Vikan - 01.11.1994, Page 42
VIKAN A IBIZA
TEXTI OG UÓSMYNDIR: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
Fundum blaðamanns
Vikunnar og Magics
Johnson bar saman á
gömlum næturklúbbi á Ibiza
upp úr miðjum september
síðastliðnum. Hálfrökkvað
var þar inni en skjannabjört
kastljós slógu hetjulegum
bjarma yfir Magic sem er ef-
laust einhver frægasti mað-
þeim kumpánlega sem köst-
uðu á hann kveðju. Við-
brögðum hans fylgdu gjarn-
an einhverjar athugasemdir,
flestar ( gamansömum dúr
enda virðist hann hafa gam-
an af því aö hafa samskipti
við annað fólk. Hann er einn-
ig alveg laus við heims-
frægðarhrokann sem verður
ViÐTAL VIÐ MAGIC JOHNSON:
EG VJL EKKI
AD LIF MITT
SE ERFITT
ur heims um þessar mundir.
Magic leit á mig áhuga-
sömum augum þegar ég
sagðist vera frá íslandi.
Hann sagði samt ekkert, gaf
ekkert út á það, fannst ég
sennilega ekkert öðruvísi en
annað fólk, að minnsta kosti
ekki í útliti. Það virtist í öllu
falli ekki koma honum í opna
skjöldu að ég er ekki eskim-
óil
MAGIC í BIÐRÖÐINNI
MEÐALALMÚGANS
Viðvera Magics í Pepsi-
Max-klúbbnum, en félagar í
honum víðsvegar úr Evrópu
Magic tók klúbbfélaga Pepsi Max í
kcnnslustund og þar var meóal læri-
sveina hans Birna Petersen frá íslandi.
Birna er íþróttakennari aö mennt og
vakti athygli Magics og félaga hans fyrir
góöa meóferó kröfuboltans.
komu saman á Ibiza fyrir
skömmu, vakti að vonum
mikla athygli. Hann gekk um
svæðið eins og aðrir
klúbbfélagar og heilsaði
ýmsum stjörnum fjötur um
fætur og Magic tók sér meira
að segja stöðu í biðröðinni
við allsnægtaborð mat-
reiðslumeistaranna þegar
kom að kvöldverði. Reyndar
hafði hann tekið sér stuttan
göngutúr meðfram röðinni
líkt og hann ætlaði að
smokra sér framfyrir okkur
almúgann. En þá var hann
bara að kíkja á hvað væri í
boði. Könnunarleiðangurinn
leiddi af sér áhuga fyrir ein-
hverjum kræsinganna og þá
var ekki annað að gera en
grípa sér disk og bíða þess
innan um Jónana að röðin
kæmi að þessum Séra-Jóni,
sem Magic vissulega er.
Sjálfsagt hefðu margir fyrir-
gefið honum og þóst stoltir
af því að hleypa honum fram
fyrir sig í röðinni en þetta var
þriggja stiga kurteisikarfa hjá
Magic Johnson.
NÝ SÝN Á MAGIC - NÝ
SÝN Á ALNÆMI
Síðan Magic Johnson
greindist með HlV-veirunna
hefur hann sýnt fram á að
hann býr yfir ótrúlega sterk-
um persónuleika. Sjálfsagt
greip hann þegar til tækni-
atriða úr körfuboltanum til
þess að berjast við þennan
nýja andstæðing sinn en ein
af grundvallarreglunum í
kappleikjum er sú að bera
enga virðingu fyrir andstæð-
ingnum; leikmenn skulu gera
allt, sem í þeirra valdi stend-
ur, til að hafa sigur, með
heiðarlegum hætti þó. Þess-
ari tækni beitir Magic John-
son gegn alnæmisveirunni.
Hann fer um heiminn með
nokkrum fleiri fyrrum NBA-
leikmönnum, en NBA er
toppdeildin í bandaríska
körfuboltanum og viður-
kennd sem sú besta í heimi,
og sýnir fólki og kennir því
listir körfuboltans. Allt byggir
á því að virkja fólk til þátt-
töku. Með því að fólki gafst
kostur á að taka þátt í körfu-
boltanum við hlið goðsagn-
arinnar Magics Johnson öðl-
uðumst við, félagar af evr-
ópsku bergi brotnir í Pepsi
Max-klúbbnum á Ibiza, alveg
nýja sýn á Magic og þá ef til
vill ekki síður á alnæmið.
Það er nefnilega stað-
reynd, og Magic er lifandi
sönnun þess, að HlV-smitið
er ekki dauðadómur og það
er hægt að lifa góðu lífi og
gera gagn í samfélaginu
þrátt fyrir tilvist þess. Og það
eru viðbrögð okkar, þeirra
ósýktu, sem mestu máli
skipta; hvernig við getum
með fordómalausum sam-
skiptum okkar við smitaða
gert þeim lífið léttara. Auðvit-
að verðum við að vera á
varðbergi og meðvituð um
smitleiðir en við megum alls
ekki útloka þetta fólk frá
samfélaginu. Magic Johnson
er verðugur fulltrúi smitaðra
sem nú fer um heiminn til
þess að fræða jarðarbúa um
þessi atriði og mörg fleiri.
Liður í því starfi hans er að
veita Vikunni og öðrum fjöl-
miðlum viðtöl þar sem okkur
gefst kostur á því að fá svör
við áleitnum spurningum
sem óneitanlega koma upp
þegar Magic Johnson er
annars vegar.
ÆFI MEIRA EN ÁÐUR
Fundurinn með Magic fer
rólega af stað og það er eins
og við séum að reyna að
finna samtalinu einhvern far-
veg í þögninni. Hún er rofin
þegar Magic er fyrst spurður
að því hvaða ráð hann
myndi gefa syni sínum um
framtíðina þegar stormasöm
og litskrúöug ævi Magics
sjálfs er höfö í huga.
„Ég myndi ráðleggja hon-
um að fara að draumum sín-
um og sækja sér menntun."
Ég spurði Magic síðan að
því hvernig líkamlegu
ástandi hans væri háttað.
„Mér líður mjög vel og
er ( frábæru líkams-
formi."
Hefurðu breytt æf-
ingunum eitthvað?
„í rauninni æfi ég
meira núna heldur en þegar
ég spilaði í NBA því þar spil-
ar maður 82 leiki á ári og
leikþjálfunin sem slik heldur
manni ( góðu formi. Nú verð
ég að æfa fimm daga í viku
og ég geri meira af lyftinga-
æfingum.“
VIL KOMA FÓLKI TIL
AÐ BROSA
Hvað með líf þitt almennt,
hefur það tekið einhverjum
stakkaskiptum eftir að smitið
uppgötvaðist og þú hættir að
leika í NBA?
„Ekki nema að því leyti að
ég hef öðlast nýtt hlutverk;
sem er að fræða fólk um al-
næmi. Annars geri ég allt
það sama og þú; ég vakna,
borða, æfi, er faðir og eig-
inmaður og svo framvegis.
Fólk heldur að lífið breytist
eitthvað við þetta en það er
ekki svo, það eru kröfurnar
og forgangsröðunin sem eru
örðuvísi. Það voru gerðar
miklar kröfur til mín áður en
ég hætti að spila í NBA en
nú eru þær helmingi meiri. í
hvert skipti sem ég hringi
heim hefur fjöldinn allur af
nýjum verkefnum bæst við
eftir að ég fór.
Ég þarf einnig að sinna
fyrirtækinu mínu en ég starfa
mjög mikið við það sjálfur,
hef yfirumsjón með öllu og
skrifa undir allar ávísanir.
Umboðsmaðurinn minn seg-
ir um mig stundum að ég sé
of stjórnsamur en ég er alls
ekki sammála því; ég kann
því bara vel að geta
haldið um stjórnvölinn.
Síðan starfa ég fyr-
ir Pepsi og hef
mjög gaman
af því.
V'i J