Vikan - 01.07.1993, Page 61
'swfir™*'
^SZ'JSm
éSSsSgtm*
Fulltrúar Myndforms og Laugarásbíós. F.v.: Ggnnar Gunnarsson, Snorri Hallgrímsson og
Grétar Hjartarson.
um og stundum er handritið
fyrirliggjandi. Good Men in
Africa með Sean Connery og
John Lithgow er dæmi um
þetta. Myndinni leikstýrir
Bruce Bereford sem gerði
Driving Miss Daisy þannig að
okkur fannst þess virði að
taka áhættuna og festum
okkur hana. Samkeppnin er
svo mikil að það er annað-
hvort að hrökkva eða stökkva
strax í upphafi.
Það kemur fyrir að fyrirtæki
eru að selja sömu myndirnar í
kannski þrjú ár til að ná inn
fyrir framleiðslukostnaðinum
og ekkert bólar á afurðinni.
Þetta geta verið mjög erfiðir
viðskiptahættir því þá er mað-
ur kannski búinn að taka út úr
veltunni tíu til tuttugu prósent
af heildarverði myndarinnar
en það er algeng greiðsla við
undirskrift samninga. Restin
er síðan greidd við afhend-
ingu en þetta verður þess
valdandi að fjármagnskostn-
aðurinn fer upp úr öllu valdi.“
EMMANUEL 7 OG
JAPANSKA MAFÍAN
„Við erum búnir að ganga frá
kaupum á fimm til sex stórum
myndum og svo eru einhverj-
ar minni sem fylgja með.
Okkur tókst að ná í Mothers
Boys sem er tryllir f líkingu
við Höndina sem ruggar
vöggunni. Þessi mynd er
gerð af Miramax fyrirtækinu
en hingað til hefur það ein-
beitt sér að listrænum mynd-
um. Myndinni er spáð góðu
gengi en Jamie Lee Curtis
fer með hlutverk móður sem
kemur til baka eftir að hafa
yfirgefið fjölskyldu sína. Hún
lætur ekkert stoppa sig í að
endurheimta fyrri stöðu sína
og etur sonum sínum gegn
föður þeirra og kærustu
hans. Við verðum með fram-
haldið af Weekend at Barnys
og hún mun ekki vera síðri
en fyrri myndin. Bank Robber
er önnur gamarimynd sem
við sýnum en í henni leika
Patrick Dempsey og Lisa Bo-
net úr þáttunum um Fyrir-
myndarföðurinn.
Þá skellturri við okkur til
gamans á sjöundu myndina
um Emmanuel en Sylvia
Kristel leikur í henni
maddömu á hóruhúsi og sú
býður upp á kynlíf samkvæmt
„nýjustu tækni" (virtual rea-
lity). Við bindum miklar
vonir við One False Move,
spennandi mynd sem hef-
ur komið á óvart með vel-
gengni sinni úti og var á
mörgum listum yfir tíu bestu
myndir ársins. Sömuleiðis
erum við bjartsýnir á Where
the Rivers Flow North með
Michael J. Fox og Surf Ninjas
sem er blanda af spennu- og
gamanmynd með Leslie Niel-
sen úr Naked Gun myndunum
í aðalhlutverki. Rúsínan í
pylsuendanum er Even
Cowgirls Get the Blues sem
leikstýrt er af Gus Van Sant
(Drugstore Cowboy, My Pri-
vate Idaho). Úrval leikara er f
myndinni en hún verður frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni f
Cannes í vor.
Það er okkur mikils virði að
halda uppi „standardinum“ á
bíóinu og þess vegna höfum
við valið þann
kost að
vera frekar
með vand-
aðar myndir
á öðrum
tungumálum
en ensku en
að taka inn ó-
13.TBL. 1993 VIKAN 61