Vikan


Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 66

Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 66
STJÖRNUSPÁ STJÖRNUSPA HRÚTURINN 21. mars - 20. apríl Það losnar um spennu í samneyti þínu við einhvern ná- kominn en þó eru ýmis atriði sem bíða úrlausnar. Mundu samt að þú átt ekki svörin við öllu á reið- um höndum og jafnvel heldur ekki allar spurningarnar. Því er mikilvægt að nálgast þetta við- fangsefni með opnum hug. Bjart- ara er yfir fjármálahimnlnum. NAUTIÐ 21. apríl - 21. maí Eitthvert álag hefur verið á heimilislífinu undanfarið en nú er farið að létta til. Breytingar gætu verið óhjákvæmilegar og ef svo er þá því fyrr því betra. Þegar sam- skipti þín við ástvin batna þá skul- ið þið nota tækifærið til að gera hreint fyrir ykkar dyrum. Lausnin er fólgin í sameiginlegu átaki. TVÍBURARNIR 22. maí - 22. júní Heilsan gæti orðið við- kvæm um þetta leyti svo nú er mik- ilvægt að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum. Dálítil smámunasemi á heilsusviðinu núna gæti komið sér vel þegar til lengri tíma er litið. Þú gætir ennfremur fundið hjá þér eig- inleika sem þú vissir ekki að þú byggir yfir. Ræktaðu hann. KRABBINN 23. júní - 23. júlí Þótt svo virðist að þú og ástvinur þinn eigið við óyfirstígan- lega erfiðleika að etja um þessar mundir þá liggu? lausnin sennileg- ast í einföldum sáttalelðum. Reyn- ið ekki að breyta hvort öðru því líklegast liggur ágreiningurinn [ grundvallarviðhorfum ykkar. Þau ber að virða. UÓNID 24. júlí - 23. ágúst Heimilislífið fer að komast í eðlilegar skorður með bættum samskiptum eftir tilfinningalegt umrót undanfarið. Endanlegur bati er fólginn í gagnkvæmum skilningi og umburðarlyndi. Gerið áætlanir byggðar á sameiginleg- um hagsmunum og jafnvel þótt það kunni að verða gert á kostnað einhverra markmiða þinna. MEYJAN 24. ágúsl - 23. sept. íér fyrir endann á vandræða- gangi í samskiptum þínum við einhvern nákominn. Þér kann að þykja úrlausn málsins allt annað en auðveld en þegar þar að kemur verðurðu líklega sáttari við niður- stöðuna en þú bjóst við. Einbeittu þér að því að sanngirni ráði um- fram allt ferðinni. Gefðu þér meiri tíma fyrir eigin hugðarefni. VOGIN 24. sept. - 23. okt. Hngamálin halda áfram að taka sinn skerf af tíma þínum og athygli en fjárhagurinn fer þó batnandi. Með því að taka þátt í hópverkefnum geturðu bæði sótt þér stuðning og hvatningu auk þess að fá útrás fyrir eigin sköp- unargáfu. í kjölfarið fylgir aukin bjartsýni og almennt jákvæðara hugarfar. SPORÐDREKINN 24. okt. - 22. nóv. Síðastliðinn mánuður hef- ur verið þér heldur þungur í skauti en nú er bjartara framund- an. Og þú sérð að tilefni ýmissa leiðinda voru flest veigaminni en ætla máttl þegar þau komu upp. Betri tíð og blómum í haga fylgir betri heilsa og betri árangur í starfi. BOGMAÐURINN 23. nóv. - 21. des. Ferðalög eða samskipti við fólk á fjarlægum slóðum veita straumum tilbreytingar inn í líf þitt. Þú verður opnari fyrir nýjum hugmyndum og áætlanir um framtíðina taka breytingum. Og það sem meira er: Það er meira að marka þessar áætlanir nú en fyrr. Því er ráð að undirbúa sig vel. STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. Það kemur í Ijós að þú hefur ofmetið vandamá! sem hafa komið upp í vinnunni hjá þér und- anfarið. Þess vegna hefur tími farið til spillis en hann geturðu nokkuð auðveldlega unnið upp. Leitaðu stuðnings hjá vinum og samstarfsmönnum. VATNSBERINN 21. jan. - 19. feb. Farvegur samskiptanna er um þessar mundir hömlulítill og þú skalt notfæra þér það, einkum við yfirmenn þína. Þessu fylgja tækifæri til aðlögunar sem þú skalt notfæra þér til eigin framdráttar. En þó að þú grípir gæsina meðan hún gefst skaltu gæta þín á glapstigum fljótfærn- FISKARNIR 20. feb. - 20. mars Þú hefur haldið aftur af þér undanfarið en nú hefurðu tækifæri til þess að láta til skarar skríða. Einbeittu þér að starfi þínu og frama á því sviði því um- hleypingar eru þar framundan. Þú ert nú við stjórnvölinn á örlagaf- leyi framtíðar þinnar; notfærðu þér það en leggðu þó ekki of hart að þér. SKOP Nokkrir heiðursmenn voru saman komnir á því sem þeir néldu gott veitinga- hús. Einn þeirra stóð upp, lyfti glasi og sagði: - Herr- ar mínir, ég mæli með að við skálum fyrir þeim sem eru fjarverandi hér í dag og þar tel ég með þann sem þjónar okkur hér til borðs! - Ég heyrði góða sögu um daginn en ég man ekki hvort ég var búinn að segja þér hana. - Er hún fyndin? - Já. - Þá ertu ekki búinn að segja mér hana! Karlmaður kom til sálfræð- ings. - Kæri sáli, ég er í standandi vandræðum því í hvert skipti sem ég loka augunum sé ég sjálfan mig fyrir mér að hafa sam- farir við hross. - Nú, já, svaraði sáli. Er það þá meri eða foli sem þú ert að keypti gamla bók um dá- leiðslu . . . gamna þér með? spurði hann áhugasamur. - Meri, náttúrlega, svaraði maður- inn hvumsa og bætti við: - Hvað heldurðu eiginlega að ég sé, pervert eða hvað? Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda -jeij eiuuJOJi g -jsAajq jnjeq uuuejiQ p Qewæi jnjeq ujnspfujo-i e jsmus jnjaq njnq ? J9Q 'Z 0IJJOM ja subjba6uos pueqj^H f -BpuAuj ihi.lu pjpjo ejeq jeöuijAajq jepiepuja 66 VIKAN 10. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.