Vikan


Vikan - 01.08.1994, Síða 21

Vikan - 01.08.1994, Síða 21
TEXTI OG LJOSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON Hún hefur lengi verið ein af uppáhaldsleik- konum mínum og ég hlakkaði mikið til að hitta hana og einnig leikstjórann, John Waters, sem stundum hefur verið kallaður furðu- fugl, en á örugglega upp á pallborðið hjá öllum þeim sem kunna að meta kald- hæðnislegt grín, sem jaðrar við að vera það sem kalla má farsakennt á stundum og snertir oft siðferðiskennd fólks það hressilega að það er næstum ekki ásættanlegt. Ástæðan fyrir því að Kath- leen Turner var komin til Cannes var að hún hafði ný- lokið við að leika í nýjustu mynd Johns, „Serial Mom“, sem fjallar um konu sem hik- ar ekki við að gera allt fyrir fjölskyldu sína og er þá meint ALLT, jafnvel kála þeim sem fyrir henni eru án þess að fá nokkra bak- þanka. Myndinni er best lýst sem svartri gamanmynd sem um leið er gagnrýnin á nútíma þjóðfélag en kaldhæðnin er í fyrirrúmi eins og verða vill í myndum John Waters. Kathleen Turner var kom- in til að ræða um myndina, sjálfa sig og um heima og geima. Hún gekk inn hress í bragði og maður tók strax eftir því að hún hafði látið klippa hárið á sér stutt frá því hún lék hina illræmdu móður í myndinni. Hún var í fallegum, síðum kjól og það var eins og hún væri ekki búin að ná sér niður eftir leikinn í myndinni því hún virkaði á mig eins og hún væri nokkuð trekkt og hafði nokkuð ýkta framkomu, kveikti sér í sígarettu, beit í hana eins og um vindil væri að ræða og reykti hana á sama hátt. Hún virtist samt hafa notið þess að leika í þessari mynd sem er nokk- uð ólík þeim myndum sem hún hefur áður leikið í. Kathleen Turner ólst upp á Kúbu og í Caracas og því finnst henni stundum sem hún sé eins og útlendingur í Bandaríkjunum. Faðir henn- ar, sem var frá Missouri, var í utanríkisþjónustunni og starfaði einnig sem skóla- kennari. Þessi fjögurra manna fjölskylda flutti síðan til London á síðari hluta sjö- unda áratugarins. Þessi búseta í framandi löndum og búferlaflutningar höfðu mikil áhrif á hina þrett- án ára gömlu Kathleen. Eftir að hún sá „Mame“ var hún fastákveðin í því að hún vildi gera leikinn að ævistarfi. Fjórum árum síðar lést faðir hennar og varð það til þess að fjölskyldan fluttist til Missouri. Um 1977 flutti hún sjálf til New York, fékk þar vinnu sem þjónustustúlka og flutti inn til kærasta síns, Da- vid Guc, sem var vel þekktur umboðsmaður leikara. Innan níu mánaða hafði hún þegar fengið hlutverk í sápuóperu fyrir sjónvarp og síðan á Broadway þar sem hún vakti athygli margra, þar á meðal Lawrence Kasdan sem átti síðar eftir að hafa mikil áhrif á leikferil hennar. TALDI HANDRITIÐ SJÚKLEGAN BRANDARA Talið beinist að „Serial Mom“ og hún segir að þrátt fyrir fjölbreyttan leikferil þá CSaöljDD®®® fftSHKKSI? BBDSSftSP ÍSBD ÖDBQODDgí^DD0 Bdd®@[? í tg@ODOD®S 5 fljyO®á DDD®® ttQUOO J)®0QDD \S*/@G®D’8!, e®Duo sd1 œá ŒJ0@® S?(?BDb ®fe®®®B©c 6. TBL. 1994 VIKAN 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.