Vikan


Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 52

Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 52
DANSLEIKHUS Auöur í Þýska- landi á ár- unum kringum 1980. Þarna er hún enn í „hlutverki fuglsins" og enn langt í aö hún veröi „jarðar- dansari“. öldum sem bjó við mikil harðindi, hungur og kulda var ærinn efniviður. Höml- umar sem á fólkið voru sett- ar voru miklar. Vinnuhjú, sem felldu hugi saman, máttu ekki ganga í hjóna- band nema að eiga fyrir koti, sem þau áttu sjaldnast. Kot- ið var forsenda þess að það gæti lifað eðlilegu lífi; for- senda þess að mega giftast og eignast börn. Siðaboð- skapur kirkjunnar var um- vöndunarsamur og dóms- kerfið strangt. Vinnulúið og fátkækt vinnuþýið fékk að- eins eitt tækifæri á ári til þess að gleyma eymdinni, en það var á Jörfagleðinni, enda setti fólkið það iðulega sem skilyrði þegar það réð sig í vist, að það kæmist á hana. Á meðan á henni stóð klæddust menn ýmsum gervum og í skjóli þeirra höfðu þeir í frammi ýmislegt sem þeir alla jafna létu vera, líkt og á karnivölum nútím- ans.“ í „Sögu aldanna" eftir Árna Björnsson, þjóðháttafræð- ing, er svohljóðandi lýsing á Jörfagleðinni: „Þar var stig- inn dans, kveðin ástakvæði (vikivakar), leiknir ýmsir leikir og margháttuð skrípalæti og lausung í frammi höfð.“ Við þetta má bæta að Jörfagleð- in var í tvígang bönnuð með lögum sökum siðleysis þátt- takenda, en eitt árið var talið að nítján börn hefðu komið undir meðan á gleðinni stóð. „Á þessum tímum var hægt að kæra fólk fyrir að nefna ekki nafn Guðs a.m.k. þrisvar á dag,“ heldur Auður áfram. Allt holdlegt var synd og konum var drekkt fyrir ýmsar yfirsjónir. En frumeðli mannsins verður að fá sína útrás og verður ekki stöðvað og það er einmitt viðfangs- efni sýningarinnar." Tíu dansarar íslenska Dansflokksins, sex leikarar, einn hreyfilistamaður, sjö hljóðfæraleikarar ásamt fjór- um söngvurum, koma fram í sýningunni. Auður samdi dansana, Hákon tónlistina og í sameiningu skrifuðu þau verkið, eftir að hafa við- að að sér heimildum víða að. Um búninga og sviðs- mynd sér Sigurjón Jóhanns- son. Þetta er annað verkefni Svölu-leikhússins, en hið fyrra, „Ertu svona kona“ var sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum. „Við erum ekki með talað- an texta í sýningunni, heldur notum við þulur, kvæði og alls kyns hljóð. í tónlistinni er mikið slagverk. Við reynum að gera mörkin milli dansara og leikara óljós og mjúk. Við notumst líka við magnaðar ræður séra Jóns Vídalíns heitins, svo það kennir ým- issa grasa,“ segir Auður. Sýningin spyrst vel út Búningar eru fjölbreytilegir, enda naut hinn sauösvarti al- múgi þess aö bregöa sér í ýmiskonar gervi og fé langþráöa útrás. Teikningar Sigurjóns Jóhannssonar. enda þótt frumsýningardag- urinn sé ekki runninn upp, því þegar er búið að bjóða Svölu-leikhúsinu að sýna Jörfagleðina í nokkrum borg- um í Þýskalandi næsta sum- ar. Þar mun verða á döfinni sumar-listahátíð og heyrst hefur að fleiri íslenskir menn- ingarviðburðir verði þar í boði. Tónsmiðurinn Hákon Leifsson hefur víða komið við bæði í tónlist, leik-og rit- störfum. Hann stundaði nám við Konunglega Tónlistar- skólann í Kaupmannahöfn, spilaði á horn hér heima um tíma, en hélt svo til Vínar þar sem hann nam tónsmíðar f eitt ár. Þaðan lá leiðin til Boston í Bandarfkjunum þar sem hann lærði hljómsveit- arstjórn. Hann hefur þýtt leik- verk, lagt stund á leiklist og lék t.d. Kaj Munk á Horna- firði, þar sem hann var org- anisti í um tíma. Hann stjórn- ar Háskólakómum og hefur samið tónverk fyrir hann og fleiri, svo sem píanó- og klar- inettuverk fyrir einleikarana Þorstein Gauta Sigurðsson og Guðna Franzson. Danshöfundurinn Auður Bjarnadóttir hefur verið at- vinnudansari frá því hún var aðeins fjórtán ára gömul og kennir nú við Listdansskóla íslands. Hún var meðal stofnenda íslenska Dans- flokksins árið 1973. Hún nam listdans við Ballettskóla Þjóðleikhússins, ásamt því að sækja námskeið í Dan- mörku og Englandi. Þegar hún var nítján ára hélt hún til Þýskalands þar sem hún dansaði með Óperuballettin- um í Munchen í fimm ár. Þaðan hélt hún til Sviss og dansaði í Basel í eitt ár. Eftir tveggja ára dvöl hér heima hélt hún utan á ný og dans- aði við Óperuna í Stokkhólmi næstu tvö árin. klassískan ballett sem hún segir að kalla megi upphaf- inn stíl danslistarinnar, enda í byrjun ætlaður til að gleðja augu konungborinna. Nú að- hyllist hún hins vegar annan dansmáta; nútímadansinn sem hún segir nálgast manninn sem rótar í mold- inni og vill reyndar heldur láta kalla sig jarðardansara en ballettdansara. Því má segja að hún hafi færst frá himni til jarðar, danslega séð. „Það má líkja þessu við að koma niður úr þessu upp- hafna; frá fuglinum sem flýg- ur og niður í að vera kann- ski. . . moldvarpa." Auður brosir. „í klassíska ballettin- um, sem er yndislegur sem slíkur, er mikið byggt á rétt- um og röngum hreyfingum og allt er mælt með mæli- stiku, enda er fulikomnunar- áráttan í algleymingi. í nú- tímadansi hins vegar er svo gaman þegar það sem er fær að vera, mælistikunni er sleppt og við nálgumst lífið eins og það er í sínum fjöl- breytileik. Listgreinin nærist af lífinu, en ekki af einhverri gamalli hefð.“ Eins og áður segir verður Jörfagleði frumsýnd 6. nóv- ember n.k. Sýningarnar verða í Borgarleikhúsinu. Listunnendur geta hugsað gott til glóðarinnar því ef marka má ummæli um síð- asta dansverk Auðar, Mán- ans Ar, er á ferðinni danshöf- undur sem vinnur verk sitt af alúð og næmni fyrir mögu- leikum leiksviðsins. íslenski dansflokkurinn fær því ærið viðfangsefni, en við dansinn og tónlistina, bætist leikur, söngur og hreyfilist, svo að sýningin verður væntanlega að veislu fyrir auga og eyra. Dansleikhúsverk eru heldur ekki tíð hér á landi og sýningin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.