Vikan - 01.11.1994, Page 37
STÍFLEIKI DÝNUNNAR
FER EFTIR ÞYNGD ÞESS
SEM í RÚMINU SEFUR
RAGNAR BJÖRNSSON GETUR FRAMLEITT RÚM
EFTIR ÓSKUM HVERS OG EINS
Eðlilegur endingartími á
dýnum er tíu til fimm-
tán ár. Allt annað er
blekking," segir Ragnar
Björnsson sem framleitt hef-
! ur dýnur í bráðum hálfa öld.
; Hann rekur fyrirtækið Ragn-
ar Björnsson hf. Húsgagna-
bólstrun í Hafnarfirði. Auk
springdýnanna framleiðir fyr-
irtækið rúm og bólstraða
rúmgafla sem og reyndar
, Chesterfieldsófasett svo
nokkuð sé nefnt. Fyrirtækið
getur framleitt rúm í hvaða
hæð sem er, dýnur í hvaða
stærð sem er, og af hvaða
stífleika sem er. „Við leggjum
metnað okkar í að framleiða
eftir óskum fólksins og eftir-
spurnin hefur aukist ár frá ári
enda standast dýnurnar okk-
ar fyllilega samanburð við
erlendar dýnur."
Þýðingarmikið er að gera
sér grein fyrir þvi að stífleiki
dýnunnar þarf að fara eftir
þyngd þess sem á henni
ætlar að sofa. Annars fær
fólk ekki eðlilega hvild í rúm-
inu. Þess vegna er líka áríð-
andi að gera sér grein fyrir
að ef til vill hentar ekki ein
tvíbreið dýna í rúm þar sem
tveir misþungir sofa saman.
i Til þess að koma til móts við
óskir fólks sem vill samt sem
áður aðeins hafa eina dýnu í
rúminu hefur verið farin sú
leið að renna dýnunum sam-
an með rennilás. Verður yfir-
borðið þá slétt og samfellt.
Undir dýnunum er hafður
undirbekkur með fjöðrum og
hægt er að fá undir hann
hvort heldur sem er hjól eða
fætur. Með því að hækka
fæturna er hægt að hækka
rúmið. Ofan á undirbekkinn
koma springdýnurnar. Þær
eru til þrenns konar - mjúk-
ar, miðlungs og stífar. Auk
þess er hægt að bregða út
af þessum meginstigum eftir
RB-rúm, rúm þeirra vandlátu.
því sem þörf krefur. Ragnar
sagðist vilja að fólk kæmi og
legðist í rúmið sem það er
að hugsa um að kaupa og
veidi dýnu sem hverjum og
einum hentar. Ef reyndin
verður sú eftir nokkurra
nátta svefn að dýnan reynist
of mjúk eða of stíf er hægt
að bæta úr því án minnstu
fyrirhafnar.
Tvíbreið rúm eru yfirleitt
160 eða 180 sentímetrar en
einstaklingsrúm 90 eða 120
sentímetra breið. Vinsælasta
hæðin er 50 sentímetrar.
Ragnar Björnsson hf. fram-
leiðir bólstraða gafla í fimm
meginútfærslum við rúmin
og er hægt að fá áklæði á þá
hvort heldur sem er úr efn-
um sem fyrirtækið býður upp
á eða sem viðskiptavinurinn
kemur með sjálfur.
Nýlega var hafin fram-
leiðsla á þykkum undirsæng-
um sem lagðar eru ofan á
dýnurnar svipað því sem
gerðist í rúmum hér áður
fyrr. Þá er hægt að fá sér-
staka varmaklæðningu ofan
á dýnurnar. Er hún úr ull
sem heldur vel hita að líkam-
anum og hentar sérstaklega
vel fyrir þá sem þjást af
vöðvabólgu eða gigt. □
Gæöa-
rúm á
góöu
veröi.
10. TBl. 1994 VIKAN 37
KYNNING