Vikan - 01.11.1994, Page 25
þig þessa stundina um þín
mál finndu þá einhvern vin
sem er tilbúinn til þess án
þess aö refsa félaga þínum
eöa stjórna honum.
18 Gefðu upp á bátinn
drauminn um riddarann á
hvíta hestinum sem hefur
alla þessa stórkostlegu eig-
inleika sem þig dreymir um
hjá karlmanni. Opnaðu aug-
un fyrir því að sá sem þú ert
með eða átt eftir að hitta er
aðeins mannlegur. Þegar
hann veröur var við allar
hugmyndir þínar um hinn
fullkomna karlmann getur
hann reynt að breyta sér í
þann mann. En það er til-
raun sem hlýtur að mistakast
og valda öllum aðilum von-
brigðum.
19 Skoöaðu þá eiginleika
sem að þú vilt að drauma-
prinsinn hafi og gerðu sjálfa
þig að þeirri persónu. Á
hann aö vera hlýr gefandi og
fallegur, gera þig hamingju-
sama, elska þig skilyrðis-
laust, koma með tilgang inn í
líf þitt? Á hann aö njóta ver-
aldlegrar velgengni, vera
hugrakkur baráttumaður og
ástríðuheitur elskhugi? Vakn-
aðu af værum blundi Þyrni-
rós. Engin persóna I öllum
heiminum getur uppfyllt allar
þarfir þínar nema þú. í raun
og veru er þetta það sem
þig sjálfa dreymir um að
vera. Stefndu að þessu fyrir
sjálfa þig og ef að drauma-
prinsinn skyldi birtast er
miklu líklegra að hann myndi
líta við þér. Þið væruð nefni-
lega á svipaðri bylgjulengd.
20 Og að lokum: Ekki líta
á samband sem endaði eða
gekk ekki upp sem eitthvað
misheppnað. Öll samskipti
fela í sér lærdóm um lífið og
mann sjálfan. Það má einnig
segja að þið hafið staðið í
samningaviðræðum en kom-
ist að því að þið þyrftuð að
fara sitthvora áttina að
minnsta kosti á sumum sviö-
um. Þá má því segja að þið
hafiö náð árangri.
Það erfiðasta við skilnað
er að sitja uppi með alla ást-
ina sem að maður tjáði ekki.
Ef að maður hefur gert sitt
besta og elskað einlæglega
er sársaukinn minni. Byrjaðu
því að tjá ást þína í dag.
Hegðaðu þér á hverjum degi
eíns og þetta sé síðasti dag-
urinn sem aö þú átt i lífinu.
Framkvæmdu drauma þína.
Elskaðu eins og þú fáir
aldrei annað tækifæri. □