Vikan


Vikan - 01.07.1993, Qupperneq 71

Vikan - 01.07.1993, Qupperneq 71
Sagt hefur verið að þetta sé glæsilegasta skrifstofu- og verksmiðjubygging í heimi. Eitt af mörgum ætlunarverkum, sem Alexander kom í fram- kvæmd, var að reisa höll Bene- dikts, „Palais Bénédictine", sem stendur öll- um opin og þjón- ar nú hlutverki minjasafns, bruggverksmiðju og skrifstofuhús- næðis sem er ef- laust eitt það glæsilegasta sem nokkur skrifstofa í heiminum hefur til umráða. FYRSTUR TIL AÐ AUGLÝSA Þessi höll er í nýgotneskum endurreisnarstíl og stendur í hjarta vesturstrandarbæjarins Fécamp. Hún var opnuð árið 1876 og álti að hýsa fram- leiðslu Alexanders, það er að segja bruggverksmiðju og lag- er, ásamt þjóð- og kirkjulistar- minjasafni héraðsins. Fjölskylda hans, sem með- al annarra samanstóð af tutt- ugu börnum hans, eygði ekki strax hugsunina á bak við þessa íburðarmiklu, háreistu og skrautlegu byggingu en það kom að því að hún skildi hann. Fljótlega varð höllin gíf- urlega vinsæl meðal ferða- fólks og fljótt kom í Ijós að hún var kjörin til að halda á lofti hinni einstæðu og dular- fullu ímynd Benedikts-regl- unnar og þá ekki síst líkjörs- ins. Núna koma árlega um eitt hundrað og tuttugu þúsund manns að skoða safnið og bruggverksmiðjuna. Hinn mikli brautryðjenda- andi Alexanders leiddi hann inn á að verða fyrstur til að nota auglýsingar til að mæla með vöru. Um síðustu alda- mót útbjó leiðandi franskur listamaður stór auglýsinga- skilti með teiknimyndapersón- um, myndum og lituðum gler- flísum sem öll vísuðu til hinn- ar frægu, stuttu, digru og djúpgrænu líkjörflösku. Eitt slíkt auglýsingaskilti hannaði tékkneski skreytilista- maðurinn Mucha en það sýnir Bénédictine-líkjörflöskuna umvafða goðkynjuðum kven- líkamaformum ásamt hlaða af blómum. Plakat þetta er bæði vegna forms þess og lita einn af þeim hlutum sem þykja ein- kennandi fyrir Art Nouveau stefnuna og það er ekki svo lítið þar sem um heimsfræga listastefnu er að ræða. GERÐ LÍKJÖRSINS Uppskriftin, sem varð ofan á og Alexander notaði eftir að hann hafði breytt uppskrift Doms Bernando Vincelli, felur í sér um tuttugu tegundir af krydd- jurtum sem nauðsynlegar eru til að fá fram hið einstæða DOM-Bénédictine bragð. Að sjálfsögðu er algert hernaðar- leyndamál og vel varðveitt í hvaða hlutföllum þær eru blandaðar. Hinar mismunandi jurtir eru flokkaðar í fimm flokka og fjór- ir þeirra notaðir í jafnmargar tegundir af legi sem eru eim- aðar en einn flokkurinn er ein- ungis leystur upp. Þessar fimm laganir eru látnar þrosk- ast í ró og næði í nokkra mán- uði áður en sérfræðingur í þessum efnum segir til um hvenær þeim skuli blandað varfærnislega saman. Að því loknu eru þessar mismunandi blöndur látnar samlagast og þroskast í eikarámum. Eftir um það bil eitt ár er eimuðu vatni og náttúrlegu alkóhóli bætt saman við ásamt síróps saffranjurtar-, hunangs- og karamelluþykkni. Blandan er hituð og hrærð þangað til allir þættir hennar hafa samlagast. Henni er leyft að ná aftur stofuhita og er þá síuð. Það sem kemur út er hitað og kælt samkvæmt á- kveðinni formúlu áður en því er komið fyrir í eikarámum á ný og geymt þar í enn fleiri mánuði áður en þessi frægi líkjör er tilbúinn í flöskurnar. Allt þetta ferli tekur minnst tvö ár þar til má njóta hins djúpgullna líkjörs sem gefur ríkulegan, sterkan og ein- stæðan ilm. Best er talið að neyta DOM Bénédictine Ifkjörsins óbland- aðs beint á ís því þannig eru bragð- og lyktarefni hans best leyst úr læðingi og þeirra not- ið til fullnustu. Með þessari og Blaðamaöur Vikunnar ásamt Paul Y. Dechamp, einum yfirmanna DOM, fyrir utan hiA tígulega klaustur. íslenska fánanum var flaggað í tilefni heimsóknarinnar. fleiri framreiðsluaðferðum hef- ur DOM-líkjörinn notið sívax- andi vinsælda eftir góðan málsverð þar sem jurtirnar, sem hann er búinn til úr, hafa meðal annars mjög góð melt- ingarbætandi áhrif. Normandí, með sínum frá- bæru útsýnisstöðum, heill- andi landslagi og fjölskrúð- ugu mannlífi, er án nokkurs vafa eitt þeirra héraða í Frakklandi sem mestra vin- sælda njóta. Þetta eru heimaslóðir kunnra persóna eins og Vilhjálms sigursæla, Corneille, Flaubert, Maup- assant og Monet. Normandí hefur verið mál- að og því lýst með ýmiss kon- ar listrænum hætti frá ómuna- tíð af fjölda heimsþekktra listamanna og það er öruggt að uppskriftin að líkjörnum fræga hefur fengið mikið af andagift fæðingarstaðar síns eins og þau listaverk sem þaðan koma. □ Á í klaustr- inu er starf- rækt lista- safn og hefur rekst- urþess þann tilgang aö styðja efnilega lístamcnn. 13.TBL. 1993 VIKAN 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.