Vikan


Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 55

Vikan - 01.11.1994, Qupperneq 55
að var sautjándi júní og deginum skyldi fagnað eins og best yrði á kosið. Allir voru í sínu fínasta pússi og stefnan var tekin á „Borgina“ eða Hótel Borg, þetta gamla, virðulega hótel í hjarta bæjarins. Ungir og aldnir sitja og spjalla, matur er fram borinn og það klingir í glösum. Það er „lif- andi“ tónlist í húsinu og þeg- ar farið er að leggja við hlustirnar heyrast glettnir tónar harmonikku, gítars og bassa. Glettnir og þó ofurlít- ið Ijúfsárir í senn, eins og líf- ið sjálft vill oft verða í breyti- leik sínum. Þarna voru þeir komnir „Skárren ekkert", svolítið spekingslegir, eða ætti ég að segja létt háðskir eða eins og þeir segja sjálfir, mátulega fúlir. „Já, einu sinni vorum við svo reiðir þegar við vorum að spila að við spiluðum eins og verkamenn í mótmæla- göngu, spiluðum svo hratt að einn tangóinn varð ansi hraður hjá okkur. Ansi hrað- ur. Okkur líkar vel að spila í litlum sal með fólki sem skapar góða stemmningu sín á milli og stundum getum við einhverju bætt þar við. Það er líka gaman að spila fyrir dansi, þótt mönnum reynist stundum erfitt að dansa við þessa tónlist. Við erum náttúrlega engin kokkahljómsveit sem spilar grámyglulega loðnuvalsa eins og hver vill.“ Þegar þeir félagar eru spurðir um nafnið á hljóm- sveitinni eru þeir fljótir til svars. Þeir upplýsa að nafn- ið, og reyndar merki hljóm- sveitarinnar líka, byggi á verki kúlupennalistamanns sem sýndi einhvern tímann á Listasafni (slands. Þeir muna ekki nafnið á lista- manninum, en verkið sem um ræðir, var eitt strik á hvítu blaði. „Við erum allir áhugamenn um alls kyns tónlist. Undan- farið höfum við einkum spil- að evrópska kvikmyndatón- list, aðallega eftir Nino Rota. Það er hægt að finna marga fleti á þessari tónlist og við höfum þess vegna gaman af því að útsetja hana sjálfir. Tónlistinni má lýsa sem eins konar tragikómískri klunna- og trúðatónlist og í rauninni er dálítið erfitt að ná þeim blæbrigðum í flutningi. En það er í öllu falli lærdómsrík tilraun. Við höfum verið að þessu vegna þess að við nennum þessu. Við höfum spilað á kaffihúsum, í einkasam- kvæmum og á böllum. Stundum raulum við með, en yfirleitt ekki. Það er frábært að spila á Borginni, starfs- fólkið er einstakt og góður andi í húsinu. Nú nýverið gekk Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari til liðs við okkur og hún smellur inn i hljómsveit- ina. Það hefur þvi allt gengið mjög vel hingað til, en líklega er það lognið á undan storm- inum og boðar eitthvað illt.“ Nú brosa þeir allir og minnast á Clint Eastwood, sem sagði einhvers staðar, að það ætti að taka vinnuna alvarlega en ekki að sama skapi, sjálfan sig. Þeir eru sammála um þetta. Þeir eru oft sammála þessir strákar. Þeir eru vinir úr M.R. og stunda allir heimspeki við há- skólann enda finnur blaða- maður að það er alveg á mörkunum að hún treysti sér til að koma til skila, hárfínum húmor og þessu listræna æðruleysi sem einkennir pilt- ana. „Öll list á ís- landi.....“ hlátur, og áfram er haldið með spjallið. Guðmundur lærði á píanó hjá Gísla Magnússyni í Tón- listarskóla Garðabæjar. „Svo fékk ég lánaðan harmonikku- garm hjá Birgi Guðmunds- syni, yfirmanni mínum á Tím- anum, en því næst keypti faðir minn aðra nikku í Rúss- landi, eftir fall kommúnis- mans. Verð hennar var um 1500 krónur. Hún dugði mér nokkuð, en svo þurftum við að spila á Rás II einhvern föstudaginn og óg fann það út að mig vantaði nýja har- monikku. Ég ræsti Leif hljóð- færasala upp um kvöldið, veifaði vísakortinu og keypti mér nikku. Það var eina har- monikkan í búðinni.“ Eiríkur lærði fyrst á blást- urshljóðfæri. „Tannlæknirinn minn sagði að ef ég héldi áfram að æfa, myndi ég missa tennurnar um fertugt, vegna þess, að ég hefði svo skakkt bit. Ég var víraður upp í snatri og svissað yfir i poppið, sem hefur verið líf mitt og yndi síðan. Fékk lán- aðan bassa og hef haldið mig við hann síðan.“ Frank leikur á gítar. Það gleymdist að spyrja hann um tónlistarnámið en í staðinn spurði blaðamaður Frank um ætterni hans. Reyndist móðir hans nærfatainnflytjandi á besta aldri og sagðist hann eiga mikið úrval af ýmiss konar nærfatnaði. Hann er sá eini af þeim sem ekki fór til útlanda í sumar, að slæpast, eins og þeir Eiríkur og Guðmundur segjast hafa gert. Eirfkur fór til Spánar, til að liggja ekki í sólbaði og Guðmundur fór til Frakklands, til að aðhafast ekkert sérstakt. En þetta var ef til vill lognið á undan storminum þvf núna hafa þeir félagar fengið það verk- efni að semja eigin tónlist við leikritið „Kirsuberjagarðurinn" við verið að auka við lagalist- ann okkar með lögum úr ýmsum áttum, til dæmis fær- eyskum völsum og írskri krá- artónlist. Við höfum yfirleitt hlotið góðar viðtökur þar sem við spilum. En annars gerum við helst kröfur til sjálfra okk- ar, en ekki til áhorfandans. Við reynum að spila vel og við setjum okkur ekki í stell- ingar heldur reynum að vera eðlilegir og það teljum við vera skárra en ekkert.“ Og það er nú ef til vill það sem fólk fellur fyrir þegar það hiustar á þessa hljómsveit. Þeir hafa vakið verðskuldaða athygli og eitt kvöld, þegar þeir spiluðu á Sólon Islan- dus, kom Reynir Jónasson VIÐTAL VIÐ TÓNLISTARMENNINA GUÐMUND STEINGRÍMSSON, FRANK ÞÓRI HALL OG EIRÍK ÞÓRLEIFSSON eftir Tjékof, sem sýnt verður í leikhúsinu Frú Emeifu í leik- stjórn Guðjóns Pedersen. „Að vinna í leikhúsi er óhemju spennandi. Við semjum lögin saman og þeg- ar við hittumst þá erum við yfirleitt ekki með neitt sér- stakt í huga. Við byrjum ein- faldlega á einhverju, ein- hverri línu eða hljómagangi, og það vindur upp á sig. Þannig gefur lagið stemmn- inguna. Við höfðum ekki samið mikið áður, en við höfum lært talsvert á því að spila þessi lög eftir Nino Rota. Kannski erum við undir einhverjum áhrifum frá honum, en við er- um alla vega ekki að reyna það. Við hlustum náttúrlega á marga fleiri. Núna höfum gagngert til að hlusta á þá. Eldra fólk tekur ástfóstri við þá og dansar á Borginni í takt við evrópska kvikmynda- tónlist með íslenskum blæ- brigðum, þótt það sé ekki dansleikur. „Við erum komnir í leikhús- ið, farnir að semja. Það ger- ist í leikhúsinu, í salnum og er andrúmsloftið þar mettað og áþreifanlega vel fallið til að skapa í. Má því segja að allt smelli saman hjá okkur núna eins og flís við rass. Við ætlum svo bara að enda viðtalið á þessu „flís við rass“. Okkur finnst það flott og viðtalið má annað hvort heita: „Við höfum engu að leyna“ eða: „Það er leyndar- dómurinn". Það er nú allt og surnt." □ TEXTI: ANNA S. BJÖRNS- DÓTTIR LJÓSM.: GUNNAR GUNN- ARSSON 10. TBL. 1994 VIKAN 55 TÓNLIST
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.