim aðdróttunum sem hún kann að fá framan I sig á þessari göngu því slíkt getur alls staðar hent I sam- skiptum við aðra og þarf ekki opinbera starfs- menn til. í mannlífinu eru vitanlega mislitir sauöir innan um og saman við. í flestum tilvik- um eru þeir sem þarf að leita aðstoðar hjá bæði greiðviknir og göfuglyndir þó að Heba hafi allt of oft upplifað þvert á móti. ÞROSKASKERTIR OG SKAMMSÝNIR Hvers kyns ofbeldi á heimili er mikil og erfið þraut fyrir börn og ekkert grín að vinna þau út úr þannig reynslu, þó eldri og þroskaðri væru en börn Hebu og mannsins eru. Sú fyrirmynd sem býr I of- beldismanninum er hörmuleg og alröng siðferðislega fyrir börn sem eru að mótast. Það er því ekkert sérstaklega skrýtið þó litli drengurinn og hin líka eigi við einhverja samskiptaörðugleika að stríða og eins og dragi að sér vandræði frá ófullkomnu fólki, Frá þeim streymir bók- staflega óöryggið og kolvit- laust sjálfsmat. Einelti er fá- viska og er oftast tilkomið vegna þess að þeir sem það ástunda eru gungur og ónæmir einstakling- ar. Þeir skilja sjaldan eða aldrei sjónarmið þeirra sem þeir ofsækja með aðferðafræði eineltisins enda þroskaskertir og skamm sýnir. ÓÖRUGGUR OG ÓFÉLAGSLYNDUR Barn sem verður fyrir þannig áreitni skóla- félaganna getur aldrei annað en oröið erfitt heima fyrir. Einhvers stað- ar verður vont að vefja sig út úr sálar- og tilfinningalífi þess sem fyrir því hefur orðið eða verður. Þolandi stöðugs eineltis verður smátt og smátt það óöruggur með sig og ófélagslyndur að til vand- ræða verður að teljast. Eins getur skapast sjálfsútskúfun gagnvart mann- 13.TBL. 1993 VIKAN 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.