Vikan - 01.08.1994, Side 50
HUN SKIPULEGGUR
FRAMTÍÐ BARNSINS
„Tengdapabbi er eins og
hver önnur rola og segir
mest lítið, enda bældur og
á valdi konunnar eins og
allir aðrir henni viðkom-
andi. Hún er þegar byrjuð
að skipuleggja framtíð ný-
fædds barns okkar og mér
stendur ekki á sama um
hvað hún kemst upp með í
þeim efnum. Ég vildi helst
reka hana út af okkar
heimili í eitt skipti fyrir öll
en ég geri það ekki kon-
unnar minnar
vegna,“ seg-
ir Frikki og
Það ^ ' ■■
leynir sér ekki að hann er
óánægður. enda heldur
hann áfram að telja upp það
sem veldur honum óþægind-
um í samskiptum við
tengdamóðurina.
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt
dulnefni. Svörin byggjast
á innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður alls ekki hægt
að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
ÓTTAST AÐ GERA ALLT
VITLAUST
„Hún er leiðinleg og af-
skiptasöm og með gagn-
rýnandi athugasemdir,
sem eru stöðugt í gangi,
hvort sem maður svarar
henni eða ekki. Hvað á ég
að gera kæra Jóna Rúna?
Á ég að reka hana út? Á
ég að segja henni álit mitt
á henni og taka þá áhættu
að allt verði vitlaust? Ég
verð sífellt fúlari og fúlari
og ekki síst við konuna
mína sem tekur þessa
spennu sem ríkir á milli
mín og þeirrar gömlu ótrú-
lega nærri sér. Mér þætti
vænt um að þú segðir mér
þitt álit á svona yfirgangi
kæra Jóna Rúna,“ seg-
ir hann og er
greinilega búinn
að fá sig full-
saddan.
ÓHÓFLEG
STJÓRNSEMI
Það segir sig
sjálft að hvers kyns
stjórnsemi er
óþægileg, auk þess
sem hún er sjaldan
réttlætanleg. Þegar
hún beinist fyrst og
fremst að fullorðnu fólki, eins
og í þessu tilviki, er hún vit-
anlega fráleit. Það er hefur
engin rétt til að grípa með yf-
irgangi inn í líf annarra. Þó
það vilji þannig til að um sé
að ræða skyldleika á milli
tengdamömmu og konu
Frikka, þá þýðir það ekki að
hún megi ganga yfir dóttur
sína og tengdason á ómak-
legan máta. Hún á sitt heim-
ili og hefur fyrst og fremst
skyldur við það, en alls ekki
við heimili dóttur sinnar,
nema þá ef hún er beðin um
hjálp. Maðurinn hennar hef-
ur augljóslega ekkert með
hennar yfirgang að gera
enda, eins og Frikki bendir
á, löngu búinn að gefast upp
fyrir henni.
ÓAFSAKANLEGT
ATFERLI
Hún virðist ekki kunna skil
á því hvar þau takmörk eiga
að liggja í samskiptum sem
hún er að brjóta með frekju
og ótæpilegri stjórnsemi.
Hún telur sig sýnilega ómiss-
andi og finnst mögulega eins
og allt muni fara á versta
veg i heimilishaldi Frikka og
konunnar ef hennar athuga-
semda og ráðsmennsku nyti
ekki við. Hún gengur siðferð-
islega lengra en eðlilegt má
teljast og þá í áttir vandræða
og neikvæðis. Hún leyfir sér
að njósna um hagi Frikka,
með því t.d. að hnýsast í
hans einkamál eins og með
því að fá upplýsingar um
peninga- og skuldamál
hans, og nýtir til þess arna
upplýsingaþjónustu bank-
anna. Auðvitað er þetta óaf-
sakanlegt og refsivert athæfi
og bankanum og konunni til
vansæmdar augljóslega
NÁÐ AÐ SKAPA
MIKLA SPENNU
Það er mjög sennilegt, að
ef Frikki og konan hans
breyta ekki um áherslur
gagnvart konunni þá muni
hún endanlega ná að veikja
möguleika þeirra á að njóta
sín saman. Hún hefur þegar
náð að skapa mikla spennu
á milli ungu hjónanna og
virðist stöðugt gera tilraunir
til að víkka afskiptasvið sitt.
Því er full ástæða til að gera
henni Ijóst að hún gangi ein-
faldlega á öllum sviðum
þeim viðkomandi of langt.
Frikki á ekki velja þá leið,
konunnar sinnar vegna, að
reka tengdamömmu sína á
dyr. Hann getur aftur á móti
ásamt konunni sinni sett
tengdamóður sinni þau tak-
mörk í samskiptum sem
honum þykja ásættanleg.
ÁKVEÐNAR
AFLEIDINGAR
Ef tengdamamma vill ekki
sættast á þau takmörk, sem
þau setja henni hvað varðar
það að koma á heimili þeirra
og annað sem tilfellur, þá
verður hún að taka ákveðn-
um afleiðingum af því, sem
þá gætu verið t.d. þær að
henni sé sagt að hún geti
ekki komið á heimili þeirra
nema í boði þeirra og þá alls
ekki til að finna að þeim og
gagnrýna þau.Síðan er hægt
að benda henni kurteislega
á þá staðreynd að dóttir
hennar búi ekki með henni
lengur og eigi sinn rétt á að
hafa sitt líf eins og henni líki
og sýnist. Vissulega verður
jafnframt, og ekkert síður, að
gera alvarlega athugasemd
við hnýsni hennar og dóna-
skap eins og í sambandi við
bankamálin.
PERSÓNUNJÓSNIR
REFSIVERÐAR
Sá yfirgangur, sem kemur
meðal annars fram í opin-
berri hnýsni manneskjunnar,
er með ólíkindum og ekki til
eftirbreytni. Persónunjósnir
varða við lög og eiga ekki að
líðast, hvorki af okkar nán-
ustu eða bara öðrum og
óviðkomandi. Það er mjög
sorglegt til þess að vita að
fullorðið fólk skuli láta
standa sig að þeim dóna-
skap og ófyrirleitni að hnýs-
ast í einkamál sinna nán-
ustu. Á bak við yfirgang kon-
unnar liggur mögulega,
ásamt öðru og áðursögðu,
freklegt vanmat hennar á
Frikka og dóttur hennar. Hún
virðist alls ekki ná þeirri
staðreynd að þau eru full-
orðið fólk, sem hefur eignast
sitt eigið heimili sjálft, og það
fari best á því að þau reyni
jafnframt á sinn hátt að
vinna að eigin velferð án
hennar afskipta.
NAUDSYNLEGT AÐ
STANDA SAMAN
Hvað barnið varðar er af
og frá að sættast á það að
amma þess sé að ráðskast
með framtíð þess, vegna
þess að það á foreldra sem
virðast fullfærir um að veita
því þá uppfræðslu og um-
hyggju sem það þarf á að
halda. Eðlilegast og réttast
er því einfaldlega að hætta
að bíta á jaxlinn og reyna
að umbera frekju konunnar
og hreinlega segja henni
álit sitt tæpitungulaust og
sjá hvað setur í kjölfar
þannig hreinskilni. Frikki og
konan hans verða að
standa saman á móti kon-
unni, jafnvel þó erfitt sé fyr-
ir konu Frikka að kannast
yfirleitt við þessi ömurlegu
afskipti móður sinnar af öll-
um sköpuðum hlutum.
Betra er seint en aldrei,
varðandi það að brjótast
undan ofríki foreldra sinna,
eins og þeir vita sem hafa
reynslu af slíku. Börnin
okkar verða að fá að vaxa
frá okkur foreldrunum, auð-
vitað.
FÓRNARLÖMB
OFURÁSTAR
Andúð Frikka á ástandinu
verður því að metast sem
eðlileg viðbrögð einstaklings
sem telur sig ekki þurfa á
þessu átakanlega formi
samskipta að halda. Betra er
því að vera laus við öll
tengsl við konunna en að
vera á heljarþröm andlega
IKAN 6. TBL. 1994